Leita í fréttum mbl.is

Ólga í Pírataflokknum

hlýtur óhjákvæmilega að vera mikil. Þessi flokkur hefur aldrei komið saman til að kjósa sér forystu hvað þá annað.

Það er mikil einföldun og sjálfsblekking ef Birgitta heldur að hún sé óskoraður leiðtogi flokksins. Ef ég til dæmis geng í flokkinn til að komast á landsfundinn þá getur hún ekki bókað að ég kjósi hana sem formann frekar en einhvern annan.

Flokkurinn hefur heldur aldrei kosið sér stefnumál. Ef Birgitta heldur að fimbulfambið í henni og Helga Hrafni höfði til almennra flokksmanna þá er það nær örugglega ofmat eða misskilningur á eðli flokksmanna. 

Verkurinn er sá að þetta er ekki flokkur heldur þrýstihópur sem enginn fer fyrir. Þessir sérvitringar sem nú fara fyrir flokknum eru ekki kosnir af núverandi flokki heldur brotabroti hans.

Ef einhversstaðar hlýtur að vera ólga þá er það í Pírataflokknum. Sem er allt annar flokkur en Pírataflokkur Birgittu.


Ólga í Sjálfstæðisflokknum

virðist mér vera vaxandi.

Málefni forystu flokksins eru mikið rædd meðal óbreyttra flokksmanna þar sem ég kem.  Menn spyrja sig hvernig forystan sé að bregðast við þeim tölum sem berast úr skoðankönnunum? Fylgi flokksins fer stöðugt minnkandi.

Er forystan að grípa til varna?

Get ég eitthvað gert til að hjálpa til?

Eða er ég vandamálið? 

Hvert stefnir með þennan flokk í næstu kosningum? Getur hann tekið á sínum málum þá ef hann gerir  það ekki núna? Eða er hann að gera það og ég er bara ímyndunarveikur?

Mikið væri ég feginn ef ég væri einn um að skynja ólgu í Sjálfstæðisflokknum.


Léttar viðskiptafréttir

eins og venjulega.

Bakkabræður ná undir sig Bakkavör. Búið að aflúsa og allt komið í fyrra horf.

Selt í Símanum, enginn veit hver keypti.

Samskipum er stjórnað frá Kvíabryggju og er með miklar ráðagerðir í um hótelbyggingar. Fleiri hótelkeðjum er stjórnað þaðan? Er ekki hægt að taka upp helgarafplánanir í íslenska réttarkerfinu  eins og tíðkast í Þýskalandi fyrir fyllerískeyrslu? Það er ótækt að sóa kröftum okkar bestu sona svona.

Lífeyrissjóðir bólgna út í 15 % af launaveltu landsmanna.Enginn er kjörinn til að stjórna þeim. Þeir sem stjórna þeim eru bara örfáir handvaldir venjulegir strákar sem spila matatdor með eftirlaunin þín. Ef þeir tapa, þá gerir það ekkert til því það er nefnilega vitlaust gefið. Það ert þú sem tapar en ekki þeir.

Ekkert athugavert við söluna á Borgun. Ekkert athugavert við bankastjórann sem seldi án þess að tala við bankaráðið. Borgun er flott fyrirtæki sem borgaði eitt sinn stórsekt fyrir samsæri gegn almenningi. Það var allt í lagi því að Visa var tekið tvisvar og forstjórinn þar fékk verðlaun fyrir..

Viðskiptabönn á Rússa og Ísrael halda áfram og þykja bara viðunandi. Fleiri flóttamenn og hælisleitendur gegn fátækt á Íslandi.2.5 % meira í heilbrigðiskerfið svo hægt sé að hækka launin í því upp í mannsæmandi?

Óskuldsetti hluti gjaldeyrisforðans vex og fer að nálgast helming. Er einhver að tala um gjaldeyrishöft? Finnur einhver fyrir þeim?

Þetta er hluti af hinum óendanlega léttleika tilverunnar í viðskiptafréttum dagsins. 

 


Formaður VG Forseti?

Katrín Jakobsdóttir leiðir frambjóðendur afgerandi sem næsti Forseti Íslands.

Hún er formaður í VG-grænu framboði. Hún tók við af Steingrími J. Sigfússyni sem var formaður kvöldið fyrir kjördag 2009.

Hlustið á myndbandið hér á eftir:

Steingrímur J. Sigfússon sveikst aftan að þjóðinni með kosningaloforði sínu í Sjónvarpi kvöldið fyrir kjördag 2009 (myndband afhjúpar hann!)

Greypileg kosningasvik formanns VG og leiðitamra í flokki hans varðandi umsókn um inngöngu í Evrópusambandið sitja enn í mörgum. Hefur pólitíkus nokkurn tímann tekið U-beygju jafn-hratt og gróflega fyrir ráðherrastóla?

Orð Steingríms J. Sigfússonar hér á eftir eru á tæru: hvernig hann narraði þjóðina með eindregnu kosningaloforði fyrir maíkosningarnar 2009 um að fara EKKI í aðildarviðræður, en sneri algerlega við blaðinu með þátttöku sinni og annarra í VG í ESB-umsókn Össurar og Jóhönnu strax þá um sumarið. Sjáið þetta afhjúpandi hálfrar mínútu myndband, daginn fyrir kosningarnar 2009:

https://www.youtube.com/watch?v=AIBuEnFQ6ac

Hver getur nokkurn tímann trreyst kommúnistaflokki sem hefur þannig formann. Tilbúinn að selja hvað sem er fyrir eigin vegtyllu. Svo heldur hann því líka fram í alvöru að hann hafi bjargað þjóðinni!! Það eina sem er alveg öruggt er að hann bætti myndarlega við tekjustaflann og eftirlaunin sjálfs sín.

Katrín Jakobsdóttir er arftakinn. Er hún ekki meðábyrg þegar hún greiddi alltaf atkvæði með formanninum? Hefur flokkurinn VG eitthvað breyst? Er þetta ekki sama fólkið og þá?

Eiga kjósendur auðvelt með að gleyma þessu?

Nógu auðveldlega til þess að fimmti hver kjósandi styðji Katrínu Jakobsdóttur til embættis Forseta Íslands? 

Hver treystir VG eða formanni þess flokks?


Al Gore

al-gore-ice-capser búinn að græða vel á dómadagsspám sínum um hlýnun af mannavöldum.

Það eru nú 3 ár síðan jöklar áttu að heyra sögunni til samkvæmt útreikningum þessa vísindamanns.

Fjörtíuþúsund fífl í París trúðu samt öllu eins og nýju neti sem frá þessari stjörnu kemur. Allir nema Kínverjar eiga að minnka hagvöxt til þess að draga úr losun CO2.

Reykvískir skattgreiðendur þurfti að borga undir Dag Bé. og hjörðina hans til Parísar. Á meðan lýsir Óli Borgarstjóralækir því hvernig einelti Dags og meðreiðarsveina hans hefði bitnað á heilsu sinni þegar verst gegndi. Eru læknar læknum verstir spyr maður sig? Hann nefndi einnig Björku Vilhelmsdóttur sem hrekkjusvín við sig. Þetta gengi er aldeilis búið að taka til hendinni í heimsbúskapnum á meðan það slær 700.000 kall á klukkutímann 24/7/365.

Nú verður Grensásvegurinn þrengdur til að greiða fyrr umferðinni og spara útblástur eins og Hofsvallagatan og Borgartúnið. Á meðan keyra bílstjórar í svig á götunum til að forðast að lenda í holunum í malbikinu.

Mér finnst upplagt að bjóða Al Gore hingað á kostnað skattgreiðenda í Reykjavík og láta hann segja okkur frá nýjustu kenningum sínum í loftslagsmálum.


Loftslagslygin lífsseiga

veldur almenningi milljarðakostnaði en Ugluspeglarnir eins og AlGore græða.

No global warming occurred since 1997.

clip_image002

 

 

MIT Climate Scientist Dr. Richard Lindzen Mocks ‘Hottest Year’ Claim: ‘Anyone who starts crowing about those numbers shows that they’re putting spin on nothing’ – “70% of the earth is oceans, we can’t measure those temperatures very well. They can be off a half a degree, a quarter of a degree. Even two-10ths of a degree of change would be tiny but two-100ths is ludicrous. Anyone who starts crowing about those numbers shows that they’re putting spin on nothing.”

Climatologist Dr. John Christy said it best: “If you want the truth about an issue, would you go to an agency with political appointees? The government is not the final word on the truth.”

Read more:

http://www.climatedepot.com/2016/01/20/mit-climate-scientist-dr-richard-lindzen-on-hottest-year-claim-why-lend-credibility-to-this-dishonesty/#ixzz3y0xdrQZK

Sjá einnig blað Ole Humlum:

http://www.climate4you.com/Text/Climate4you_December_2015.pdf

 

Þessir sjálfskipuðu loftslagsvísindamenn sem sjúga ríkisspena allra landa fengu fjörtíuþúsund fífl með fimmtíu Íslendinga og Dag Bé. í broddi fylkingar fara á eyðslufyllerí á kostnað skattgreiðenda til Parísar til að gapa upp í AlGore, þennan mesta snákaolíusölumann seinni tíma.

Mátulega er það Íslendingum í rass rekið fyrir að velja sér fífl til forystu.Fyrir Loftslagslygina lífsseigu eigum við Íslendingar að gjalda með lífskjararýrnun þjóðarinnar um ókomin ár vegna ósannaðs dellumakerís GGF. 


Huggulegur smáflokkur

er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn þegar fylgið er komið undir 20 %. Það ættu ekki að vera mikil innaflokksátök við þær aðstæður og Viðreisn ekki einu sinni komin fram.

Fylgi Pírata mæl­ist nú 37,8% sam­kvæmt niður­stöðum nýj­ustu skoðana­könn­un­ar MMR. Fylgi Sjálf­stæðis­flokksins mæl­ist hins veg­ar 19,5% og Fram­sókn­ar­flokks­ins 10%. Fylgi beggja flokka hef­ur minnkað um 1,1-1,5% frá því í des­em­ber.

Vinstri­hreyf­ing­in - grænt fram­boð mæl­ist með þriðja mesta fylgið eða 12,5% og eykst um rúmt pró­sent. Sam­fylk­ing­in hef­ur misst 2,5% fylgi frá fyrri könn­un og er nú með 10,4%. Björt framtíð mæl­ist með 4,4% og hef­ur tapað tæpu pró­senti. Stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina er 30,1% og minnk­ar um rúmt pró­sent frá fyrri mánuði."

Maður hefur ekki orðið mikið var við útbreiðslutilraunir eða kynningar af hálfu þeirra sem til þess hafa verið ráðnir til Valhallar eða kjörnir til útbreiðslustarfa á stefnu Sjálfstæðisflokksins.

Kjósendur eru varla svo vitlausir að þeir flykkist um flokk sem enga stefnu hefur og enga forystu eða skipulag heldur. Samt talar Birgitta eins og hún og liðið í kring um hana eins og það séu leiðtogar þriðjungs þjóðarinnar. Hún þekkir hvorki haus né sporð á þessu fólki sem segist vera Píratar. Ég hugsa að jafnvel ég þekki fleiri en hún.

Þegar menn sögðust ætla að kjósa Jón Gnarr og gerðu það á sinni tíð  þá var það ekki vegna sérstaks álits á fyrirbrigðinu Jóni Gnarr heldur vegna þess hversu frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík voru orðnir hræðilegir í augum fólksins eftir allt það sem á undan hafði gengið. Ótrúverðugir með öllu. Í öðrum sveitarfélögum varð ekkert viðlíka almennt hrun.

Í næstu kosningum var brunað fram með að miklu leyti sama gengið. Ekki virðist  vöxtur og viðgangur Þess átaks hafa orðið mikill síðan þá ef marka má þessar síðustu tölur.

Spurning er hvað Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að gera? Ætlar hann bara að hjakka svona áfram eða ætlar hann að gera eitthvað til að nálgast kjósendur áður en kosningarnar bresta á. Almennir fótgönguliðar hafa sumir hugmyndir en enginn spyr neins. Það hlýtur að vera af því að forystan veit allt sjálf. Til hvers skyldu stofnanir eins og Flokksráð og Kjördæmisráðin vera annars? 

Que sera que sera. Huggulegur smáflokkur  með stórt nafn og mikla sögu.


Auðstjórn almennings?

blasir við þegar SALEK samningurinn í höfn. Búið er að semja um 6 % verðbólguviðbót til 2018. 

Samkvæmt SALEK skulu lífeyrissjóðirnir skuli fá 15 % af allri launaveltu landsmanna til sín. Þetta fé er þeim lögum samkvæmt áskilið að lána út á minnst 3.5 % ávöxtun. Stærra verkefni og meira en hið fyrra sem  þeim tókst nú svona og svona. Fengu ekki einhverjir ítrekaðar skerðingar vegna útlánatapa?

Almenningur á sem sagt að vera dús við það að eitthvað ókjörið lið án hverskyns ópólitískra hæfniskrafna fari með óskoruð yfirráð yfir þeim sjóðum sem einir hafa afl til að kaupa eða gera ditten og datten í þjóðfélaginu. 

15 % af allri launaveltu landsmanna skulu vera í umsjá frjálsra félagasamtaka gersamlega án ábyrgðar gagnvart þeim sem eru kallaðir eigendur að sjóðunum. Öll fjármálavöld Andrésanna utangátta eru nú færð félagsmálatröllunum en engar jólabjöllur hringja í Hólakirkjunum.

Ætli þetta sé þáttur í því sem einhver kallaði auðstjórn almennings?

 


Margir vissu

hvað væri í aðsigi með bréfin í Borgun eftir því sem Fjármáleftirlitið segir núna..

Sveinsson  vissi ekki, Oddssson vissi ekki, Pálsson vissi ekki. Enginn valins hóps vissi neitt þó margir vissu.

Þurfti að selja af því að enginn vissi neitt? Og af hverju þurfti að selja án útboðs og hverjum lá svona mikið á og hvervegna?

Hvað yrði gert ef Bogesen hefði keypt alla kotrassana á Sviðinsvík af því að hann vissi að það var að koma fabríkka á jarðirnar en karlarnir ekki?  Er ekkert athugavert við innherjaupplýsingar þegar rétt ber undir? Er ekkert til sem heitir að snuða annan vegna fávisku hans?

Murphy segir að vísu að að sé ósiðlegt að leyfa fíflum að halda peningunum sínum. Og þó Murphy hafi yfirleitt rétt fyrir sér þá hefur stundum eitthvað að ofan komið fíflunum til bjargar.

Nei enginn í gæsluvarðhald og enginn rekinn. Hverjir eru fífl og hverjir eru ekki fífl? Hverjir eru ekki fífl þó þeir segist vera það þar sem þeir segjast ekki hafa vitað það sem margir vissu? Og hvernig getur maður sannað að maður hafi ekki vitað neitt þegar jafnvel margir af heilli þjóð vissu það sem sumir ekki vissu?


Fjölmenning

er hugtak sem GGF tyggur hvort eftir öðru. Það talar eins og hér hafi verið samþykkt að á Íslandi eigi að ríkja fjölmenning. Eins og sú sem ríkir í Ghettóum múslíma í vestrænum löndum. Hverfi þar sem lögregla landsins fer ekki inn í. Þar sem sharía lög séu æðri innlendum.

Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður skrifað grein í Mogga um þetta mál. Þessi texti er svo einstaklega skynsamlegur um þetta efni að ég set hann hérna ef einhverjum skyldi hafa skotist yfir hann :

Jón segir:(þessi bloggari feitletrar að vild)

"

Hvað er fjölmenning? Eitthvað sem er gott? Eitthvað sem færir fólk saman og býr til betri heim, upplýstari og ríkari að menningu og góðmennsku? Í orðræðu þeirra sem nota þetta óljósa hugtak, þá virðist oft, sem fólk trúi því að fjölmenning sé af hinum góða og muni færa þróuðum ríkjum mikla blessun. Þessi huglæga þráhyggja án vitrænnar skilgreiningar hefur heltekið marga oftast á fölskum forsendum.

Ísland hefur alltaf verið fjölmenningarland í þeim skilningi að við höfum lært um siði, menningu og sögu fjarlægra þjóða og tileinkað okkur hugmyndir til framróunar í verkmenningu, listum og lögum. Við lærðum um sögu Grikklands og Róm og baráttu Voltaire og annarra heimspekinga fyrir almennum lýðréttindum. Saga Evrópu er saga fjölmenningar. Þjóðirnar lærðu hver af annarri og tóku upp það besta í lögum, hugmyndafræði og verkmenningu annarra þjóða. Fræðsla um fjarlæg lönd og menningu fór fram í skólastofum og margir heilluðust af ýmsu, sem leiddi til þess að þeir hinir sömu lögðu lönd og álfur undir farartæki og hemisóttu framandi þjóðir og kynntu sér framandi menningu og miðluðu síðan af reynslu sinni.

Sú fjölmenning sem hér er lýst er allt annað en hugtakið fjölmenning þýðir nú. Í dag byggir fjölmenning vinstri elítunar og íslömsku yfirráðahyggjunar á því að menning og gildismat nýrra minnihlutahópa sé sambærileg menningu og gildismati meirihlutans. Það þýðir að meirihlutinn getur ekki búist við því eða vænst þess að minnihlutahópurinn taki tillit til menningar meirihlutans. Það felur um leið í sér að meirihlutinn verður að þola afstöðu og gjörðir, sem meiri hlutinn hafnar eins og í tilviki Evrópu í dag hvað varðar múslima. Fjölmenningarhugmyndin í dag segir að lítilsvirðing múslima og ofbeldi gagnvart konum og virðingarleysi fyrir þeim sem aðhyllast aðrar trúarskoðanir, sé hluti fjölmenningarinnar, sem okkur beri að láta afskiptalausa. Þeir sem leyfa sér að hafa aðra skoðun eða menningu minnihlutahópsins eru sakaðir um rasisma eða hatursumræðu. Í tímans rás hefur þessi fjölmenningarhugmynd lamað skynsamlegar umræður um innflytjendamál. Þessi skilgreining fjölmenningar og vígorðið sem þetta hugtak er orðið í dag, er fjandsamlegt þjóðlegri menningu og þjóðlegum gildum.

Við sem höfnum þessari fjölmenningar skilgreiningu teljum nauðsynlegt að það sé sameiginleg menning, sem er í menntakerfinu, vinnureglum og velferðarkerfi og framkvæmd laga. Það er ekki til að refsa fólki sem er í minnihluta, heldur til að tryggja að allir geti tekið fullkominn þátt í þjóðfélaginu og séu jafnir fyrir lögunum.

Fjölmenningartrúboðum nútímans annaðhvort sést yfir þá staðreynd eða vilja ekki viðurkenna að það er stór hópur af velmenntuðu fólki sem aðhyllist Íslam og er ákveðið að troða því frumstæðasta sem þar er að finna fyrst upp á aðra múslima og síðan ef þeir geta upp á samfélagið allt. Að hafna þeirri fjölmenningu er ekki rasismi heldur heilbrigð skynsemi.

Afsökunin fyrir því að gera ekki neitt er óskin um að fá að lifa í friði óáreittur. En lífið er barátta og hver tími býður upp á ný tækifæri og nýjar ógnir. Fólk verður að vera reiðubúið til að bregðast við hvoru tveggja af einurð og skynsemi ef vel á að fara.  Nú steðjar að ógn nýrrar heildarhyggju, Íslamismans, sem verður að bregðast við. Það er áskorun sem við stöndum frammi fyrir.

Við erum rík þjóð, sem hefur tekið og tekur vel á móti fólki af mismunandi trúarbrögðum. Við erum öll jöfn fyrir lögunum og lögin verða að taka á öllum með sama hætti. Íslenskur borgari sem hvetur til glæpa eða fremur þá, á að þola refsingu án þess að trú hans eða uppruni skipti máli. Sérhvern Íslending sem reynir að grafa undan íslenska ríkinu og íslenskri þjóðmenningu ætti að ákæra fyrir landráð. Við getum ekki eftirlátið fólki að fara eftir þeim lögum sem því hentar og brjóta önnur, til að þjóna furðuhugtakinu "fjölmenning". Við bjóðum fólki úr öðru menningarlegu umhverfi velkomið til landsins, en við krefjumst þess að það aðlagist samfélaginu og fari að lögum okkar og siðum.

Góð fjölmenning er allt annað en það inntak sem lagt er í orðið fjölmenning í dag. Góð fjölmenning er sú að kynna sér menningu og siði annarra og nýta eftir föngum. Sú fjölmenning sem grefur undan siðum og reglum þjóðfélags okkar eins og fjölmenningarpostular opinberrar umræðu á ljósvaka- og öðrum fjölmiðlum boða, er fjölmenning sem leiðir til menningarlegrar uppgjafar íslensku þjóðarinnar. Þá mun þjóðin týna tungu sinni og menningu. Eru gælur við hugtakið fjölmenningu á forsendum minnihlutahópa þess virði að við glötum íslenskri þjóðmenningu og kristilegum gildum?"

Betur hefur ekki verið skrifað um fjölmenningu það ég hef séð. Ég vona að sem flestir geti tileinkað sér þessa skilgreiningu Jóns á þessu skrumskælda hugtaki sem er notað af GGF gegn okkur hinum af því að það heldur að við skiljum það ekki.

Þetta er alveg eins og þegar kommarnir reyndu að troða á okkur díalektískri efnishyggju í gamla daga með vorkunnarsvip vegna þess hve heimskir við hinir vorum. En án þess að skilja hugtakið sjálfir. Það þurfti Hannes Hólmstein Gissurarson til að greina þetta hugtak og reka ofan í þá og þá kom í ljós að þeir höfðu ekki hugmynd um hvað þetta fyrirbrigði var. Þeir höfðu aldrei lesið fræðin sem ekki var von því þau voru svo vitlaus. Þeir lásu bara kilina á bókunum meðan Hannes las allt bullið og rak það svo ofan í þá. Eftir það hættu þeir kommarnir með allt vísindabull í kring um kommúnismann sem brátt sannaði sitt rétta eðli og þeir sögðust aldrei hafa verið kommar heldur kratar.

Ég sá svo að Jón var ekki dús við textann þegar ég lýsti atburðum á Landsfundi þannig að forystan hefði gólað á þá "rasistana Jón og Gústaf Níelsson" Fannst eins og ég væri að að kalla þá þetta. Klaufalega orðað kannski en klaufalegar skilið.

Ég var bara að vísa til þess sem þetta lið kallar okkur alla sem reynum að andæfa. Mér er slétt sama sjálfum. En mér er ekki sama ef Jón verður fúll út í mig, sem skipar háborð vina minna og þykir leitt að þetta megi svona skilja.

Greinin að framan sannar það, að Jón er hvorki rasisti né fasisti heldur húmanisti af vandaðri gerð sem ber hag lands og þjóðar fyrir brjósti.Sannur Íslendingur eins og þeir eru báðir hann og Gústaf eins og þeir gerast bestir.

Fjölmenning er hugtak sem menn verða að skilja áður en þeir nota það.

 


Hvor á að ráða?

á Alþingi? Stjórnarmeirihlutinn eða stjórnarandstaðan?

Ég hef velt því lengi fyrir mér hvort stjórnarandstaðan, sem eru ekki skipulögð samtök á neinn hátt, heldur sundurlaus brot með sitthverja skoðun á hverju máli, fái ekki allt of mikið vægi í stjórnmálaumræðunni? Takmarki þannig möguleika þeirra sem eru kjörnir til að stjórna og hafa myndað löglegt bandalag um lögleg stefnumál sín, til þess að koma sínum málum fram?

Hvenær sem eitthvað nýtt mál kemur upp þá er þessi Katrín Jakobsdóttir ævinlega kominn á skjáinn hjá RÚV til að gefa sitt álit. Fyrir mig sem gef akkúrat ekkert fyrir skoðanir Katrínar Jakobsdóttur í neinum málum er þetta bara svekkelsi.

Það sama gildir fyrir mig þegar sá næsti er sóttur, Árni Páll Árnason. Þessi tvö hafa alltaf rangt fyrir sér að mínu mati. Það bara pirrar mig að hlusta á bullið í þeim og ég mun aldrei kjósa þau hvað sem á gengur. Og þannig má áfram telja þetta lið sem ég gef ekkert fyrir.

Þetta lið allt er bara að mínu mati að tefja fyrir framgangi þeirra mála sem stjórnin ætlar að koma fram. Okkur stjórnarsinna varðar akkúrat ekkert um hvað það er að segja. Við styðjum þessa ríkisstjórn til að vinna þau verk sem við stuðningsmennirnir eru sammála um og sem við kusum þá til.Hinir eiga ekkert að hafa að segja.

Þvælan í stjórnarandstöðunni er bara hávaði og leiðindi fyrir okkur sem við nennum ekki að hlusta á. Hún væri best geymd heima hjá sér eða í einhverjum sandkassa þar sem hún getur bullað að vild um fundarstjórn forseta eða hvaða vitleysu sem hún getur fundið upp á.  RÚV getur útvarpað frá þessu allan sólarhringinn mín vegna á sérstakri rás, sem ekki væri skylduáskrift að hlusta á.

RÚV getur svo alveg útvarpað umræðum stjórnarmeirihlutans þegar afgreiðsla mála er á dagskrá. Þá fáum við mun betri mynd og rök fyrir því sem er verið að gera. Þá getum við líka betur sent okkar fólki skilaboð því auðvitað er það ekki að hlusta á skilaboð stjórnarandstöðunnar eða óflokksbundinna.

Þessar endalausu fyrirspurnir og andsvör eru til einskis í þingsalnum. Barasta kjaftæði sem engu skilar.

Henry Ford II hafði að máltæki og sitt stjórnunarlega mottó: Aldrei að kvarta, aldrei að útskýra.(Never complain,never explain)

Stjórnarliðar eiga bara ekkert að vera að fara í pontu til að svara svívirðingum og lygum sem stjórnarandstaðan er að gubba yfir þá úr ræðustól.Þessi flaumur skiptir nákvæmlega engu máli. Bara þegja og svara engu.

Það eru stjórnmálaflokkarnir sem mynda ríkisstjórnina og hún á að hafa vinnufrið en ekki að eyða sínum tíma í innihaldslaust og tilgangslaust kjaftæði eins og bunar út úr stjórnarandstöðunni. Þeir geta svo talað eins og þeir vilja þegar þeir komast í stjórn. Þá getum við farið og talað við fólkið til þess að útskýra okkar mál. 

Þetta er mín niðurstaða eftir að hafa lengi hlustað á umræðurnar. Í og með af því  að stjórnarandstaðan gerir engar kröfur til sjálfs sín um að tala af neinu viti sem væri svaravert. Barasta bull og leiksýningar.

Hvor á líka að ráða eftir kosningar? Meirihlutinn á Alþingi, Búsáhaldabyltingin fyrir utan, verkalýðsforingjar, Dagur B. Eggertsson eða vinstrisinnaðir álitsgjafar úr Hskólanum?

 


Dr. Nicolai Sennels

hefur gert líklega forboðnar rannsóknir á þeim hroðalegu afleiðingum sem inngiftingar eru að hafa og hafa haft á erfðamengi Múslíma sem leyfa giftingar systkinabarna.

Þetta var forboðið  meðal kristinna á dögum Mósesar en leyft af Múhameð og hefur viðgengist í 1400 ár meðal hans fylgismanna.

Já,kemur nú kallinn með sinn ómengaða rasisma og nasisma um Untermenschen og allt það. Því ætla ég nú ekki að fara lengra í pælingar dr. Sennels en þær eru um margt merkilegar. En útilokað er að þær fengjust ræddar hér án öskra og óhljóða svo ég læt staðar numið í bili.

En merkilegar eru þessar rannsóknir hins danska dr.Sennels samt.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband