Leita í fréttum mbl.is

Innflytjendadekur

gengur fram af mér.

Á öllum fjölmiðlum er sá fögnuður boðaður að nauðsynlegt sé að kenna útlendingum móðurmál sitt í íslenskum skólum. Til hvers er þetta eiginlega? Er ekki okkar stefna að innflytjendur eigi að laga sig að íslenskum siðum? Okkur beri skylda til að hjálpa þeim til þess? Á virkilega að fara eyða peningum okkar(ríkisins) í svona vitleysu? Eru ekki innflytjendur í landinu af einum 40 þjóðernum?  Er ljótt að vera þjóðernissinni á Íslandi?  Vilja varðveita íslenskt þjóðerni, tungu og sögu? Á þetta lattelepjandi lið menningarvita úr 101 Reykjavík að ráða öllu um innflytjendamál í þessu landi? Höfum við hin ekkert að segja í þessum málum?

Hveð yrði sagt í Danmörku ef Íslendingar þar heimtuðu kennslu á íslensku fyrir sín börn? Verðum við ekki næst að fara að kenna múslímabörnum Íslömsk fræði? Kenna þeim kosti grýtinga við hórdómi og umskurnar kvenna?

Eru bara ekki allt of margir innflytjendur í landinu til þess að dekra? 

 


Skondin skeyting

fréttar í Stöð2 þegar hún sýnir frétt um mögulega sigurgöngu óstofnaðs flokks hægri Evrópusinna.

Fyrst kemur myndskeið frá Landsfundi Sjálfstæðismanna í þéttskipaðri Laugardalshöll. Síðan kemur myndskeið þar sem Árni Páll gefur sigurmerki til fundar fyrir framan hann  og brosir í allar áttir.

Auðvitað vita allir að Árni Páll hefur aldrei verið hylltur nema fyrir framan fámenna hjörð í félagsheimili af smærri gerðinni  eins og hæfir flokksfundi Samfylkingarinnar. En á góðum degi fyllir slík samkunda kannski liðugt hundraðið.

Þetta var því skondin skeyting myndskeiða sem sýnir kannski útlendingum fjöldann flykkja sér um Árna Pál sem leiðtoga Evrópusinna. 


1500 milljónir út um gluggann

samtals í gerð Rannsóknarskýrslna um hrunið.

Þessir þykku doðrantar munu til einskis gagns verða þegar upp er staðið. Engan lærdóm mun neinn draga af því sem þar stendur.

Það eru margar ástæður fyrir þessu. Þeim leikendum fer fækkandi með tímanum sem stóðu að þeim gjörningum sem um er fjallað. Nýtt fólk með nýjar aðferðir hefur tekið við forystunni. Aðrir halda áfram uppteknum hætti. Þetta fólk les ekki þessar skýrslur því því koma þær ekki við. Þetta fólk hefur sinn eigin stíl og mun fara þannig fram. Lærdómar eru því engir af þessum pappírsbunkum. Árið 2024 veerða þær ekki nefndar á nafn nema sem dæmi um vanhugsuð viðbrögð við veraldarslysi.

Miklu nær væri að athuga hvað er skynsamlegt að gera í núinu til að endurreisa þjóðfélagið og hag almennings. Grein Kjartans Ö. Kjartanssonar í Morgunblaðinu í dag er þáttur í þeim hugleiðingum. Hugmyndir Hægri Grænna um magnbundna íhlutun Seðlabankans í verðtryggðu lánin hafa fengið allt of litla umfjöllun. Það eru mörg líkindi til þess að sú lausn væri til góðs fyrir Íslendinga og víðtækari en þær sem nú standa efstar.

En hinn nýi pappírshaugur  Alþingis þjónar litlum tilgangi öðrum en að skjalfesta það sem margir vissu fyrir, að tiltektir Steingríms J. Sigfússonar og síðustu vinstri stjórnar  hans og Jóhönnu sambandi við sparisjóðina voru líklega þær vitlausustu sem hægt var að velja og ollu hámörkun tjónsins.

Kostnaðurinn við gerð þessara doðranta er sjálfsagt hagvöxtur og happ fyrir þá sem sömdu.Það er hinsvegar  samkvæmt stjórnarskránni ekki bannað að vera  hálfviti, hvorki á sviði fjármála né í flugmálum. Hvern varðar um vitleysurnar þegar skaðinn er skeður.  Þessvegna var óþarfa sóun að henda 1500 milljónum út um gluggann þó maður tali ekki um þetta áreiti við regnskógana sem pappírsausturinn er  til þess að staðfesta slíkt.


Rugludallurinn

Árni Páll ásamt samstofna kór Evrópusinna halda áfram uppteknum hætti við að boða landsmönnum það að upptaka evru sé handan við hornið, bara ef þeir fái að ráða.

Ekki voru landsmenn fyrr lausir við þessa steypu þegar pantaða skýrslan þeirra í ASÍ og SA frá Alþjóðastofnun Háskólans  kom fram. Nú var Árni Páll í essinu sínu að leggja út af henni.Bara fela sér að stjórna upptöku evru og afnámi gjaldeyrishaftanna.

Leiðarhöfundur Morgunblaðsins fer yfir skýrsluna og segir ma.:

"Hún hefur fremur einkenni auglýsingabæklinga sem birtast einatt frá áhugasömum ungliðasamtökum stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga. ,og það er gert með því að vitna til ummæla ónafngreindra embættismanna (töluvert háttsettra!) sem gefa til kynna að vel sé hugsanlegt að komast megi framhjá ótvíræðum leikreglum sem ESB hefur sjálft sett. Svona tal hefði mátt sækja í blogg Össurar Skarphéðinssonar og hefur sama gildi. Annað er eftir þessu.Forseti ASÍ segist opinberlega vera ánægður með skýrslu sem stendur á slíkum brauðfótum og bætir að öðru leyti engu við umræðuna. Það gæti virst karlmannlegt að tala þannig upp í vindinn.En í rauninni sýnir það aðeins að forseti hinna virðulegu samtaka gerir engar kröfur til vinnubragða við það efni sem hann kaupir fyrir fé launþegahreyfingarinnar.Og það er auðvitað mikið umhugsunarefni. Meginverkefni forseta Alþýðusambandsins er að gera kröfur og stendur fátt eftir hætti hann því."

Þetta er  umj vinnubrögðin við samningu þessa aðkeypta plaggs Evrópusinna.

Svo er það túlkunin á textanum. Þar kemur ruglandin inn. Y

Yfirrugludallurinn dregur þá ályktun að evran sé á næsta leiti fá þeir Evrópusinnar að ráða. Þetta sé lesanlegt úr skýrslunni þar sem  Ásgeir Jónsson Bjarnasonar ráðherra er einn höfunda.

Ásgeir sjálfur er ekki sammála þessari túlkun.

Frá þessu segir  í í dag í Morgunblaðinu: 

"....Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart að margir hafa freistast til þess að lesa ýmsa hluti á milli lína eftir því hvar þeir standa í Evrópuumræðunni,« segir Ásgeir og tekur sem dæmi þau ummæli Frosta Sigurjónssonar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar, á Alþingi, að í skýrslunni sé lagt til að »ríkissjóður Íslands taki lán fyrir hundruð milljarða ef ekki þúsund milljarða svo að erlendir kröfuhafar geti losnað úr höftum«. Vísaði Frosti til þess að í skýrslunni kæmi fram að sækja mætti um lán úr hjálparsjóðum ESB sem lið í afnámi fjármagnshafta.

 

Ásgeir segir þetta alrangt, enda sé það alls ekki tilgangur þessara sjóða. Hið rétta sé að hann hafi bent á þann möguleika að breyta krónueignum erlendra aðila í löng skuldabréf útgefin af bönkunum. Ríkið kæmi þar hvergi nærri. »Með því er verið að breyta innlánum í skuldabréf sem kæmu á gjalddaga eftir að evruaðild væri orðin að veruleika eftir 10-15 ár, eða hér um bil. Þetta er ekki hægt í núverandi stöðu,« segir Ásgeir. "

Hvaða tilgangi þjónar það í dag að ráðgera eitthvað í dag sem hugsanlega kemur að eftir 10-15 ár? Hvað sem Árni Páll  fimbulfambar og hvað sem Össur bloggar og þeir saman segja í viðtölum á RÚV og annarsstaðar, þá er innganga í ERMII, ESB eða upptaka evru ekki handan við hornið. Er ekkert annað sem er brýnt í samfélaginu?

Það eina afl sem getur skuldbundið Sjálfstæðisflokkinn er Landsfundur. Hann sagði alveg kýrskýrt í ályktun að aðildarviðræðunum skyldi hætt og þær ekki upp teknar að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Þrástagl Evrópusinna eins og Þorvaldar Gylfasonar og ESB-hjarðarinnar um að einhverjir hafi lofað þjóðaratkvæði um hvort stöðva eigi aðildarviðræðurnar er  út í hött. Samt er þrástagast á lyginni á öllum rásum.

Aðildarviðræðurnar ber að stöðva strax með því að slíta viðræðunum í samræmi við ályktun Landsfundar. Þær verða ekki hafnar á ný fyrr en að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Nema náttúrlega samherjarnir  Árni Páll og Steingrímur J. komist aftur til valda eftir 3 ár.

 


Enn ósannindi á Útvarpi Sögu

um það að þjóðaratkvæði um áframhald aðildarviðræðna við ESB hafi verið lofað.

Að vísu voru þetta þeir Þorvaldur Gylfason og Höskuldur Þórhallson að tala saman ef einhversstaðar finnst einhver sem tekur mark á þeim. En Þorvaldur tuggði það að þessu hefði verið lofað af stjórnarflokkunum.

Ég verð að segja það herint út að þetta eru helber ósannindi hjá prófessornum og lúalegt áróðursbragð undir hallalúja Höskuldar. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins tók það skýrt fram að aðildarviðræðum skyldi hætt. Enginn nema Landsfundur getur skuldbundið Sjálfstæðisflokkinn, hversu oft sem Þorvaldur hjakkar á öðru. Það getur verið að litlu ljótu flokkarnir til vinstri geti farið eftir fámennisstjórn. Það getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki.  Loforðið var að slíta viðræðunum og ekkert annað.

Svo fimbulfambar prof.dr.Þorvaldur um að þjóðin hafi samþykkt tillögur Stjórnlagaráðs yfirgnæfandi. Kosningaþáttakan var mjög dræm og ómarktæk. Þarað auki dæmdi Hæstirétur Íslands kosningarnar ólögmætar og ógilti þær. Nei, ekki sýndi prófessorinn merki um að hafa heyrt þetta. Fimbulfambaði áfram um að nýtt Alþing eftir þetta myndi taka þessar tillögur upp sem sínar.

Staðreyndin er sú, þegar menn hafa kynnt sér þessar tillögur þá sannast á þeim hið fornkveðna sem iggur í augum uppi.  Þær eru mestan part illa unnin moðsuða og óskiljanleg á köflum í vondum texta á meira en hundrað síðum.  Forði forsjónin okkur frá því að grugga nokkurn tímann upp þessa hrákasmíði fundarins og hreina dellu í mörgum greinum sem ekki stenst skoðun.

Þessi ósannindavaðall kumpánanna var Útvarpi Sögu til lítils sóma. 


Fjárfestingaþörf Lífeyrissjóðanna erlendis!

er helsta áhyggjuefni í fjármálaheiminum.

Lífeyrissjóðirnir eru orðin skrímsli í höndum sérvaldra braskara sem enginn hefur kosið. Þeir krefjast frelsis til að fara með lífeyri landsmanna erlndis til að braska með hann. Voða gaman segir hver upp í annan.

Segjum að nú væri apríl 1939. Það væri hægt að fjárfesta í þýskum, breskum, bandarískum og japönskum hlutabréfum og skuldabréfum. Það verður að senda héðan fjármuni þar sem ekki er hægt að geyma neitt innanlands í kreppu og atvinnuleysi.  Aðeins þannig verður sjóðfélögum tryggður lífeyrir segja furstarnir. Dettur engum í hug að það er lífeyrir þeganna sem er undir í áhættubraskinu? Dettur engum í hug að sitthvað geti gerst í heiminum sem við stjórnum ekki?

Væri ekki betra að leggja allar iðgjaldagreiðslur í íslenska seðlabankann og láta hann um að greiða lífeyrinn? Þá ætti hver lífeyrisþegi sína skúffu sem tekið væri úr. INNANLANDS. Ávöxtun  fengist í íslenskum ríkisbréfum. 

Getur ekkert það gerst í heiminum að lífeyissjóðir verði fyrir skakkaföllum? Hver ætlar þá að borga? Furstarnir sem stjórna braskinu? Framtakssjóðsforstjórinn? Varla.

Lífeyrissjóðir eru að eignast annað hvort fyrirtæki landsmanna. Furstarnir sitja í öllum stjórnum. Þeir eiga ráðandi hlut á fasteignamarkaði. Þeir stjórna allt of miklu í þjóðfélaginu miðað við að þeir eiga ekki neitt. Það eru sjóðfélagarnir sem eiga peningana. Þeir ráða engu um stjórnirna á sjóðunum hvort sem það væri betra eða verra. Það getur ekki verið annað en hlægilegt að vera með Samkeppniseftirlit við þessar aðstæður.

Er þetta ekki komið út í hreina vitleysu með þessa fjárfestingarþörf lífeyissjóða sem keyra upp allt vaxtastig í landinu með 3.5 % ávöxtunarkröfunni?  Verðum við ekki að ríkisvæða allt kerfið?


Hvað eru fréttir?

spyr maður sig þegar maður hlustar á fréttir Bylgjunnar. Það er meginfréttin að maður hafi verið fullur á Rafmagnsvespu.Og kona hafi verið tekin full annarsstaðar. Þetta falli undir að vera fullur á reiðhjóli sem sé alveg sérstakt vandamál.

Er fylleríið á þjóðinni aðalatriði frétta? Lögreglan þurfti að gera þetta eða hitt vegna fylleríis. Einhver gistir fangageymslur. Eru þetta fréttirnar sem okkur vantar mest?

 


Skipulag Reykjavíkur

í búningi vinstrimanna með meðvirkni Sjálfstæðismanna virðist ætla að sigla í gegn.  Flugvöllurinn er dauðadæmdur þegar Dagur verður Borgarastjóri.

Á hverjum degi birtast fréttir af tiltektum  vinstri manna í Reykjavík. heilu opnurnar í Morgunblaðinu kynna glæstar áætlanirnar.  Ekkert fréttist af Sjálfstæðismönnum utan stöku auglýsing sem kennarar henda á lofti. Jú og svo talar oddviti Sjálfstæðislistans á stöku hádegisfundi hjá litlum hópum eldra fólks. Skyldi þetta vera  kosningabaráttan?

Eru kjósendur í Reykjavík geðklofar? Þeir vilja Dag B. sem arftaka Gnarrsins. Jafnfram vilja þeir flugið í Vatnsmýrinni áfram.  En kjósa þá sem vilja það burt.

Fluggarðar verða lagðir í rúst bótalaust á næsta ári. Endalok almanna,-kennslu-og einkaflugs eru þar með tryggð. Án þess að það geti farið neitt annað. Alveg sama hvað Rögnunefndin kemur með sem lausn, þá er Reykjavíkurflugvöllur feigur.

Skipulag Reykjavíkur sér til þess. 


Hvert stefnir

þetta þjóðfélag?

Fréttir skýra frá því hversu vel hafi tekist að milda áhrif af þessu eða hinu verkfalinu. Framhaldskólakennarar ætla að redda nemendunum þannig að áhrif skerðingar námsins um 3 vikur  verði engin. Búið að semja við þá langt umfram 2.8 % en reynt að blöffa niðurstöðuna með kjaftæði um hitt og þetta sem engin skilur, Afleiðingin er að óðaverðbólga er framundan. þeir gátu alveg eins haft sjálfdæmi og auglýst taxta sína sjálfir.

Vel gekk að afstýra hörmungum í fluginu í síðustu vinnstöðvun flugumferðarfólks segir sigrihrósandi í fréttum. Það er helst að heyra að hér hafi veri unnið afrek í þágu lands og þjóðar. Nú kemur næsta aðgerð og þá verða enn unnin afrek. Svo koma háskólamenn, svo koma grunnskólakennarar, alltaf er gefið eftir þegar búið er að vera með stæla í smátíma.

Allskyns litlir hópar taka þjóðfélagið í gíslingu. Kennarar eru eins og hryðjuverkamenn í Tetsjéníu, taka börn og halda þeim fyrir sig sem skildi. Ljósmæður terróriséra mæður á steypinum, Flugumferðarstjórar nota menntunina sem ríkið gaf þeim til að fjárkúga það með aðgerðum af því þeir einir geti stjórnað flugumferð. Reagan rak þá alla á einu bretti og allt gekk vel.

Það stefnir bara norður og niður með því agaleysi sem ríkir á svokölluðum íslenskum vinnumarkaði þar sem opinberir starfsmenn hafa verkfallsrétt.

Það  


Er þetta íslensk löggæsla?

Þessi frétt er í Mbl.

"Tvö hundruð og áttatíu ökumenn voru stöðvaðir á miðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Þrír ökumenn reyndust ölvaðir eða undir áhrifum fíkniefna við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér.

Einum til viðbótar var gert að hætta akstri en sá hafði neytt áfengis en var undir refsimörkum. Þetta segir þó ekki alla söguna því alls voru sautján ökumenn teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina, en hinir síðarnefndu fjórtán ökumenn voru stöðvaðir víðs vegar í umdæminu"

Er svona leynileg fyrirsát lögreglu fyrir borgurunum til þess fallin að auka traust milli lögreglunnar og þeirra? Er það hlutverk lögreglu að angra borgarana að tilefnislausu eða að hafa afskipti af sýnilegum lögbrotum? 1 % reyndist dópaður eða drukkinn án þess þó að hafa gert nokkuð af sér.. 

Mér finnst þetta brjóstumkennanleg lágkúra og sóun á fjármunum  fólksins.. Ég get ekki séð nokurn tilgang með svona starfsemi. Mér finnst þetta íslensk afdalamennska sem þekkist lítt  í þeim löndum sem við berum okkur saman við.  Upplýstur lögreglubíll fyrir utan öldurhús fær fólk til að hugsa sig um. Fyrirbyggjandi löggæsla fremur en meinfýsni.

Lögreglu ber að greiða fyrir umferð og hafa afskipti af þeim ökumönnum sem ekki virða reglur eða stofna öðrum í hætti með ógætilegum akstri.  Sú séríslenska aðferð að lögregla sitji í launsátri  og reyna að hanka þá á einhveerju angrar 99% borgaranna  og stuðlar ekki að þeirri góðri samvinnu þeirra og lögreglu sem æskileg er. 

 

 


Nýr flokkur

Benedikts Jóhannessonar ætlar að sækja fylgi til Bjartrar Framtíðar samkvæmt könnunum. Margir efast um að það hafi mikil áhrif á fylgi Sjálfstæðisflokksins sem enginn efast um hvar stendur í þessari Evrópusíbylju.

Fyrir mitt leyti fagna ég stofnun þessa flokks.  Kosningar myndu þá skera úr um stærð þessa Evrópuarms sem fylgismenn gjarnan undir forystu Benedikts og Sveins Andra og hugsanlega Þorsteins Pálssonar hafa verið að blása upp.  

Merkilegast er það þegar flokkaflakkari eins og Guðmundur Steingrímsson talar um frjálsyndi og framfarir undir sinni stjórn í Bjartri Framtíð.  Hver er munurinn á boðskap Evrópusinnanana í Samfylkingu og Bjartri Framtíð og væntanlegs flokks Benedikts um að Evran  færi Íslendingum stöðugleika og allskyns hvata í efnahagslífinu?  Krónan falli  stöðugt með tilheyrandi leiðindum fyrir landsmenn og það muni þessir aðilar laga. Hver trúir þessu virkilega? 

Má ekki spyrja til dæmis Guðmund Steingrímsson hvernig hann myndi leysa verkfallastudd launamálin  ef hér væri Evra sem gjaldmiðill?  Hvernig verða sífelldar kauphækkanir framkvæmdar í Evrulandinu Íslandi? Eins og í Þýskalandi til dæmis?

Hvernig er þá hægt cið þessar aðstæður að semja öðruvísi en nú er gert með því að gefa eftir fyrir kröfunum í hverju tilviki eins og nú er gert í trausti þess að síðan verði krónan látin leysa málið með gengisfellingu? 

Er það fleirum en mér spurning um hvort Ísland getii búið við annað en eigin gjaldmiðil sem hægt er að fella og fella hvenær sem launþegaflokkarnir hafa ráðist gegn samfélaginu með verkfallsvopnum og gíslatöku? 

Að hugsa sér að heill stjórnmálaflokkar skuli lúta leiðsögn  slíkra draumóra að við getum gert langrímaáætlanir um upptöku evru og inngöngu í ESB? Flestir telja að krónan verði okkar gjaldmiðill um fyrirsjáanlega framtíð.  Guðmundur Steingrímsson talar um það á Sprengisandi að hann vill langtímaáætlun þjóðarinnar um sínar hugmyndir til upptöku Evru og síðan ganga í ESB.

Það er gott að vita að báðar Samfylkingarnar eru sammála um þessa björtu framtíðarstefnu.En er það þetta sem þjóðin vill? ég er ekki svo viss.

Allt þetta kemur í framhaldi af þeim sannleiksorðum Bjarna Benediktssonar á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins að krónan hafi forðað Íslendingum frá atvinnuleysi sem allstaðar í ESB verið miklu meira en hér.  Þá kemur Guðmundur Steingrímsson með þá fullyrðingu að Evran eigi enga sök á atvinnuleysi á Spáni. Þar sé bara eðlilegt langtímatvinnuleysi.

Staðreyndin er hinsvegar sú að hér er kannski 5 % atvinnuleysi á móti 12 % að meðaltali í öllum ESB ríkjunum. Nei, þeta kemur Evrunni ekkert við segir Guðmundur.

Hanna Birna spyr á Sprengisandi hvort nýtt hægri framboð sé endilega bara klofningur úr Sjálfstæðisflokknum þegar á að stofna hægri flokkur um inngöngu í ESB. Innganga þangað sé ekki stefna Sjálfstæðisflokksins  og þetta geti haft alveg eins áhrif á Bjarta Framtíð.  Nú ber svo til  að Guðmundur  Steingrímssona viðurkennir að svo geti farið enda hníga kannanir að því. En þá skýrist líka hversvegna Benedikt Jóhannessyni og hans félögum er orðið illsætt í Sjáflstæðisflokknum. Þeir eiga þar ekki heima lengur og eru því til lítils gagns fyrir þann flokk.Og mér  er líka farið að standa nokkur furða af málflutningi Þorsteins Pálssonar sem mér finnst vera talsvert á öðrum nótum en annarra flokksmanna.

Ég held að stofnun nýs flokks Benedikts Jóhannessonar sem hann boðar við fögnuð viðstaddra á fundi Samfylkingarinnar á Austurvelli sé mér bara  líka fagnaðarefni þó kannski af öðrum ástæðum sé.. 

 


You aint seen nothing yet

sagði Steingrímur Jóhann þegar hann kynnti byrjun á skattahækkunarferli sínu og vinstristjórnarinnar.

Nú notaði Bjarni Benediktsson formaður  Sjáflstæðsflokksins þessa klissíu Steingríms til að boða breytingar sínar í hina áttina.

Merkilegt ef þjóðin sér engan mun á þessum tveimur stjórnmálamönnum. Annarsvegar stefna Steingríms Jóhanns og um leið  vinstrimanna um allan heim: Tax and spend!

Á hinn bógin er stefna íhaldsmanna að treysta fólkinu betur en ríkinu ril að ráða málum fólksins. Fyrirheit formannsins um afnám vörugjalda og tolla voru eins regn í eyðímörk síhækkandi gjalda og áþjánar.

Vonandi fær fólkið að sjá margt til viðbótar áður en gullfiskaminnið tekur völdin.

Þessi ríkisstjórn er bara að byrja.

You aint seen nothing yet!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 3421398

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband