Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2011

Baugsmiðlar gegn Bjarna

Benediktssyni. Þeir eru byrjaðir krossferð sína gegn formanni Sjálfstæðisflokksins í tilefni komandi Landsfundar flokksins.  Það er reynt að grafa undan trausti á formanninum með því meðal annars að hundelta Hönnu Birnu og reyna að fá hana til að taka afstöðu gegn formanninum, boða framboð á landsfundi og þar fram eftir götunum, eins og Sigurjón Egilsson reyndi ákaft í morgun á Bylgjunni.Ekki er að efa að Egill Helgason fer að blanda sér í framboðsmál flokksins og fleiri slíkir.

Útsendarar rógsliðsins  hringja í almenning allra flokka og fiska eftir óánægju með Bjarna. Reyna að koma því inn að einhver stór armur í Sjálfstæðisflokknum sé óánægt með afstöðu Bjarna til Evrópusambandsumsóknarinnar. Þessi stóri armur vilji losna við formanninn og reyna því að hafa áhrif á almenningsálitið. Ekki skiptir þessi öfl máli í þessu sambandi að Hanna Birna er ekki í Evrópusambandssöfnuðinum frekar en Bjarni. Ekki frekar en þau 95 % sem greidu atkvæði á móti Evrópusambandsumókninni á síðasta landsfundi. 

 Þá reyndi þessi litli sértrúarsöfnuður innan Sjálfstæðisflokksins að lauma inn allskyns málum til að styrkja sig í sessi og blekkja um stærð sína. Plöntuðu sínu fólki í alla umræðuhópa og reyndu að sveigja umræðurnar til ESB og láta sem þetta væri mál málanna hjá Sjálfstæðisflokknum.  Þetta tókst ekki  og því var hent í hafsauga með afgerandi hætti. Einn söngvari rauk á dyr en ég sá engann fara á eftir honum hvað þá að nokkur minntist á söknuð eftir honum. Nú segist hann hafa tekið með sér hundrað manns og ætlar í framboð!

Sjálfstæðismenn átta sig á því, að hér er um skipulega rógsherferð að ræða sem Samfylkingin magnar upp. Sjálfstæðisflokkurinn á eftir að kjósa sér landsfundarfulltrúa. Að vanda verður það fólk alveg einfært um að velja sér formann og skítkastið á Bjarna sem nú stendur yfir  ræður ekki úrslitum. En mikilvægt er að Sjálfstæðismenn geri sér grein fyrir því að umræðan um að fella Bjarna kemur ekki frá  Sjálfstæðisflokknum eða umhyggju fyrir honum heldur Samfylkingunni og Baugsmiðlunum  sem hamast nú í örvæntingu yfir fylgishruni sínu og ósigri í Evrópusambandsmálsinu. Það mál flækist ekki fyrir flokknum, svo einhuga er Sjálfstæðisfólk um það . Mun erfiðara mál fyrir þingmenn flokksins er framganga þeirra í Icesave málinu. Það er málið sem Bjarni Benediktsson og já mennirnir standa frammi fyrir og ekki útséð um hvernig úr því spilast.

Landfundur nálgast óðum Sjálfstæðismenn. Við förum þangað ekki undir púkablístrum Baugsmiðlanna og Samfylkingarinnar heldur undir merkjum Sjálfstæðisstefnunnar. 

Hún dugar okkur enn sem fyrr.


Árni Páll góður

fannst mér í dag hjá Sigurjóni Egils. Hann sagði að Bretar og Hollendingar væru að fá meiri peninga en þeir hefðu upphaflega farið fram á vegna Icesave. Þeir væru að fá allra innistæður og að auki inn í vextina.Hversvegna eiga þeir að fara í mál við okkur?

Ég spyr, hver kemur þessu til skila til þessa fólks? Hvað er ríkisstjórnin að gera til að kynna þetta fyrir þessum þjóðum? Verðum við ekki að senda Ólaf Ragnar í víkingu að tala máli okkar svo það skiljist? Eða eigum við von á því að Hæstiréttur dæmi neyðarlögin af? Hvernig skyldi það enda?

Og hvað líður svo skaðabótakröfum okkat vegna hryðuverka Breta á eignum Landsbankans? Er búið að reikna þá kröfu út?

Ég vildi að Árni Páll hamri þetta járn áfram. Hann getur bara batnað.


Stóra landrisið hans Steingríms

sem hann boðaði með bægslagangi í mörgum blaðagreinum í ágúst 2010 undir mottóinu "Landið tekur að rísa",lítur þannig út:

Hagvöxtur
2009 -6.7 %
2010 -4.0 %
2011 -2.8 % fyrri helmingur

Þetta er ekki íhaldsáróður heldur tölur frá Hagstofunni. Þjóðarauðurinn hefur rýrnað um 15 % síðan eftir hrunið, alveg án áhrifa gengisfallsins og gjaldeyrishaftanna sem hann er búinn að lofa að verði hér næstu 4 ár.

Atvinnuleysi fer minnkandi segir hann líka. Vissulega léttir á því þegar þúsundir flýja landið.

Fjárfesting fer stöðugt minnkandi. Bankarnir eru lokaðir og ávaxta sitt fé í Seðlabankanum. Enda vill enginn fjárfesta undir stjórnvöldum sem ekki er hægt að treysta, ekki hægt að trúa og ekki hægt að losna við heldur. Sjávarútvegurinn er í uppnámi og fjárfestir ekki meðan úthlutað er strandveiðikvótum til manna sem höfðu áður selt hann.Vont er þeirra ranglæti en verra er þeirra réttlæti. Ríkisstjórnin er heyrnarlaus á báðum þegar mótmælin berast úr öllum áttum.

Sómakærir menn myndu skammast sín og hypja sig og hætta að kvelja þjóðina. Viðurkenna vanmátt sinn. Ekki þetta fólk. Eftirlaunahugsjónin virðist sameina ríkissjórnarforystuna og límia við stólana.

Steingrímur er uppvís af svikum við hugsjónir flokks síns sem virðist þó óskiljanlega kæra sig kolóttann. Hann makkar við útlent auðvald um orkulindir þjóðarinnar og leyfir þeima að kaupa þær um bakdyrnar gegn því að kippt sé grundvelllinum undan álverinu í Helguvík. En á Suðurnesjum , lofaði hann stóru atvinnuátaki með Jóhönnu ekki einu sinni heldur oft.Það mætti skíra stálgrindina "Steingrímshöllina" í stíl við stjórnarsetu hans.

Bankapukrið og heimildarlausar ráðstafanir á skattfé eru öllum kunnar. Skattahækkanirnar hafa gert landið lítt aðlaðandi fyrir nokkurn mann sem á kost á öðru og fyrir dyrum standur meira af því sama undir merkinu "You aint seen nothing yet."

Sjóva, BYR, SpKef,VBS, Saga Capital, Icesave I,Icesave ll, Icesave lll. Allt saman ekki síðara efni í Landsdómsákæru á Steingrím J. Sigfússon sjálfan en það sem hann útdeildi Geir Haarde með kródílstárin í augunum.

Hvað ætlar þjóðin að hlusta á þennan mann lengi ennþá segja svart hvítt og hvítt svart? Er neðanjarðarhagkerfið að verða nægilega stórt til að láta fólkið sætta sig við ástandið eins og hverja aðra plágu?

Landið virðist tölulega ekki vera að rísa í ráðherratíð Steingríms J. Sigfússonar.

Miklu frekar er hægt að tala um stórt landsig.


Er ekki Steingrímur makalaus?

pólitíkus?

 

Getur maður ímyndað sér, að maður sem hefur svarið þess dýran eið í flokki sínum að Íslendingar skuli eiga sínar auðlindir sjálfir, skuli selja Magma 50 % í auðlindinni og vera með bréf uppá það. Var greinin um auðlindirnar sem samþykkt var á flokksráðsfundinum skilyrt með smáletri um það að formaður gæti þó í sérstökum tilvikum ...?

 

Nokkrum mánuðum síðar selur Íslandsbanki, sem er á algeru forræði Steingríms fjármálaráðherra, Magma 48 % í viðbót í auðlindinni.Og það er bara allt í fína lagi því Magma ætlar að koma sér upp breiðari viðskiptahóp heldur en Álverið í Helguvík. Þá virðist nokkuð ljóst, að þar verður lítið um framkvæmdir meðan verið er rafmangslaust. Svandís er væntanlega ánægð með þetta og flokksráð VG getur glaðst yfir stóriðjustoppinu sem þar með er komið til framkvæmda.

 

Hvernig VG undir formennsku Steingríms getur setið undir stöðugum áminningum um stefnu flokksins í Icesave og AGS og afstöðuna til Evrópusambandsins ber vott um frábæra hæfileika Steingríms til að smjúga sem áll um refilstigu stjórnmálanna. Það varla æmtir eða skræmtir í flokksmönnum sem hlýða sínum foringja í einu og öllu.

 

Formenn annarra flokka hljóta öfundast út í svona örugga floksstjórn. Hlýtur ekki fornaður sem getur stýrt flokki sínum á þennan hátt í andstöðu og mótsögn við öll sín grundvallarmál að vera alveg makalaus leiðtogi?

 

Skyldu vera fleiri svona makalausir?


Bragð er að þá barnið finnur!

þegar Jónas Kristjánsson, ristjóri og Evrópuprédikari viðurkennir að lessið standi illa á Evrópumerinni.

Jónas segir á sinni síðu:

" Evran og Evrópusambandið eru orðin að steinbarni í maga ríkisstjórnarinnar. Vandræði Írlands, Grikklands og fleiri ríkja fæla fólk frá umsókn um aðild. Meirihluti er gegn henni og hann fer vaxandi. Meðan Evrópa er í vandræðum, er engin von um, að þjóðin samþykki aðild, hverjir svo sem skilmálarnir verða. Setja þarf málið í hægagang og kanna aðild betur síðar, er aðstæður verða betri. Ég segi þetta sem sannfærður evrópusinni. Atkvæðagreiðsla við núverandi aðstæður gerir bara illt verra. Eyþjóðin er of heimsk og roggin til að skilja, að framtíð hennar felst í auknu samstarfi við nálægar þjóðir."

Það er löngu þjóðkunnugt að besserwisserinn Jónas hefur ekki mikið álit á að lýðræði henti Íslendingum, þar sem þjóðin er bæði svo "heimsk og roggin" að fella Icesave í tvígang. það verði því að bíða betri tíma til að greiða atkvæði um aðildina.

Ekki verðu þess vart að Jónas leiði hugann að hvernig við Íslendingar lítum út í augum viðsemjendanna? Þarna sitjum við og skálum við þá Evrópufurstana í kampavíni og étum dýrar krásir með þeim, tökum við milljörðum frá þeim til að kenna heimskum og roggnum lýðnum uppá Evrópusku og skömmumst okkar ekki hót fyrir að sigla svona undir fölsku flaggi? Hvað skyldi Þorsteinn Pálsson segja þeim í fréttum úti í Brüssel um Evrópuhug Íslendiinga? Sama og Össur?

Ég kynni því illa að koma á koma á annars manns heimili til að ræða við hann um fjálglega yfir rauðvínsglasi um leigu á húsinu og hestakaup til lengri tíma, hvernig húsið ætti að vera, hvaða tegund af þessu og hinu, hvernig hesturinn eigi að vera, hvaða litur á þakinu en svo vissi ég allan tímann að ég myndi aldrei efna neitt, því ég væri búinn að fá mér húsnæði annarsstaðar og búinn að kaupa mér hest og fengi nóg rauðvín annarsstaðar.. Mér myndi finnast þetta ómerkilegt fals.

Skildi enginn af okkur hvað Evrópumaðurinn var að fara þegar hann sagði að það væri eiginlega ómögulegt að halda þessum viðræðum áfram með landbúnaðarstefnuna hans Jóns Bjarnasonar í svona uppnámi.Var hann ekki að stinga uppá því að við gerðum hlé á viðræðunum þar sem þær hefðu engan tilgang?

Hversvegna er þá þráast svona við og hamast eins og naut í flagi við að herða á viðræðum þegar allir vita að sendinefndin er bara að ljúga og þvæla um hluti sem Íslendingar ætla sér ekkert með?

Erum við ekki bara dónar og eigum að skammast okkar og fara heim sjálfir áður en við verðum reknir heim ?

Jafnvel staurblindur Evrókrati eins og Jónas Kristjánsson efast um gildi áframhaldandi viðræðna?

Er ekki bragð þá barnið finnur?


Ragnar Önundar enn á ferð

með góða grein í Morgunblaðinu, þar sem hann fjallar enn um meðferðina á Húsasmiðjunni af mönnunum sem Aríon banki, sem er svo eiginlega gjaldþrota samkvæmt fréttum, er að afhenda lungann af matvörumarkaði landsmanna með því að selja þeim Haga, með Bónus og fylgifé.

Ragnar segir:

"Í grein minni í Morgunblaðinu á höfuðdaginn 29. ágúst sl. fjallaði ég um skuldsetta yfirtöku á þekktu íslensku fyrirtæki og rifjaði upp hvernig þeir sem höfðu þannig eignast félagið fyrir ekkert seldu fasteignir félagsins við yfirverði og leigðu þær til baka á samsvarandi hærri leigu en nam markaðsleigu. Andvirði eignanna notuðu þeir til að borga sjálfum sér út háar fjárhæðir sem arð. Hvort tveggja var vitaskuld ólöglegt og raunar refsivert. Stjórnvöld verða að bregðast við, því annars verður slík sjálftaka endurtekin.....

....Ríkisskattstjóri gefur út ritið Tíund. Í desember 2008 birtist þar grein eftir Aðalstein Hákonarson, fv. lögg. endurskoðanda, og nú forstöðumann eftirlitssviðs embættisins. Gefum honum orðið: »Sú var tíðin að þegar menn keyptu sér eignir þurftu þeir að borga fyrir þær. Í byrjun þessarar aldar fundu íslenskir viðskiptajöfrar leið til að komast hjá því. Þeir keyptu fyrirtæki og létu fyrirtækin sjálf, sem keypt voru, greiða kaupverðið í gegnum eignalausa samruna. Með því að hengja skuldir utan á fyrirtækin með samruna eftir kaupin, setja þau síðan á markað og selja hlutina í þeim til lífeyrissjóða og almennings á enn hærra verði en keypt hafði verið á, þrátt fyrir skuldsetninguna, gátu forvígismennirnir skapað sér miklar tekjur.«

Aðalsteinn lýsir þessu svo í smáatriðum og efast um réttmæti þess að færa upp viðskiptavild á móti skuldaaukningunni, í stað þess að færa eigið fé niður. Þá undrast hann yfirlýsingar stjórna þessara félaga um að »samruninn komi ekki til með að skerða hag lánardrottna«.
Þetta er mikilvægt atriði af því að skv. 76. gr. hlutafélagalaga má félagsstjórn »ekki gera neinar þær ráðstafanir sem bersýnilega eru fallnar til þess að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa eða félagsins«. Í þessu felst að stjórninni ber skylda til að gæta hagsmuna allra þeirra sem kröfur eiga á félagið, s.s. viðskiptavina, birgja, banka og starfsmanna. Þegar féflett félag fellur í fang banka eiga forsvarsmenn bankans að láta fara fram rannsókn og eftir atvikum kæra málið til lögreglu. Almenningur, sem leggja þurfti fram fé og ábyrgðir vegna bankanna, á rétt á að þeir fylgi þessum hagsmunum eftir. Aðalsteinn segir »vafamál hvort hlutafélag megi skuldsetja sig í þágu hluthafa þannig að þeir komist yfir eignarhald á félaginu« og vísar til 104. gr. hlutafélagalaga. Loks efast Aðalsteinn um lögmæti þess að draga frá til skatts vexti af þeim skuldum sem stofnað var til í tengslum við kaupin, þar sem þeir vextir eru óviðkomandi starfsemi félagsins og tekjuöflun. Líklega hefur embætti Ríkisskattstjóra gert athugasemdir við slíkar gjaldfærslur.....

Ekki er nema hálf sagan sögð. Féflettarnir seldu eignir félagsins á verulegu yfirverði. Þeir tóku þær síðan á leigu til baka á samsvarandi yfirverði til langs tíma. Andvirði eignanna notuðu þeir strax til að greiða sjálfum sér stórfelldan arð. Nú kunna einhverjir að segja sem svo að við sölu eignanna hafi myndast söluhagnaður og að skv. reglum sé heimilt að borga hann út sem arð. Þetta er rangt. Salan fór fram á yfirverði m.v. markaðsverð og leiga eignanna til baka fór einnig fram á yfirverði. Samningar voru til langs tíma og óuppsegjanlegir. Þarna mynduðust útgjöld til framtíðar sem ekki var varið til öflunar tekna og ekki komu rekstrinum við, á móti sýndarhagnaði af sölunni. Slík leiga var því ekki frádráttarbær til skatts að því leyti sem hún var umfram markaðsleigu. Meira máli skiptir þó að þann hluta leigugjalda sem var umfram markaðsleigu bar að gjaldfæra strax með núvirðingu og sú gjaldfærsla hefði þurrkað út sýndarhagnaðinn sem búinn var til með sölu eignanna. Ákvæði 99. gr. hlutafélagalaga voru brotin því ekki var um raunverulegan hagnað að ræða, auk þess sem reglur um reikningsskil og bókhald voru brotnar, allt í auðgunarskyni.

Bankar standast ekki nema þeir starfi í þágu samfélagsins. Þeir sem þeim stjórna fara með sparifé almennings sem er almannafé. Einkabankar verða af þessari ástæðu eins konar »hálfopinberar stofnanir«, hvort sem hluthöfum þeirra líkar betur eða verr. Alvörubankar lána atvinnufyrirtækjum vegna framleiðslutækja og rekstrar og fjölskyldum vegna húsnæðis. Á síðustu árum voru eignarhaldsfélög og innantómar skeljar misnotaðar í stórum stíl í samstarfi við stjórnendur í bönkum sem brugðust skyldum sínum. Heimilum voru lánuð gengisbundin lán til kaupa á íbúðarhúsnæði og jafnvel hlutabréfum. Þetta má ekki endurtaka sig.
Látum Aðalstein hafa síðasta orðið: »Nauðsynlegt er að koma böndum á þann stjórnlausa glannaskap sem skuldsettu yfirtökurnar og samruninn hafa verið og aðrar sambærilegar ráðstafanir eins og t.d. hjá fasteignaleigufélögunum.« Og loks þetta: »Við þurfum að tryggja að viðskiptalíf framtíðarinnar þrífist ekki á blekkingum og að sýndarveruleiki nái ekki tökum á stjórnendum þess.« #

Vill fólk virkilega flykkjast til að versla við þessa menn? Er því sama hvaða menn fela sig á bak við Bónusgrísinn? Vill það eiga viðskpti við bankann sem stendur að þessu öllu?

Ragnar Önundarson á þakkir skyldar fyrir að vekja athygli á því svínaríi sem viðgengist hefur og eer enn á fullri ferð bak við lokaðar dyr Aríon banka.


Atvinnustefna Steingríms J.

og ríkisstjórnarinnar blasir við eftir frásögn Agnesar í Morgunblaðinu í dag.

Þar er sýnt fram á svart á hvítu að Steingrímur j. hafði um það milligöngu að selja Ross Beatty 98.5 % í HS Orku gegn því að fyrirtækið myndi auka "fjölbreytileika í viðskiptamannahópi sínum". Sem þýðir á mannamáli, að fyrirtækið myndi ekki selja Century Aluminium rafmagn á álverið í Helguvík. Það yrði að bíða nýrra virkjana Landsvirkjunar.

Síðan hefur Steingrímur farið mikinn um suðurnesin með Jóhönnu og Jóhanna lofað 5-14.000 störfum eftir atvikum.

Stálgrindin stendur óhreyfð í Helguvík vegna baktjaldamakks og óbeinna stríðaðgerða Steingríms J. gegn Century Aluminium. Suðurnesjamenn mega minnast hans í bænum sínum þegar kemur að því að greiða atkvæði um atvinnustefnu Steingríms J. Sigfússonar.


Jóhanna brýst um fast

í Sjórnarráðinu. Hún virðist hafa sett sér að bylta sem allra mestu áður en hún kveður. Hún býr til ný lög og breytir ráðuneytum, skipar nefndir og ráð. Í stuttu máli reynir hún að rugla sem allra mestu í fyrirkomulagi stjórnsýslunnar, bara til að það sjáist að hún hafi verið hérna. Stjórnlagaþing, stjórnlagaráð, stýrishópar. Ég er löngu hættur að muna hvaða embætti hvaða ráðherra gegnir né hvað ráðuneytin heita nema að Jóhanna er forsætiss og svo eitthvað ótalmargt annað og svo auðvitað gamli Rauður sem er á sínum stað.

Ég hef orðið þess áskynja að mörgum blöskra aðfarirnar. Ég hugga mig við það, að öllu sé hægt að breyta til baka ef mönnum finnst ekki hafa orðið fögnuður af. Ráðstafnair Jóhönnu hafa auðvitað kostað morð fjár  það sem af er þó að árangurinn dyljist alþýðu eins og mér. 

Huggum okkur við að þessu linnir bráðum, þetta getur varla enst öllu lengur. Þetta fólk er auðvitað alveg samviskulaust í því að gefa frat í þjóðarhag. Það eina sem skiptir máli fyrir þau virðist vera að afsanna þá kenningu að vinstristjórnir hafa aldrei enst heilt kjörtímabil.Og svo auðvitað eru það eftirlaunin sem að minnsta kosti Steingrímur hefur leitt hugann að á fyrri tilverustigum að því að Davíð hefur látið í skína.

Rókisstjórnin heldur áfram að vera eins og fíll í glervörubúðinni, það bylur í öllu og brotnar gler og blásturinn bylur í eyrum. Svo verður einhverntíman  þögn og þá þarf að sópa brotunum út eftir fjörbrot Jóhönnu í pólitíkinni.

 


Verðtrygging


er eitthvað sem allir hafa alveg klára afstöðu til.Eftir því hvort þeir skulda eða eiga munar 180 gráðum á afstöðunni.Sá sem skuldar vill ekki borga. Sá sem á vill fá borgað.

Hér áður fyrr tókum við í Steypustöðinni á móti aleigu manns af götunni gegn einfaldri kvittun sem sagði að hann mætti sækja til okkar steypu þegar hann kærði sig um. Steypukrónan okkar var betri og eftirsóttari en Nordalurinn frá Seðlabankanum. Meira að segja íslenska ríkið tók þessar kvittanir upp í skatta. Fólk vissi að það var hægt að treysta okkur. Við vorum í rekstri í áratugi áður og myndum vera það lengi enn.Steypustöin hf var fyrirtæki sem menn gátu treyst.Punktur.

Svo fann Óli Jóh upp verðtrygginguna löngu seinna og hún Snorrabúð er löngu orðin stekkur með nýjum herrum. Svo kom hin nýja kynslóð til valda og allir vita núna að engum er að treysta. Allir svíkja og stela ef þeir geta. Og það sem verra er að það þykir fínt. Heiðarleiki er kominn úr móð.

Hveernig eru bankar núna? Í íslenskum banka á sparifjárreikningi er neikvæð ávöxtun vegna verðbólgunnar?. Hvernig getur launamaður geymt peninginn sinn núna? Verðtryggð bók er bundin í 3 ár og ber líklega enga vexti þegar búið er að borga fjármagnstekjuskatt af verðbólgunni.Steypan er komin úr móð og enginn treystir neinu lengur.

Gjaldeyrisreikningar bera enga vexti og eru heldur ekki í boði lengur í Alþýðulýðveldinu. Erlendis eru hvergi neinir innlánsvextir í boði nema neikvæðir. Víðast verður að borga bankanum fyrir að taka við innleggi.

Það er hugsanlega hérlendis hægt að kaupa ríkisbréf til skemmri tíma held ég. Hugsanlega er hægt að halda sjó svoleiðs með yfirlegu og sérfræðiráðgjöf.En skatturinn hirðir allt sem hetir hagnaður.

Hvar er stöðugleiki? Hvað er hagvöxtur? Er það ekki bara raunveruleg verðmætasköpun. Eitthvað er búið til sem var ekki tl í gær, Eitthvað sem selst og hægt er að eða andvirðinu í eitthvað sem öðrum kemur vel að framkvæma eða losna við.

Er réttlæti í því að fá lánað eitt kíló af indverskum hrísgrjónum og skila bara treikvart kílói til baka? Fær maður lánað aftur kíló? Verða einhver hrísgrjón í boði eftir slík viðskipti?

Hvað er rétt? Hvað eru réttir vextir? Sveinn B. Valfells vinur minn sagði eitt sinn við mig,að vextir ættu að vera svo háir sem til væru fífl að borga.

Er þetta ekki kjarni málsins? Verður ekki hver að meta það hvað hann treystir sér til? Er hægt að horfa fram hjá force-majeur í öllum viðskiptum.? Hér varð hrun. Það geta ekki allir borgað.Það þýðir ekki að berja dauðan hest, hann rís ekki á fætur. Það verður lánveitandi að vita líka áður en hann lánar. Var það greiði við ung hjón að lána þeim 100 % í nýrri íbúð? Eða unglingi nýjan bíl? Jú þau áttu einhverjar góðar stundir í þessu en við áfallið verður fólkið í vanda.

Það er nefnilega lífsnauðsynlegt að fólk geti sparað og lagt fyrir án þess að vera rænt. Þar komu verðtryggðu innlánin til sögunnar. Ef bankinn lánaði innlánið út tíu sinnum eins og hann getur vgna bankamargfaldarans, þá getur hann ekki lánað þetta út nema verðtryggt og tryggt. Nema að bankanum stjórni glæpamaður sem ætli beinlínis að stela.

Vigfús í Flögu sagði : Lamb er lamb og flaska er flaska. Svo var lika sagt í gamla daga:Ein alin, fjórir fiskar.

Verðmæling er alltaf erfið. Zoros felldi breska pundið.hann gerði ekkert ólöglegt Bankarnir okkar felldu krónuna 2007 í samsæri gegn almenningi. Þeir áttu að fara í tugthúsið þá fyrir það samráð sem var ólöglegt. Svo féllu svo sjálfir ári seinna en féllu bara ofan á okkur almenning. Stjórarnir og glæpamennirnir sluppu allir. Segjum við eitthvað annað en Sorrý Stína?

Lengst af var steinsteypa eina raunverulega eignin á Íslandi tuttugustu aldar.Hennar tími kemur aftur í einhverri mynd vegna þess að í henni felst óforgengileg eign sem flestir virða. Steinsteypan steypir manninn fastann og er lífsakkerið hans.

Málið er að við Íslendingar erum að lifa brjálaða ólgutíma og alhæfum vegna brotsjóanna sem yfir hafa riðið. Þegar við skoðum línurit um þróun gjaldmiðla yfir lengri tíma þá koma smákryppur á ferlana ðru hverju. En í heildina eru þetta línur sem hafa svipaða hallatölu sem sýna heimsverðbólguna sem er svo einfaldlega rýrnun allra gjaldmiðla veraldar. Allt sem skortur er á hækkar, allt sem nóg er af lækkar.Panta rei,-allt er á hreyfingu sögðu Rómverjar.

Svo skulum við muna að Keynes sagði að In the long run we are all dead.

Evran líka, verðtrygging eða ekki.


Huang Nabo fái ríkisborgararétt

á Íslandi með sértökum lögum.

Einfalt mál. Þetta gerði Davíð við Bobby Fisher.Það er ekkert mál miðað við að burðast með dótið á framfæri í Keflavík sem heimtar að fá að koma hér inn en við sendum ekki umsvifalaust til baka eins og ESB mælir fyrir um.

Þessi maður er þó virði þyngdar sinnar í gulli. Eftir það þurfum við ekkert að að vera að rekast í fortíð hans frekar en mannsins sem við gerðum að ríkisborgara án þess að hafa hugmynd um hver hann raunverulega væri.

Þá er búið að græja Grímsstaði.Huang Nabo fái ríkisborgararétt


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband