Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2018
14.7.2018 | 07:25
Samrunar
virðast margir telja að séu æskilegir til þess að "hagræða" í rekstri.
Adam Smith sagði eitthvað í þá vera eitt sinn, að hvenær sem tveir eða fleiri viðskiptamenn hittust þá væri samsæri gegn almenningi í gangi.
Nú berast tíðindi af því að Mogginn og Fréttó séu að sameinast um að reka dreifingarþjónustugegn Íslandspósti sem þeir kalla einokunarfyrirtæki. Í stað þess að vera heilagt fyrirtæki landsmanna eins og Lögreglan eða US Mail til dæmis, þá er búið að rýra stöðu þess með afnámi einkaleyfa til póstdreifingar.
Olíufélögin hafa rekið Olíudreifingu um árabil athugasemdalítið.
Nú berast fregnir af stórkostlegu tapi íslenskra flugfélaga sem nemur milljörðum. Warren Buffet hefur fyrir löngu lýst því að hann telji lítt ráðlegt að fjárfesta í flugfélögum.Af einhverju stafar það enda sjá menn hversu auðvelt það er að tapa á slíkum rekstri þegar saman fer dýr útbúnaður, mikið mannahald og rekstur sem er svo háður eldsneyti á heimsmarkaði.Svo kaupa Samkaup allar Iceland verslanir og 5 10-11 búðir.
En flugþjónusta er nauðsynleg og hefur minnkað heiminn fyrir almenning verulega.
Hvað geta Íslendingar gert núna í sínum flugmálum? Verða þeir ekki að sameina WOW og Icelandair til að "hagræða"? Alveg eins og Mogginn og Fréttó verða að taka upp nánara samstarf? Er einhver grundvöllur til að gefa út tvö blöð þegar eitt dugar? Netútgáfur verða sífellt öflugri eins og t.d. Altinget. Er alþjóðleg samkeppni ekki þannig að eitthvað verður að gera ef menn eigi að lifa af? Getur þessi samkeppnisrekstur haldið svona áfram? Af hverju urðu Flugleiðir til á sínum tíma með atbeina Ríkisins? Hvenær verður ekkert íslenskt flugfélag eftir og lækka verðu allan lífeyri í landinu af þeim sökum?
Hið oft kynduga Samkeppniseftirlit Íslendinga þvælist fyrir í vinsælum málum en gerir svo oft ekkert þegar eitthvað skiptir máli.
Samrunar virðast vera í farvatninu þar sem tekist verður á um grundvallaratriðin, eitthvað eða ekkert..
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.7.2018 kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.7.2018 | 10:01
Meira á miðopnu
Morgunblaðsins eftir Björn leví fer í taugarnar á mér.
Þar skrifar hann um nauðsyn þess að fjölga ruslflokkum á Alþingi. Björn segir m.a.:
" Ég segi að kosningalögin séu drasl af því að í undanförnum þrennum alþingiskosningum hefur munað mjög miklu á að stjórnmálasamtök fái þingmannatölu í fyllsta samræmi við heildaratkvæðatölu sína.
Ein helsta ástæðan fyrir því er hin svokallaða 5% regla sem var bætt við í stjórnarskrána árið 1999, þeim flokkum sem það samþykktu til ævarandi skammar. Hún hljóðar svo: Þau stjórnmálasamtök koma þó ein til álita við úthlutun jöfnunarsæta sem hlotið hafa minnst fimm af hundraði af gildum atkvæðum á landinu öllu
Munurinn á þingmannatölu eftir núverandi kosningakerfi og einföldu hlutfallskerfi var árið 2013 átta þingsæti. Það eru átta þingsæti sem aðrir flokkar en komust inn á þing misstu af og flokkar sem komust inn á þing græddu. Þar hallaði tilfinnanlega á stærri flokkana en ríkisstjórnarflokkarnir þá fengu sex af þeim þingsætum. Árið 2016 var munurinn fimm þingsæti þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjú sæti aukalega og árið 2017 munaði þó ekki nema einu þingsæti sem Framsóknarflokkurinn fékk á kostnað Bjartrar framtíðar.
Að það sé möguleiki á svona mikilli skekkju í kosningakerfinu gerir það að verkum að ég tel mig geta kallað það drasl. Hvað er þá hægt að gera? Þarf að breyta stjórnarskránni? Já, en ekki af þessari ástæðu. Það er hægt að laga þennan galla bara með því að breyta kosningalögum. Með því að takmarka fjölda þingmanna sem hver flokkur getur fengið við atkvæðahlutfall á landsvísu og heildarfjölda þingsæta getur ekkert framboð fengið fleiri þingsæti en eitt umfram heildarþingmannatölu á landsvísu.
Er heildarþingmannatala einhvers framboðs 4,6? Þá getur það framboð mest fengið 5 þingmenn ef, og bara ef, ekkert annað framboð er með hærri hlutaþingmann (0,6) þegar kemur að úthlutun síðustu þingsætanna. Þetta myndi þýða að framboð myndi örugglega fá þingsæti ef það fengi 1,587% af atkvæðafjölda á landsvísu. Í kosningunum 2017 hefði þurft 3.115 atkvæði. Björt framtíð fékk 2.394 atkvæði eða 1,22%. Það þýðir hlutaþingsæti upp á 0,77 sem var þriðji stærsti hlutaþingmaðurinn af sex sem væri útdeilt á þann hátt. Ýmsir hafa sagt að það sé svo flókið að vera með marga flokka á þingi.
Það getur vel verið en lausnin á því má ekki vera sú lýðræðisþynning sem undanfarnar kosningar hafa skilað okkur. Að ríkisstjórn með 51,13% fylgi fái 60,32% þingsæta ætti að særa lýðræðiskennd okkar allra. Við getum gert betur og eigum þá að gera betur."
Hvað skyldu þjóðir sem búa við einmenningskjördæmi segja um lýðræðisþynningu? Hvað mátti UKIP hans Nigel Farage segja þegar hann fékk sinn dauðadóm þrátt fyrir mikið fylgi? Er það ekki einmitt kostur fulltrúalýðræðisins að það verndar þjóðirnar gegn vanhugsuðum geðþóttaákvörðunum beins lýðræðis þar sem múgurinn stjórnast af stundar geðhrifum en ekki yfirvegun.Allt margreynt frá dögum Kleons sútara. Það er einmitt sá hemill sem fulltrúalýðræði er sem jafnar sveiflurnar i þjóðlífinu og dempar óæskileg áhrif óþroskaðra þingmanna eins og ....
Upplausnin á Alþingi sem hófst með veikingu fjórflokkakerfisins hefur leitt okkur til stjórnmálalegrar upplausnar. Í beinu hlutfalli við fjölgun þingmanna smáflokkakraðaksins sem engu geta náð fram vegna innbyrðis sundrungar og skorts á stefnumiðaðri hugsun.
Framferði Björns Levís í þingsal og tilgangslaus fyrirspurnavaðall er einmitt gott dæmi hér um þingmann sem til einskis gagns verður vegna þessara staðreynda. Í það heila geta menn séð árangurinn með því að virða fyrir sér árangur þingmanna til viðbótar á borð við Þórhildi Sunnu og Halldóru Mogensen og spurt sig hverju störf þessara þingmanna hafi skilað þjóðinni þegar það eina sem upp úr stendur er rógur og tilraunir til mannorðsmorða á saklausu fólki.
Þröskuldurinn þarf að hækka ef nokkuð er í 7.936 % til að koma á stjórnmálalegum stöðugleika í formi 5 manna þingflokka sem lágmarki.
Þetta var enn einum og mikið fyrir mig á miðopnu Moggans.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.7.2018 | 09:18
Hvar eru einkareknu fæðingarheimilin?
eins og það sem hún Hrafnfjörð rak svo dásamlega í Kópavogi á sinni tíð?
Þar fæddist yngsti sonur minn og konan mín var aldrei hamingjusamari með allt umhverfið en á þessu þrítugsafmæli sínu.
Er ekki einhverjar lausnir fólgnar í einkarekstri fæðingarheimila?
12.7.2018 | 16:35
Hvað þýðir að rífa kjaft núna?
fyrir Trump?
Rússar eru búnir að gera alla Evrópu háða sér. Bretar eru all seinir að koma sínum gaspolli á markaðinn. En Bretland flýtur á gasi.
Öll Evrópa suður í Litlu-Asíu gengur á rússnesku gasi.
Kannski talar Trump við Pútín um gasverð?
Er ekki bara gott að heimsviðskiptin gangi á fullu? Þá verða stríð ólíklegri.
Nýjustu Nord stream pípurnar(1.2 m í þvermál, 1.5 tommu veggþykkt á 200 kílóa þrýstingi) eru bara viðbót við það sem fyrir er og er búið að vera lengi.
Þýðir eitthvað fyrir Ttrump að rífa kjaft yfir orðnum hlut?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
12.7.2018 | 13:02
Trump triumphs!
Trump gengur sigri hrósandi í burtu frá fundinum í morgun.
Allir NATO-leiðtogarnir viðurkenna að hann hefur lög að mæla. Í félagi eiga allir að leggja fé sitt til samlagsins..
En einbeittur er hann og enginn veifiskati.
Trump triumphs!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.7.2018 | 12:47
Ábúðarlögin nr.920 1933
virðast gleymast í moldviðrinu um jarðakaup útlendinga.
Íslendingar hafa gildandi lög þar sem hver sá Íslendingur sem vill getur látið byggja sér óbyggða bújörð. Þar getur hann fengið erfðarétt á jörðinni. Byggt allt sem honum dettur í hug.
Vilji hann ekki búa lengur getur hann farið og er þá jarðareigandi skyldur að leysa allt til sín. Hann er nánast réttlaus gagnvart ábúandanum og mörg dæmi eru fyrir harmleiki af þessu.
Útlendir auðjöfrar geta komist að því fullkeyptu hvað er að fást við í þessum efnum þegar ábúðarlögin frá 1933 nr.920 eru sótt til uppgjöra.
12.7.2018 | 11:26
Sjórnarmið TRUMP
sem bísnessmanns er að hver eigi að borga fyrir það sem hann þiggur.
Yfir þessu kvarta allir sem ekki vilja borga það sem þeir skulda.
Meðtaldir allir lántakendur verðtryggðra lána á Íslandi. Þeir gleyma því að án verðtryggingar er ekki hægt að lána út á lægri vöxtum en verðbólgu.
Nema í erlendri mynt og fá að taka þátt í innanlandsráðstöfunum Seðlabanka viðkomandi ríkja.
Það var auðveldara á dögum kalda tríðsins að segja að kostnaðurinn væri mest vegna hagsmuna Bandaríkjanna sjálfra sem stórveldis. Við hinir værum svo smáir.
Ekki lengur segir Trump loksins síðastur í langri línu Bandaríkjaforseta.
Hann er líka af öðru sauðahúsi. Hann er bísnessmaður en ekki pópúlisti eða atvinnulygari eins og margir atvinnustjórnmálamenn. Hann tekur ekki eyri fyrir að gegn Forsetaembættinu fyrstu þeirra.
Nú eru allir fúlir við hann því nú er jamm að rukka inn skuldir samstarfsríkjanna. Auðvitað verðum við Íslendingar skithræddir og byrjum að djöflast á honum.
Nú er hann að segja að viðskiptahalli Bandaríkjanna gagnvart mörgum öðrum ríkjum sé vandamál og ósanngjarn.
Dollarinn er alheimsmynt og gegnir svo mörgum hlutverkum að Trump stendur ekki til boða að fella hann einfaldlega til að laga þetta eins og við Íslendingar gerðum þegar útgerðin fór á hausinn hjá okkur.
Það er ekki svona auðvelt fyrir Trump og hann leitar því annarra leiða.
Ef mótaðilarnir ætla að svara líka með tollahækkunum þá sést fljótlega að það gengur ekki fyrir þá þar sem þeirra hagsmunir eru meiri en Trumps minni.
Og hvað er við að fást? Er einhver furða þó að Trump krefjist betri kjara fyrir Bandaríkin ? Og getur hann gert það einhvernveginn öðruvísi? Haf mótaðilarnir nokkuð boðið honum á móti annað en skít og skammir? Hvernig væri til dæmis að Kínverjar legðu útflutningsskatt á hjá sér?
Vill engin sjá sjónarmið Trump og bera saman við það sem hann sagðist ætla að gera í kosningabaráttunni?
Gerum Bandaríkin stór aftur !
12.7.2018 | 09:52
Hver vill kaupa banka?
Deutsche Bank: NOT Too Big to Fail in Plain Sight?
by Robert Folsom
Updated: July 10, 2018
You've Just Seen What a Decade-Long Meltdown Looks Like.
The Bigger Reality? Banking's Systemic Crisis May Grow Worse.
Global Market Perspective subscribers were not surprised by Deutsche Bank, or by the bear market in too-big-to-fail bank stocks.
Hvaða áhrif hefur falla banka eins og Deutsche á bankakerfi heimsins?
Skyldi Warren Buffet vera að fjárfesta í bönkum frekar en flugfélögum?
Hver vill kaupa banka(eins og td.Aríom?) núna ?
12.7.2018 | 08:13
Þvílíkt afrek
var björgunin í Thailandi.
https://www.youtube.com/watch?time_continue=314&v=nM2u2phHr2k
Á www.pressan.is náði ég þessu myndbandi. Þetta er eitthvað sem vert er að sjá til að skilja þvílíkt afrek þessi björgun er.
11.7.2018 | 20:44
Trump talar með hrútshornum
við loðinbarðana í Brüssel.
Kannski kann hann íslensku heilræðin gömlu:
Góðmennskan gildir eigi
gefðu duglega á kjaft
það hefur það ég þekki
þann allra besta kraft
Trump sér að þetta er eina aðferðin til að ná eyrum loðmuldara ESB og ólýðræðislega stjórn þess. Merkel skilur ekkert annað sem gamall kommúnisti frá DDR. Frændur hennar Sachsarnir voru verstu Nasarnir í 3.ríkinu og verstu kommarnir eftir 1945.
Margt þetta ESB lið er hugsjónalaust og skattfrjálst eiginhagsmunalið og ætlast til að Trump bara borgi áfram fyrir allt bandalagið. Karlinn var búinn að segja skýrt og greinilega að svo yrði ekki áfram. Samt þykjast þeir vera hissa? Sjáið sérgæskuna í því að senda ekki bardagalið til Afganistan Bara Kaninn á að fórna sér.
Hvað skyldu þau Gulli og Kata segja við Trump? 4 % væru það ekki 1-200 milljarðar? Keflavík var áður metin ígildi fjárframlags, kannski er hún það enn þar sem hún bara bíður tilbúin eftir að Kaninn komi aftur ef svo verkast.
Hrútshornin hans Trumps virðast ætla að hafa áhrif.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko