Bloggfærslur mánaðarins, september 2021
22.9.2021 | 22:37
Algert fíaskó
var viðtalið á RÚV við flokksformann Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, í kvöld.
Sjaldan eða aldrei hef ég orðið vitni að öðru eins þekkingarleysi einnar manneskju á málefni í viðtali á opinberum vettvangi og þarna varð.
Þorgerður Katrín ætlaði að ræða flókið hagfræðilegt vandamál sem var skipti á íslensku krónunni yfir í evru.Hún gat það auðvitað alls ekki því eðlilega eru svo margar spurningar sem svara þarf að fáir gætu komið einhverju fram af nokkru viti svo vitglóra væri í.
Það var því fremur ömurlegt að verða vitni að algeru þekkingarleysi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns Viðreisnar við spyrla RÚV í þessu viðtali í kvöld.
Spyrlarnir slepptu henni auðvitað við mestu óþægindin þegar kom að lykilspurningunni um á hvaða gengi hún ætlaði að tengja krónuna evrunni. Þá svaraði hún út í hött að hún vissi það ekki en varaformaður myndi vita það betur og þau myndu bara redda því þegar þar að kæmi.Afspyrnu einkennilegt svar jafnvel af stjórnmálamanni á borð við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.
Skv. töflu Seðlabankans á 15 árum hefur gengni evrunnar verið sem hér segir í September ár hvert:
2021 152
2020 151
2019 132
2018 128
2017 126
2016 128
2015 143
2014 154
2013 162
2012 159
2011 160
2010 159
2009 182
2008 130
2007 90
2006 89
2005 76
Hvaða ár á að miða við?
Þorgerður Katrín gat ekki svarað því hvað ein milljón í íslensku sparifé yrði mikil á hæsta gengi eða lægsta. Hvort hún yrði 13.157 aða 7936 evrur sem væri um helmingur af þeim hæsta evrufjölda.
Upphæð sem næmi um helmingi af stofni hefði þá verið tekin af innistæðunni á altari evrunnar og gengisstöðugleikans.Hún var ekki spurð út í hvaða áhrif þetta hefði á verðtrygginguna sem hefur ríkt hér? Hvað þá lífeyrisjóðsinneignirnar?
Eru þessir vinstri flokkar ekki sífellt að tala um að skattleggja þá sem eiga? Hversu hár var auðlegðarskatturinn hjá Steingrími Jóhanni? 1.5-2% þrisvar sinnum eða samtals 4.5-6%. og þótti ærinn. Þorgerður ætlar að taka þá upphæð nærri tífalda á einu bretti með hjálp evrópska seðlabankans.
Skyldi almenningur sætta sig við þetta skiptigengi á ævisparnaðinn?
Bæði í bankanum og svo ekki síst i lífeyrissjóðnum til elliáranna?.
Er þessi Viðreisnarflokkur yfirleitt með efnahagslega réttu ráði? Hefði jafnvel Gunnar Smári getað þvælt meiri útópíska vitleysu til að fá fólk til að kjósa sig heldur en þessi Þorgerður Katrín bunaði út úr sér með öllu handapatinu?
Hvorki hún né spyrlarnir skildu upp né niður í því sem þarna var til umræðu og björguðu sér frá þessu aðalmáli flokksins með breytingu yfir í óskylda sálma.
Þarf fólkið sem keypti evrur árið 2017 á útsölu eða 126 krónur, hvað þá á 75 kt. árið ð2005 ekki að bæta þjóðarbúinu skaðann af viðskiptunum svo allir sitji við sama borð?
Borga til baka hagnaðinn sérstaklega umfram þá sem eru að skipta hjá Þorgerði núna þegar hún hefur fengið öll völd og búin að semja við Evrópska Seðlabankann?
Borga sérstakan gengishagnaðarskatt fyrir óréttlátan gróða eins og kvótagreifarnir sem hún ætlar nú að láta kaupa aflaheimildirnar sínar aftur og þá væntanlega í samkeppni við útgerðir ESB sem verða að njóta jafnræðis eins og á Bresku miðunum fyrir Brexit á grundvelli EES?
Bjarni Jónssonn rafmagnsverkfræðingur hefur þetta að segja um tillögur Viðreisnar gagnvart ESB:
"Það er rangt, að efnahagsstöðugleiki muni aukast við fastgengi með evru. Þá munu aðrar sveiflur en gengissveiflur þvert á móti aukast, þegar hagkerfið verður fyrir innri eða ytri truflun, t.d. á formi kjarasamninga, sem útflutningsatvinnuvegirnir geta ekki staðið undir, verðhækkunum eða verðlækkunum á erlendum mörkuðum, eða hruni greinar, t.d. ferðageirans. Gengið er nú dempari á efnahagssveiflur.
" Ég geri mér grein fyrir, að við þurfum meiri umræðu, meiri upplýsingu. Við erum að heyra alls konar rangfærslur um, að útlendingar fái fiskimiðin okkar og orkan verði tekin - tómt píp, auðvitað - en við þurfum meiri upplýsingu. Þess vegna höfum við lagt til, að þverpólitísk nefnd taki við málinu og undirbúi þá atkvæðagreiðslu, þar sem við spyrjum fólkið, hvað eigi að gera."
Þetta er léttúðug og óábyrg afgreiðsla á örlögum fiskimiðanna eftir inngöngu. Stjórnun fiskimiðanna er ekki umsemjanleg af hálfu ESB við aðlögunarríki, af því að kveðið er á um það í sáttmála ESB, að ríki ESB skuli lúta sameiginlegri landbúnaðar- og fiskveiðistefnu ESB, CFP (Common Fisheries Policy). Það var lengi mikið óánægjuefni í strandbæjum Bretlands, að flotar hinna ESB-landanna ryksuguðu fiskimið Breta upp að 12 sjómílum. Eftir útgönguna losna Bretar af klafa þessarar ofveiði í áföngum á 5 árum."
Hún segir að nú sé allt svo auðvelt af því að við eigum gjaldeyrisvarsjóð. Er hann ekki í skuld að miklu leyti?
Ekki get ég annað en flokkað þetta viðtal sem algert fíaskó flokksformannsins sem greinilega hefur ekki þann hagfræðilega skilning til að bera sem nauðsynlegur yrði fyrir viðfangsefnið svo flókið sem það er og sem vísar grundvallarspurningum á fjarstaddan varaformann flokksins er hreint ótrúleg frammistaða eins flokksformanns.
22.9.2021 | 15:33
Framsókn frekar en fullveldissöluflokka
Jón Magnússon lögmaðurinn ljúfi veltir fyrir sér hvor sé meiri miðjuflokkur, Viðreisn eða Framsókn.
Mér finnst vera reginmunur á Samfylkingarflokknum báðum, sem vilja fullveldi Íslands feigt, og gamla góða Framsóknarflokknum, sem ég hef lengi þekkt.
Jón skrifar>:
"Framsóknarflokkur og Viðreisn heyja harða baráttu um hvor flokkanna sé meiri "miðjuflokkur" Baráttan felst í því að sýna kjósendum, að þeir geti unnið með hverjum sem er, hvenær sem er. Þeir láti ekki hugsjónir eða stefnumál þvælast fyrir sér. Þess vegna getur Viðreisn auðveldlega stutt villta vinstrið í borgarstjórn Reykjavíkur.
Framsóknarmenn stæra sig af því að þeir hafi jafnan verið valkostur við stjórnarmyndanir vegna þess hvað þeir séu mikill mðjunafli íslenskra stjórnmála. Réttara væri að segja að Framsókn hafi um langt árabil verið flokkur, sem hefur þann eina pólitíska tilgang að vera í ríkisstjórn, sér og sínum til framdráttar.
Miðja stjórnmála hvar sem er í heiminum er kyrrstöðuafl. Framsóknarflokkurinn kynnir sig í kosningabaráttunni sem flokk, sem þeir geti kosið,sem hafa ekkert annað að kjósa og engar sérstakar skoðanir í pólitík.
Vandi íslenskra stjórnmála er síst sá, að það séu ekki nógu margir flokkar á miðju hefðbundinna stjórnmála og sækist eftir að vera þar. Vandinn er mun frekar sá, að það vanti flokka, sem boði stefnu sem sé líkleg til að verða hreyfiafl nýrrar sóknar til velferðar einstaklinga og samfélags. Slíkir flokkar eru sjaldnast á miðjunni og alla vega ekki hér á landi.
Ekki gleyma því sem Winston Churchill forsætisráðherra Breta sagði eitt sinn. "Vandi þeirra sem eru á miðjum vegi er að það er keyrt yfir þá." Þannig er það líka í pólitíkinni þeir sem hafa enga hugmyndafræðilega rótfestu láta allt falt ef því er að skipta. Þess vegna hefur Framsóknarflokkurinn jafnan verið opinn í báða enda eins og fyrrum foringi hans orðaði það."
Mér finnst ver allur munur á þjóðlegum flokki eins og Framsóknarflokknum, sem er oftar en ekki talinn afturhaldssamur SÍS-vörður, eða þessum afturgöngum Krataflokksins sem mér finnst þessi Samfylking og Viðreisn vera.
Ég kem ómögulega auga á einhvern mun á þessum flokkum og skil ekki hversvegna þeir sameinast ekki þar sem þeir eru eineggja tvíburar um Evrópusambandsaðildina. Það hlýtur að vera bara spurning um ríkisstyrki sem heldur aftur af þeim. Allt annað hljóti bara að vera snakk um ekki neitt.
Þaðan af síður kem ég auga á þörfinni fyrir þennan dópelskandi Pírataflokk sem vill kaupa alla letingja landsins fyrir Borgaralaun sem þeir kalla svo.En þau geta varla komið annarsstaðar frá en úr prentvélunum við Kalkofnsveg og vösum þeirra sem þiggja.
Nei Jón minn góður, Framsókn fimm sinnum fyrr en fullveldissalaflokkana.
22.9.2021 | 14:50
Eiga Talibanar erindi?
til að ávarpa Allsherjarþing S.Þ.?
Utanríkisráðherra Þýskalands sér ekki tilgang í því?
Hvaða skoðun skyldi Guðlaugur Þór, Katrín Jakobsdóttir eða Alþingi Íslendinga hafa á því hvort Talibanar eigi þangað erindi?
22.9.2021 | 13:01
Fullveldissalarnir
Samfylking og Viðreisn.
Er einhver munur á þessum flokkum?
Þeir vilja báðir ganga í 27 ríkja tollabandalag með mjög landluktum Evrópuþjóðum.
Ganga gegn afganginum af veröldinni til að rýra lífskjör þess fólks sem þar býr?
Og kalla það frjálslyndi að berjast gegn algildu viðskiptafrelsi?
Afsala sér stjórn eigin efnahagsmála með upptökui Evru?
Er einhver hugsjónamunur þarna á ferðinni?
Eða er þetta bara fegurðarsamkeppni forystufólksins?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.9.2021 | 11:29
Á 18 dögum
losar eldgosið á Reykjanesi jafnmikið og allt CO2 frá influttu eldsneyti. Og Katla gamla klárar það á nærri viku. Og þá er Methanið ótalið. Hvað ætlar hún Kata litla að gera í því?
Hvað eiga þessar píslir að halda lengi áfram? Eigum við að kaupa losunarheimildir og borga þeim á Hellisheiði fyrir 4000 tonnin sem þeir ætla að jarða?
Á 18 dögum blés Fagradalsfjallið út jafnmiklu og öll olíufélögin fluttu inn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.9.2021 | 11:17
Brynjar Nielsson
berst hinni góðu baráttu þó að kjósendur íhaldsins séu svo vitlausir að vilja hann útaf þingi.
Hann skrifar á Facebook:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2021 | 11:02
Af hverju leggur Mogginn þetta á okkur?
venjulega vesæla lesendur með því að vera að planta greinum eftir Björn Leví á miðopnu? Eins og það væri ekki nóg að þurfa að sjá stubbana frá Talna-Bensa þar hvað eftir annað með Evrópusteypuna sína sem jafnast helst við greinar Ola Bieltvedt um gengismálin sem virðist ekki hafa heyrt um hærri vexti í Evrópu en 2 % en ekki 10-20 % sem eru algegnir vextir í viðskiptum þar í sveit eftir aðstæðum.
Allt fengið með Evru segja þessir spekingar og ljúga blákalt að almenningi sem heldur að þar sé sífelld vaxtaveisla.
Af hverju leggur Mogginn þetta á okkur rétt fyrir kosningar?
21.9.2021 | 18:45
Hinn óbærilegi léttleiki tilverunnar
birtist manni í dag í fréttum af því að Boris Johnson þurfti sjálfur að fara og dextra stærsta framleiðanda CO2 í Bretlandi til að fara að framleiða CO2 aftur þar sem bjórinn og jólamaturinn var í bráðri hættu vegna skorts á þessari lofttegund.
Á sama tíma var það aðalfréttin að við Hellisheiðarvirkjun á að breytan 4000m tonnum af þessari gróðurhúsalofttegund í grjót á Íslandi og svo enn meiru í Straumsvík þegar tímar líða, á meðan sérfyrirtæki tappar á flöskur í Ölfusi og hefur vart undan.
Já hinn óbærilegi léttleiki tilverunnar er ófyrirséður.
21.9.2021 | 15:28
Allt í góðu hjá Gunnari ?
hvað vörsluskatta starfsmanna varðar?
Mörgum sem standa lengi í atvinnurekstri verður hált á vörslusköttunum sem launagreiðendum er gert að innheimta fyrir ríkið.
Starfsmenn Gunnars Smára hafa kvartað sáran á Stundinni um vangreidd laun.
Gat Gunnar Smári gert upp öll svokölluð "rimlagjöld" við ríkið vegna starfsmanna sinna?
Eða gilda reglurnar ekki fyrir nýsósíalista sem ætla að breyta Valhöll í almenningssalerni og skipa Björn Bjarnason sem kamarsvörð?
Bara allt í góðu hjá Gunnari Smára?
21.9.2021 | 11:47
Gunnar Smári eða Bjarni?
Ég átti góðan vin sem var bankastjóri. Við ræddum lánamál og hann sagði mér efnislega hvernig hann nálgaðist erfið verkefni sín.
Hann sagðist fyrst og fremst horfa fyrst á manninn sem var á bak við erindið. Væri maðurinn í lagi þá þyrfti hann ekki að setja sig svo grannt inn í verkefnið. Maðurinn, heiðarleikinn og verkefnið væru nefnilega yfirleitt óaðskiljanleg.
Ég hlustaði fyrr á allt viðtalið við kommúnistaforingjann sjálfskipaða Gunnar Smára Egilsson sem RÚV átti við hann. Fljúgandi mælskan og fullyrðingarnar létu mig hugsa til baka til bankastjórans míns gamla. Þurfti maður að hlusta svo mikið á málskrúðið og slagorðin þegar maðurinn blasti svona við í sögunni til viðbótar? Rangupplýsingar og óheiðarleiki segja stundum meira en mörg orð.Samt kunni hann frá öllu að segja um vondar náttúrur Sjálfstæðísflokksins og sínum góðu.
Svo hlustaði ég á hvert orð í meira en klukkutíma í viðtali Dagmálastrákanna á Mogganum við Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins.
Í stuttu máli brilléraði Bjarni í hverju svari. Yfirburða þekking á Bjarna málefnum var eins og dagur og nótt frá máli Gunnars Smára sem svaraði fæstu efnislega heldur með frösum og slagorðum aftan úr forneskju Stalíns og Madúró.
Bjarni lýsti þeim skattalækkunum sem flokkur hans hefði staðið fyrir og þeim áformum sem hann hefði um lækkun tryggingagjalds og til lagalegra og sanngjarnari álagningu fasteignagjalda á fyrirtæki. Hvernig ábyrg hagstjórn eins og ríkisstjórnin hefði rekið myndi greiða fyrir lágum vöxtum framtíðarinnar.Vinstri flokkarnir sem nú biðluðu til kjósenda væru allir sem einn að boða aukin opinber útgjöld sem þýddu ekki annað en hærri álögur á almenning.Ef þeir þá ekki boðuðu það að falla í fang ESB or upptöku EVRU.
Bjarni sagði Sjálfstæðismenn vilja gefa skattaafslætti til fyrirtækja sem þau gætu nýtt í rannsóknir og þróun sem myndi skila sér til þjóðarbúsins alls.Þeir vildu nýtt 300 þúsund króna frítekjumark fyrir almenning vegna atvinnutekna og fleira í þeim dúr sem snert almannahag beint.
Ef menn nenna að leggja það á sig að bera þessa tvo menn saman. Annan uppdressaðan í úthugsaðan og vandaðan öreigabúning sem á sjálfsagt að minna á verkalýð og hinn snyrtilegan og blátt áfram á burstuðum skóm.
Þann fyrri uppfullan að fullyrðingum og þekkingarleysi og hinn þaulreyndan og fróðan um menn og málefni.
Mér býður mér í grun hvorn gamli bankastjórinn minn hefði valið fyrr.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko