Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011
25.4.2011 | 18:41
Oft er ljótur draumur fyrir litlu efni.
Þetta datt mér í hug þegar ég les framtíðarsýnir Þorsteins Pálssonar í Vísi.
Hann segir m.a.:
."Kannanir benda til að um það bil sextíu hundraðshlutar þjóðarinnar vilji ljúka aðildarviðræðunum og um fjörutíu af hundraði styðji aðild nú þegar. Aðeins tæpur helmingur þessara kjósenda fylgir Samfylkingunni að málum. Ívið stærri hluti fylgir öðrum flokkum. Þannig eru stuðningsmenn aðildar og aðildarviðræðna stór minnihluti í kjósendahópi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins og talsverður hluti kjósenda VG.
Eins og sakir standa hafa þessir minnihlutahópar þriggja flokka að mestu frosið úti frá áhrifum á Alþingi með þetta mál. Að öllu óbreyttu verður sama staða uppi á teningnum eftir næstu kosningar. Evrópumálin verða þá enn í uppnámi og stefnuleysi í peningamálum allsráðandi. Að sjálfu leiðir að líklegasta stjórnarmynstrið eftir kosningar er áframhaldandi seta núverandi stjórnarflokka með Framsóknarflokknum.Eigi Alþingi að endurspegla viðhorf þjóðarinnar þarf að finna Evrópusjónarmiðum kjósenda fjögurra flokka eðlilegan farveg til áhrifa þar. Í ljósi þess að aldarfjórðung tók að leiðrétta kjördæmaskipanina má draga í efa að sú lýðræðisumbót sé í augsýn."
Hvaðan í veröldinni kemur Þorsteini sú vissa að Evrópusinnar séu stór minnihluti í Sjálfstæðisflokknum? Ekki sá hann það sama og ég sá á Landsfundinum þegar yfir 95 % fundarmanna lýstu andstöðu við aðild. Enda sá ég ekki Þorstein á þeim fundi. Og hvar er þessi hluti Evrópusinna í hjá stórum hluta kjósenda VG? Hvernig getur Steingrímur haldið þessu svona leyndu?
En að mér setur hroll þegar ég les framtíðarsýn Þorsteins Pálssonar um áframhald stjórnarsetu núverandi stjórnarflokka með hjálp Framsóknar. Ekki er þetta uppörfandi nú í páskahretinu.
En oft getur ljótur draumur verið fyrir litlu efni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2011 | 13:15
Hvaða þjóð þarf óvini ?
sem á slíka vini?
Eftirfarandi tilvitnunum er stolið af síðu Gunnars Rögnvaldssonar sem hefur tínt saman eftirtaldar tilvitnanir í ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur í erlendum fjölmúlum:
25.4.2011 | 10:22
Stjórnmálaflokkar
eru aldrei nauðsynlegri en einmitt núna. Þjóðin er sundruð og ráðvillt um þessar mundir. Á Alþingi fer fram einhver farsi sem mun engu frekar skila, hvort sem menn stofna þar fleiri nýja þingflokka eða færri. Það situr bara allt of mikið af stjórnmálagæfulausu fólki þar inni um þessar mundir. Þetta fólk nær ekki saman um neitt og elur því á sundurlyndi og vonleysi almennings, sem kennir stjórnmálaflokkum um allt illt .
Skemmst er að minnast flokkaflórunnar á Ítalíu á sínum tíma? Þar var alltaf stjórnarkreppa. Hvernig er það í föðurlandi Evrópusambandsins, Belgíu? Er einhver stjórn þar? Flokkafjöldi og flokkasmæð er ávallt til bölvunar. Því eiga menn að styrkja stóra flokka til áhrifa.
Hvernig sjá menn fyrir sér Alþingi, þar sem svona 10-15 nýir flokkar væru samankomnir? Það þyrftu svona 6 að koma sér saman um að mynda ríkisstjórn. Myndi ekki verða talað eitthvað um hrossakaup þá?
Sumt fólk heldur því fram að stjórnmálaflokkar séu ekki tilbúnir að stjórna Íslandi. Stenst þessi fullyrðing? Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylking og Framsóknarflokkurinn eru ágætlega vel starfhæfir flokkar. Allt skipulagið er fyrir hendi og getur fúnkérað fyrirvaralaust. Flokkarnir velja sér forystumenn um allt land og þar finnast innanum ágætir menn og konur. Með því er ekki sagt að þetta fólk sé alltaf perfekt, það er langt í frá. En þetta eer fólk sem vill reyna að veita góðum málum lið. En til þess þarf skipulag og sameinað átak. Þar koma stjórnmálaflokkar til sögunnar.
Menn hugsi sér gamlan teinæring. Þýðir nokkuð fyrir einn mann eða tvo að fara á sjó á slíkri fleytu? Eða reyna brimlendingu? Verða menn ekki að stilla saman strengi ef róa þarf lífróður? Stækkið svo teinæringana eins og ykkur lystir og þá erum við komnir með stjórnmálaflokka, þar sem menn geta valið sér skipsrúm. Einhver þvottabali með einn eða tvo kalla innanborðs er ekki líklegur til að fiska mikið þegar skipin halda á sjó.
Ef flokksmenn eru nógu margir saman, þá er minni hætta á sífelldum gíslatökum og blackmail uppi eins og í litlum flokkum. Þá eru meiri líkindi til að eitthvað takist. Sérstaklega ef vel tekst til með skipstjórann eða forystumennina. Menn veljast í flokka eftir grunngildum og eru skuldbundnir til að starfa í anda þeirra meðan þeir eru um borð. En það er því miður svo að þingmenn og sveitarstjórnarmenn halda stundum eftir kjör sitt, að þeir hafi þegið vald sitt frá Guði og þeir séu engum háðir. Slíkt þroskaleysi er því miður algengt og verður því algengara sem menn eiga styttri stjórnmálareynslu að baki.
Margir virðast halda að stjórnmál byggist á raketturæðum í púlti Alþingis. Eins og til dæmis Steingrímur var með hér á árunum áður í ungmennafélagsstíl. Stjórnmál eru hinsvegar sameiginlegt puð að málefnum og sameiginlegri grunnstefnu. Rökræður í ró og næði eru líklegri til árangurs en ekki sífellt "sound and fury" sem eru fremur í ætt við skemmtiatriði fyrir áhorfendur.
Þessi ríkisstjórn sem sem nú situr hafði fallega grunnstefnu. Hvað er með hana núna? Breytir það einhverju ef hægt er að reka Steingrím og setja Ásmund eða Lilju í staðinn? Gengur þá allt upp? Senda Jóhönnu í frí og setja Össur á spíssinn? Hefur einhver trú að að núverandi Alþingi geti myndað stjórn? Verða ekki hlutföllin að breytast fyrst?
Það er því áríðandi að menn fari að gera sér dælla við stjórnmálaflokka en áður og reyni þannig að hafa áhrif til hins betra. Hætti þessari slagorðasíbylju um vonda flokka, flokkseigendur og önnur uppnefni.
Flokkar eru forsenda fulltrúalýðræðisins. Þeir þurfa að vera stórir en ekki smáir. Og mönnum þarf að þykja vænt um þá og virða þá ofar sjálfum sér. Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér.
Stjórnmálaflokkar eru nauðsynlegir vilji menn ná árangri. .
24.4.2011 | 14:57
Ásmundur Einar
heldur því fram í Mogga að það komi engum við þegar þingmaður segi sig úr þingflokki. Þeir eigi bara að fara eftir sannfæringu sinni samkvæmt stjórnarskrá.
Ég er mjög ósammála þessu sjórnarmiði. Menn fara fram fyrir einhvern ákveðinn stjórnmálaflokk og fá félagsmennina til að kjósa sig útá það. Síðan gefa þeir frat í flokkinn og vinna gegn honum á vettvangi.
Þetta er ekkert prívatmál þessara liðhlaupa. Þeir eru að svíkja kjósendur sína og eiga að sjá sóma sinn í að hypja sig af þinginu strax. Ásmundur á að hypja sig heim til sín, Lilja Mós, Atli Gísla og Þráinn Bertelsson líka. Og klofningsfólkið úr Hreyfingunni líka. Þetta fólk situr þarna inni með svikum við það fólk sem kaus það.
Burt með flokkssvikara hvort heldur er af Alþingi eða í sveitarstjórnum. Flokksstjórnir eiga í raun og veru að geyma undirritað afsagnarbréf frá hverjum fulltrúa sinna sem hægt er að framvísa fyrirvaralaust ef fulltrúinn rýfur trúnað við flokk sinn.
Ásmundur Einar Daðason og aðrir liðhlaupar: Snautiðið heim !
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
24.4.2011 | 10:31
Ófullir við ábyrgðarstörf
segir Jón Magnússon í bloggi sínu, að franska óeirðalöggan eigi framvegis að vera. Félagar í henni mega ekki smakka það meðan þeir eru að berja mótmælendur. Þeir létu mynda sig við slíkt athæfi kallarnir og þessvegna er skrúfan sett á þá. Aðrar löggur mega fá sér dropa og dropa meðan það er ekki tiltökumál. Á Íslandi er maður sem drekkur einn sjúss búinn að missa öll mannréttindi og er útlægur með það sama.
Hafa menn nokkurntímann velt því fyrir sér, að flestar þessar reglur um áfengisnotkun eru til komnar vegna minnihlutans sem getur ekki farið með það. Það má enginn drekka bjór og keyra bílinn sinn heim, þó að 96 % fólks geti það alveg. En það eru 4 % fólks sem er klikkað, óabyrgt, illa siðað og óuppdregið og hættulegt öðru fólki hvort sem það er fullt eða edrú. Þetta er bara staðreyndin. Hérna er löggan með allt þetta þeferí af saklausu fólki bara til þess að nappa einhvern af þessum 4 % og öll lög sniðin eftir þeim.
Það er líka bannað að keyra bíl eftir drykk í Ameríku. En löggan þar er ekkert að abbast uppá fólk á heimili sínu, sem er líka bíllinn, meðan það gerir ekkert af sér í umferðinni. Sem gengur alveg þokkalega viðast hvar. En ef þú gerir eitthvað af þér og ert fullur, þá Guð hjálpi þér. Þessvegna tekur fólkið þar yfirleitt ekki sjansinn. Nema 4 % fólkið,sem er líklega þar kannski stærri hópur, sem fer aldrei eftir neinu.
Ábyrgur maður drekkur ekki þegar hann þarf að gera eitthvað sem hætta getur stafað af. Keyra bíl, fljúga flugvél eða þessháttar. 4 % fólksins drekka hvernig sem á stendur og er sumu skítsama þó það drepi einhvern. Þessi hópur stendur fyrir öllu havaríinu í þjóðfélaginu. Hitler tók þenna hóp úr umferð og geymdi þá í búðum. Í þriðja ríkinu gat hvaða kona sem er gengið um hvaða garð sem var án þess að óttast árásir þekktra nauðgara eða þekktra glæpamanna. Gamlir Þjóðverjar minntust þessara tíma sem jákvæðra burtséð frá öðru sem fylgdi.
Ég var að horfa á mynd af Kúbukrísunni. Þar sést að Kennedy og samstarfsmenn fengu sér í glasið meðan þeir voru á fullu að reyna að aftýra heimstyrjöld. Get ég vitað hvenær Bandaríkjaforseti eða Pútín fá sér í glas? Hitler var bindindismaður, Churchill drakk stundum flösku á dag, Truman sló ekki höndinni á móti "a small libation" osfrv. Áhrif drykkjar eru ekki þau sömu á alla menn. Menn eru ekki jafnir, það er staðreyndin.Vín gerir oft góða menn betri en vonda menn verri.
En það á að vera sjálfsagt að menn séu áberandi ófullir í vinnunni, t.d á Alþingi. En það er langur vegur á milli hófs og óhófs við ábyrgðarstörf og jafnvitlaust að vera með einhverja fanatík þegar hún á ekki við alla, hvað þá mikinn meirihlutann.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.4.2011 | 17:59
Riverjet
bátar eru farnir að sigla á Hvítá á svæðinu kringum Brúarhlöð. Þetta eru mikil kraftaskip, knúnir mörg hundruð hestöflum og spýta vatni niðurúr sér til að drífa sig áfram. Einhver munur en að fljóta á einhverjum tuðrum niður ána eins og búið er að gera í mörg ár.
Í Hvítá höfðu bændaskammirnar hérna uppfrá einhverja laxveiði í net hér áður fyrr. En mikið af laxi gengur upp Hvítá allt upp að Gullfossi held ég. Laxinn á víst það erindi eitt í ána að hrygna og til að láta veiða sig. Hrognin eru líklega einhverstaðar vel geymd á botninum og verða að stórlöxum í fyllingu tímans.
Sjálfsagt rótar þessi bátur ekkert í þessu vistkerfi, er algerlega vistvænn og algerlega óviðkomandi búandköllunum á árbökkunum. Allt hafa eigendurnir bátanna sjálfsagt þaulrannsakað áður og látið Veiðifélag Árnesinga vita eða Drífu á Torfastöðum. Því ekki höfðu þeir neitt fyrir því að bera þennan rekstur undir neinn af þeim landeigendum sem að svæðinu liggja enda framangreindir aðilar best til þess bærir að fara með málefni þeirra og laxveiðihagsmuni.
Það er áreiðanlega svaka gaman að fá sér bunu í þessum bátum, kostar bara fjögurþúsund krónur kortérið fyrir hvern af 10 farþegunum borð. Enda fyrirtækið búið að opna nýjar höfuðstöðvar í glæsihúsi í Reykholti. Bendir þetta til þess að starfsemin gangi vel og er eigendunum óskað til hamingju með þetta.
Er ekki tilvalið að útvíkka þessa starfsemi. Svona bátar gætu orðið mikill yndisauki á Þverá-Kjarrár svæðinu og Norðurá líka. Það er hundleiðinlegt að standa þar með laxastöng fyrir hundraðþúsundkall og ekkert ber kannski fyrir augun nema ein og ein kría. Þá kæmi svona bátur með boðaföllum og drunum þannig að menn féllu í stafi yfir ósköpunum og lífgaði upp daginn. Þannig gætu líka þeir sem ekki eiga hundraðþúsundkalla fengið að sjá þá dásamlegu hluti af landinu sem aðeins þeir ríku sjá allajafna á þessu svæði.
Blanda væri líka tilvalin fyrir svona útgerð. Svo má benda á að þetta myndi lyfta öllu umhverfi Sogsins og svo auðvitað myndi umferð svona báta lyfta öllu vatnasvæði Hvítár og Stóru Laxár allt til ósa.
Það er gleðilegt þegar framtakssamir menn brytja uppá nýjungum í svona sprotafyrirtækjum í sátt við sjálfa sig, náttúru landsins og þá sem í landinu byggja.Hér mun ekki þurfa nein umhvervismöt eða önnur leiðindi sem oft er verið að rövla um þegar eitthvað á að gera.
Allir um borð. Riverjet, það er kikkið sem þig vantar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2011 | 12:56
Nýjir vendir
óskast þegar í stað, skildist manni á máli rithöfundanna sem voru í útvarpinu áðan. Allt traust fólks á Alþingismönnum væri farið því að miðjan í þjóðfélaginu hefði skaddast. Ein konan í hópnum lýsti því að þetta væri eins og með manninn sem héldi framhjá konunni sinni. Ef hún fyrirgæfi honum og hann lofaði að hætta framhjáhaldinu væri samt allt í ólagi, konan væri sífellt tortryggin og hann fyndi það greinilega og gæti því hrasað aftur. Sama væri með drykkjumanninn sem lofaði að hætta en dytti samt í það.
Okkur vantaði því fólk sögðu rithöfundarnir sem við gætum treyst því allir og einhveer nýfrjálshyggja hefðu brugðist okkur. Við yrðum að fá svoleiðis fólk á þing sem við gætum treyst að héldi ekki framhjá og væri ekki sífellt á einhverju fylleríi. Ekkert hefði breyst í þjóðfélaginu síðan í hruni , þeir ríku væru enn ríkir en þeir fátæku fátækari og öryrkjar hefðu það líka verra. Þetta fólk yrði að fá meiri peninga svo það gæti keypt sér bók og helst miða í Hörpuna líka.
Þarna er þá kominn uppskrift að þingmanni sem hægt er að uppfylla. Ef maður er orðinn svo gamall að maður er orðin jafnfótkaldur og óbrúklegur til kvenna og Egill Skallagrímsson lýsti sjálfum sér í kvæði sínu, orðinn til viðbótar svo leiðinlegur að enginn vill hvort sem er drekka með manni, er maður þá ekki kominn áleiðis með að standast væntingar rithöfundanna ? Er slíku fólki ekki best treystandi?
Rithöfundarnir sögðust vissir um að Jóhanna og Steingrímur vildu gera vel fyrir þjóðina. Þau bara gætu það ekki. Allt hefði mistekist hjá þeim. Það yrði því að fá þetta nýja fullkomna fólk sem væri ekki með þessa svika-eiginleika eins og allir þessir Alþingismenn. Þjóðin væri gersamlega búin að fá nóg af þessu liði og tapa öllu trausti sínu á því. Við yrðum að velja nýtt fólk til forystu.
Bingó, þá vitum við hvernig á að velja Alþingismenn. Helst náttúrulausir bindindismenn koma til greina. Þeim geta rithöfundarnir treyst. Þeir verða ekki með þessi sífelldu svik og framhjáhöld eða vera fullir í vinnunni. "Því flestir eru bara venjuleg svín" eins og Nóbelsskáldið sagði í kvæðinu.
Góður vinur minn Sveinn K. í Völundi sagði eitt sinn þegar upp komst um fjárdrátt hjá þekktum bindindismanni, að menn gættu ekki að því að summa lastanna væri alltaf konstant. Jón vinur minn sagði líka að maður ætti alltaf að gjalda varhug við að trúa bindindismönnum fyrir peningum, því þeir treystu ekki sjálfum sér fyrir brennivíni. Ég man nú ekki hvort hann gaf kvennamönnum sérstaka peningaeinkunn, né heldur að ég muni hvaða álit hann hafði á fyllibyttum og flögurum þegar þeir eiginleikar mættust í sama manninum. En eru slíkir menn oftar en ekki í hávegum hafðir með íslenskri þjóð, sérlega ef þeir eru svo skáld eða stjórnmálamenn til viðbótar?
Guðbrandur Jónsson stakk uppá því að sérstöku salti yrði blandað í fæðu manna sem gerði þá heiðarlega, góðviljaða og vitra. Aðspurður um þetta salt sagði hann að það væri að vísu ekki til ennþá en menn hlytu að geta fundið það upp úr því að menn vissu til hvers ætti að nota það. Líklega verður það seint sem menn fái pottþétt betri pólitíkusa en þá sem maður eru búinn að missa. Kristinn í Björgun sagðist ekki hafa rekið vélstjórann sem tók negluna úr skipinu hans svo það sökk næstum því,- Hann gerir það pottþétt ekki aftur" sagði Kiddi.
Hugsanlega gætu rithöfundarnir skoðað skoðanakönnunina til hægri hérna á síðunni. Eru þeir vissir um að einhverjir nýir frambjóðendur verði endilega betri en þeir sem flest atkvæðin fá þar?
Trúum við ekki á nýja leiðtoga þar til að þeir bregðast? Trúum við ekki alltaf á nýju fötin keisarans?
Sópa ekki nýir vendir alltaf best?
20.4.2011 | 19:31
Bananastappa með lýðræðisívafi
er eiginlega það lýðræðisform landsins sem að okkur kjósendum snýr.
Hvar í veröldinni myndi svona ríkisstjórn eins og sú sem hér situr, sem er búin að tapa tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum í röð sitja áfram ? Að maður ekki tali um að hún höktir á hækjum dag fra´degi eins og bandarísk sápuópera og er í sjálfu sér sundurþykk í hverju máli. Gersamlega búin að ganga fram af meirihluta landsmanna að því að skoðanakannanir sýna.
Það er leitun að nokkru stefnumáli sem ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms hefur ekki svikið. Nema það að keyra Íslendinga áleiðis til Brüssel enda virðist annað ekki skipta hana nokkru máli. Tíuþúsund flúnir land og 14.000 atvinnulausir því þolanlegt ástand að hennar dómi. Hingað streyma agentar frá Noregi til að krækja í besta fólkið og halda fjölmenna fundi eins og Vesturfaraagentarnir gerðu á nítjándu öld.. Eftir sitjum við aumingjarnir, aldraðir og öryrkjar. En þeir hópar hafa sýnt mestan vöxt á síðustu árum. Sumir eru farnir að tala um öryrkja sem nýja atvinnugrein vegna gríðarlegrar og furðulegrar fjölgunar í stéttinni á undanförnum misserum.
Stjórnarfarið á Íslandi um þessar mundir er eiginlega besta falli hrein bananastappa með lýðræðisívafi.
19.4.2011 | 22:29
Uffe minn!
hvernig geturðu verið svona leiðinlegur ? Ég sem hef komist næst því að verða Evrópusinni af að hlusta á þig á Hótel Sögu í gamla daga.Þá varstu svo fjandi skemmtilegur. Nú ertu bara fúll á móti þó þú sért ennþá flottur. Segir að við Íslendingar verðum að borga Icesave. Er það svo?
Stofnuðum við ekki Tryggingasjóð Innistæðueigenda löglega? Var ekki greitt í hann samkvæmt lögum? Er nokkur ríkisábyrgð á slíkum sjóðum hjá þér eða í öðrum Evrópuríkjum?
Hvernig getum við þá skuldað annað en það sem er í sjóðnum ? 25 milljarðar eða svo? Við urðum að þykjast hafa ríkisábyrgð á innistæðum á Íslandi af því að Geir Haarde sagði það til að róa okkur niður því við vorum að missa stjórn á okkur.Algerlega Force-Meilleure ábyrgðarlaus yfirlýsing því Alþingi samþykkti svo aldrei neina ríkisábyrgð. Þá eer ekki og hefur aldrei verið nein ríkisábyrgð á innistæðum samkvæmt stjórnarskránni.
Þetta er bara bull í þér Úffi minn. Það ert þú sem ert galinn en ekki hann Óli Forseti. Þú segir að hann sé lýðskrumari þegar hann vísar málinu til þjóðarinnar í andstöðu við Alþingi. En hvað ertu þá sjálfur þegar svo illa horfir í Evrópusambandinu eins og núna ?
Það breytir engu þótt Lykketoft taki undir með þér og segi að Ólafur Ragnar sé galinn. Ólafur bjargaði íslensku þjóðinni frá sjálfsmorði ekki einu sinni heldur tvisvar þegar þingið hafði tapað glórunni. Margrét Þórhildur gæti tæknilega alveg gert það sama hjá ykkur.
Hvernig ætlar þú að taka á því Úffi minn þegar múslímarnir fara að heimta að þú samþykkir sjaríalög ? Ég ætla að sjá hvað þú gerir þá. Samþykkir sjálfsagt eins og sannur krati. Ætli einhver verði ekki feginn að hafa Þórhildi Drottningu þegar að því kemur?
Við Íslendingar borgum ekki Icesave Úffi minn hvað sem þú og Lykketoft talið illa um Óla Forseta og reynið að snúa útúr staðreyndum málsins.
Við endurkjósum hann Ólaf Ragnar sem Forseta. Þó ekki nema væri Úffa og Lykketoft til skapraunar. Þjóðin verður einhuga að baki Ólafi fyrir að bjarga þjóðinni ekki einu sinni heldur tvisvar! Minna má eki vera !
18.4.2011 | 18:39
Skrípamyndin af Siv
finnst mér ekki vera þess virði að framsóknarmenn og feminístar séu að æsa sig. Það þarf ekki mikið innsæi til að sjá hana í svona spaugilegu ljósi þar sem hún stendur og veifar til ríkisstjórnarinnar um að taka sig með. Gegn borgun auðvitað, hún fer ekki að styðja Jóhönnu og Steingrím án þess að fá eitthvað fyrir það sjálf.
Í Bandaríkjunum má segja hvað sem er um Forsetann og hann verður að þola það óbætt. Hann má ekki bera hönd fyrir höfuð sér því það fylgir embættinu. Hann getur ekki höfðað meiðyrðamál. Ég hugsa að hann geti ekki einu sinni sent CIA til að berja teiknarann eins og múllarnir senda´leigumorðingja af stað ef einhver teiknar skrípamynd af spámanninum. Við erum svo hræddir við þá að enginn íslenskur fjölmiðill þorði að birta myndirnar úr Jyllandsposten að því ég best veit. Skaðaðu ekki skálkinn svo hann skemmi þig ekki.
Mér fannst ekkert að þessari mynd af Siv og hrein hræsni eða heimska að vera að geysa sig yfir þessu. Enda vekur það enn meiri athygli á hvað Siv er í raun að gera. Hún er nefnilega að gera akkúrat þetta, selja sig pólitískt.
Það er engin skrípamynd heldur grafalvarleg staðeynd fyrir alla þjóðina.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko