Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2018

Trump á siglingu

í skoðanakönnun ArcaMax

Thank you for voting and subscribing to The Righteous Right.


Question: Do you plan to vote to re-elect Donald Trump in 2020? 

Yes: 82.7% 
No: 16.9% 

Hversu mikið er að marka þetta?

Er Trump á þessari siglingu?


Öreigar allra landa-sameinist

Sólveig Anna Jónsdóttir Múla Árnasonar sver sig í gömlu byltingarættina.

Hún segir í ræðu hjá VG:

" Við búum inní fáránlegri veröld, veröld pólitískrar stöðnunar þar sem múrar hafa verið reistir utan um hugmyndaheiminn og honum lokað af, ekkert er í boði annað en meira af því sama jafnvel þótt fólki um víða veröld bjóði við og hafni alfarið nýfrjálshyggjunni og þeirri mannkynssögulegu risalygi sem hún er grundvölluð á; að öllum sé best borgið með því að leyfa fámennum hópi að ákvarða efnahagslega stefnu en af því að við búum inní heimi nýfrjálshyggjunnar sem hefur í kjarnsýrunum sínum uppnám og óstöðugleika erum við undirseld einhverskonar félagslegri and-stöðnun, þar sem gólfið sem við stöndum á er á sífelldri hreyfingu, þar sem við verðum að hlaupa æ hraðar til þess eins að standa í stað, þar sem góðæri og niðursveiflur spilast út til skiptis með æ geigvænlegri auðsöfnun alþjóðlegrar yfirstéttar, þar sem fjármálavæddur alþjóðakapítalismi rekur af stað risavaxna hópa vinnuafls á milli landa til að leita sér að afkomu sem dugir til að komast af á, þar sem velferðarkerfin eru rekin á vinnu láglaunakvenna, þar sem óstöðugleikinn er raunveruleikinn, þar sem draumar eru ekki lengur í boði fyrir vinnuaflið og þeim tekið af móðursýki og vanstillingu fólks sem getur ekki séð fyrir sér efnahagslegt réttlæti en á í engum erfiðleikum með að lifa í veröld arðráns og kúgunnar.

Við stöndum frammi fyrir allskonar vandamálum, tilkomnum vegna þess að hagsmunir aðeins eins hóps hafa verið látnir ráða för í veröldinni. Við stöndum frammi fyrir afleiðingum þess að í stað þess að þeim sem leiddu efnahagslegar hörmungar yfir evrópska alþýðu væri refsað, kapítalistunum, var alþýðan látin finna fyrir refsivendinum, með öllu því samfélagslega uppnámi sem því fylgir þegar stórir hópar eru látnir bera ómanneskjulegar byrðar, og við stöndum frammi fyrir því að umhverfisváin er einfaldlega ekki leysanleg ef við getum ekki leyst það verkefni að sjá til þess að gæðunum sé rétt skipt í samfélaginu. Aðeins samfélag sem gætir að efnahagslegu réttlæti er fært um að takast á við þetta risavaxna verkefni sem við verðum að takast á við.

Það er augljóst að það er ekki lengur hægt að leyfa hinum auðugu sem koma innan úr hliðarveruleika fjármagnseigenda að halda áfram að leggja hinar efnahagslegu línur. Við erum stödd í grafalvarlegum stéttaátökum þar sem yfirstéttin gerir ekkert til að draga úr óróa og reiði fólks yfir öllu því óréttlæti sem það er látið lifa við, heldur sýnir þvert á móti í auknum mæli forherðingu gagnvart vinnuaflinu."

Þá hafa menn sáttatóninn sem á að fylgja okkur inn í kjaraviðræður eftir áramót. Skyldu launþegar landsins vera tilbúnir að lúta forystu þessarar konu sem kosin var formaður í einu stærsta verkalýðsfélagi landsins með tíunda hluta atkvæða félagsmanna? Fara til orrustu undir herblístrum nýkommúnistans Gunnars Smára Egilssonar?

Öreigar allar landa sameinist.


Caravan

sá fyrsti af þremur er að nálgast Bandaríkin með 7000 manna liðstyrk.Hinir eru að myndast í ElSalvador og Guatemala.

Hver fjármagnar þessa innrás? Þess spyr maður á youtube:https://www.youtube.com/watch?v=ziOD0sCXdyU. Það er risafyrirtæki af hreyfa 7000 manns yfir 2500 mílna vegalengd. Getur svona nokkurt afl nema þjóðríkisher? 

Forseti Honduras segir það vera Maduro í Venezuela og Castro á Cúbu sem skpulegðu þetta og kostuðu. Þeir eru að gera áhlaup á erkióvininn sem er Bandaríki Norður Ameríku. 

Þetta er ný tegund styrjaldar þar sem vopnin eru konur og börn sem skýla glæpamönnunum sem á að koma inn fyrir landamærin.

Hvað Trump mun gera við þennan innrásarher veit ekki ég. En þeir fá ekki að fara inn í Bandaríkin. Það getur bara ekki gengið að Caravan eftir Caravan geti ráðist á sjálfstætt ríki.

Hvernig væri að Íslendingar setji sig í spor Trump gagnvart svona Caravan?


Verðtryggingarbullið

veður uppi. Á öllum rásum þusa spekingar um það að verðtrygging sé undirrót allrar ógæfu landsmanna.

Menn eru allir búnir að gleyma því af hverju hún var sett. Hún var nauðvörn. Án hennar ættu landsmenn enga von um sæmilegan ellilífeyri. Bankafífl hafa unnið gegn henni gagnvart almennum sparendum á allan hátt.

Einar S. Hálfdánarson lögfræðingur og endurskoðandi ritar skýra grein um málið í Morgunblaðið í dag. Hann segir:

"Fyrir Vilmundi heitnum Gylfasyni var réttlæti alfa og ómega. Hann sá sparnað gamla fólksins verða að engu í verðbólgu samtíma síns. Gamalt fólk verða fátækt að bráð vegna verðbólgu. Lögverndað rán.

Merkilegt nokk þá brugðust pólitískir andstæðingar hans við og komu á verðtryggingu. Sá sem átti fé skyldi ekki verða rændur því; hann skyldi a.m.k. fá það til baka sem hann hafði léð. Nú heitir það víst okur að fá til baka sömu verðmæti og lánuð voru óskert.

Íslenska þjóðsagan um að verðtrygging tíðkist hvergi í viðskiptum nema hér er svo eitt. Hver skyldi vera höfundur hennar?

En að því slepptu, eru breytilegir vextir virkilega áhættuminni fyrir lántakendur?

Ný verkalýðs hreyfing

Það er nú svo að engir njóta lágra vaxta í sama mæli og stórfyrirtækin. Þeir sem efast geta flett upp hlutabréfamörkuðunum þegar vaxtalækkun er tilkynnt. En ekki hvað?Lækkun vaxta eykur hagnaðinn samdægurs. Almenningur, eigendur sparifjárins, sér nú fram á nýja tíma.

Ný verkalýðshreyfing er komin til skjalanna. Kaupið skal margfaldast. Og hvar er nú fé að fá til þess? Jú, eftirlaunin eru greinilega of há. Afnám verðtryggingar hefur nefnilega hreint engin áhrif, nema verðbólga komi til skjalanna. Þangað skal stefnan aftur tekin.

Glittir ekki í gamlan útrásarvíking bak við hugmyndafræðina? Gamla trixið enn og aftur; nema hvað, ræna ellilífeyrinum – eina ferðina enn.

Vextirnir

Þau eru miklir spekingar þessir nýju verkalýðsleiðtogar. En eitt geta þau verið sammála um; 3% vextir ofan á verðbólgu eru okur.

Spurningin er þá þessi:

Hversu mikið skal ævisparnaðurinn rýrna ár hvert til að viðunandi sé að þeirra mati? Svari nú hvert þeirra fyrir sig.

Ég segi bara fyrir mig; vont er þeirra ranglæti, en verra er þeirra réttlæti."

Þessi verðtryggingarsíbylja er orðin skelfileg. Líf manna á ekki byggjast upp á lánum heldur sparnaði.

Verðtryggingarbullið um skaðsemina fyrir lántakendur er lýðskrum af verstu tegund.

 


Karl G. Kristinsson

prófessor í sýklafræði skrifar athyglisverða grein í Morgunblaðinu  í dag. Hún á sérstakt erindi til prédikara verslunarfrelsisins.

En íslenskir kramarar dulklæða hagnaðarvon sína með umhyggju fyrir pyngju neytenda ofar öllu. Varúð vegna afleiddra pesta láta þeir lönd og leið undir yfirskyni virðingar fyrir EES samningnum sem sé neytendum svo dýrmætur. Og Hæstiréttur Íslands tekur undir þau sjónarmið gagnrýnilaust enda dómarar þar almennt lítt vísindalega menntir.

Niðurlag greinar prófessorsins er svona:

" Minnkandi eftirspurn eftir íslenskum landbúnaðarafurðum leiðir af sér færri störf í landbúnaði og færri býli í rekstri. Með því minnkar fæðuöryggi Íslendinga, t.d. ef landið einangrast vegna náttúruhamfara eða styrjalda.

Aukinn innflutningur eykur kolefnisspor Íslendinga, andstætt innlendri framleiðslu með náttúrulegum auðlindum. Hvaða hagsmunir vega þyngra? Við höfum val.

Ríkisstjórn Íslands getur sent sendinefnd til Brussel til að semja um frest á breytingum á íslenskri löggjöf á meðan aflað verður sönnunargagna á sérstöðu Íslands. Þau gögn voru ekki fyrir hendi þegar málið var rekið fyrir EFTAdómstólnum á sínum tíma, en stöðugt bætist við slíkar upplýsingar.

Það mætti jafnframt óska eftir aðstoð EFSA við að afla gagna sem væru fullnægjandi til þess að fá málið endurupptekið fyrir EFTA-dómstólnum.

Enda segir í 13. grein laga um Evrópska efnahagssvæðið: Ákvæði 11. og 12. gr. koma ekki í veg fyrir að leggja megi á innflutning, útflutning eða umflutning vara bönn eða höft sem réttlætast af almennu siðferði, allsherjarreglu, almannaöryggi, vernd lífs og heilsu manna eða dýra …

Þetta hagsmunamál snýst einmitt um vernd lífs og heilsu manna og dýra. "

karljrist sjudomsbyrdi

Það er eins og EES prédikurum og okkar vesælu stjórnmálamönnum  sé fyrirmunað að lesa samninginn til enda og reyna að nota heimildirnar til verndar lýðheilsu landsmanna.

Er ekki ástæða til að hlusta á raddir vísindamanna eins og prófessors Karls G. Kristinssonar sem falla mjög saman við álit og varnaðarorð Margrétar Guðnadóttur og fleiri fremstu vísindamanna okkar á þessu sviði?


EvruBieltved

fer enn mikinn í Mogga.  Nú vitnar hann í að Gallup segi íslendinga vilja taka upp Evru eins og þjóðir sem hann telur upp sem sönnun þess að ESB aðild sé ekki skilyrði fyrir upptöku evru.

Hann segir:

"Niðurstaða Gallup könnunar er því mikið gleðiefni. Skv. henni eru 56% landsmanna fylgjandi upptöku evru, en 44% á móti. Er þá afstaða þeirra sem afstöðu tóku reiknuð. Greinilegur meirihluti þjóðarinnar skilur loks hvað klukkan slær með krónuna og er tilbúinn til að fara í alvörugjaldmiðil, reyndar þann styrkasta í heimi, sameiningartákn Evrópu, evruna.

Sex aðrar þjóðir hafa tekið upp evru án ESB-aðildar; Kósóvó, Svartfjallaland, Vatíkanið, Mónakó, San Marínó og Andorra. Eigum við ekki að byrja þar!?"

Ekkert í þessari upptalningu telst vera þjóð. Þetta eru héröð í þjóðum.

Viðskipti Íslendinga eru miklu meira í dollurum en Evrum. Það væri nær að taka hann upp fremur en Evru.

En vill þessi EvruBielteved ekki svara því á hvað gengi  eigi að skipta þjóðarauðnum yfir í Evru? Hvað á ég að fá fyrir milljónina mína? Húsið mitt? Hvað á taxtinn hjá Eflingu að reiknast yfir á?

Hvað með möguleikann á að semja um óraunhæfa taxta fyrir Eflingu. Hvað gerum við þá annað en að segja upp fólki og loka fyrirtækjunum? Hvað gerir óábyrg þjóð sem getur ekki skaffað evrur í útgjöldin sín? Fer hún eitthvað öðruvísi að en Grikkir? Selur orkuauðlindirnar? Fiskimiðin? Landið? Hafnirnar? Flugvellina?

Fullveldiskaupmaðurinn EvruBieltved svarar ekki grundvallarspurningunum og talar því um hluti sem ekki ganga upp.


536 var versta ár

mannkynssögunnar og það var eldgos á Íslandi sem orsakaði það.

https://www.sciencemag.org/news/2018/11/why-536-was-worst-year-be-alive?utm_campaign=news_daily_2018-11-15&et_rid=419309453&et_cid=2490907

Afleiðingarnar voru hroðalegar.

versta536 Allt getur þetta gerst aftur. Hvað skyldu AlGore og fjörtíuþúsund fíflin hans frá París segja þá?

Kemur Katla? Hvað losar hún mikinn brennistein og CO2 og vatnsgufu sem er gróðurhúsaloft. Verðum við að kaupa losunarkvóta af Evrópusambandinu vegna þessa?

Vonandi kemur árið 536 ekki aftur.


Upphaf ógæfunnar

í stjórnmálum Íslendinga er að finna í ríkisstyrkjum til stjórnmálaflokka.

Í skjóli þeirra hafa allskyns smáflokkar sem standa ekki fyrir neitt nema það að ná sér í þessa ríkispeninga skotið upp kollinum.Oftar en ekki lenda forystumennirnir í hári saman yfir skiptingu fjárins til eigin þarfa.

Því miður fer þessi þróun í aðra átt með sífelldri aukningu allskyns sporslna, nú síðast 17 aðstoðarmanna sem ekkert gagn munu gera nema auk á flækjustigið.

Flokkar eru frjáls félagasamtök eins og saumaklúbbar og eiga ekki að lúta öðrum lögmálum. Þeir sem ekki geta fjármagnað sig af stuðningsmönnum verða að sætta sig við það.

Ef ríkisstyrkir yrðu afnumdir myndi flokkum á þingi stórfækka og allt stjórnmálastarf verða heilbrigðara og ábyrgðarfyllra. Grasrót flokkanna og beint lýðræði myndi þannig verða virkara. Niðurlæging þingsins tæki enda með fækkun þingdóna og sérvitringa eins og vaða þar uppi.

Það var upphaf stjórnmálaógæfu Íslendinga þegar farið var að veita ríkisfé til stjórnmálaflokka.


Allt á einum nagla

vegna skorts á nagla var skeifunni týnt

vegna skorts á skeifu var hestinum týnt

vegna skorts á hesti var riddara týnt

fyrir skort á riddara var sigrinum týnt

fyrir skort á sigri var kóngsríki týnt

-öllu var vegna  naglans týnt-

Hvað myndi gerast ef 50.000 tonna pressa Alcoa væri ekki lengur aðgengileg? Hún er sú eina í Bandaríkjunum síðan 1955. Hún hefur búið til öll hjól undir bandarískar flugvélar siðan þá. Það er ekki grundvöllur fyrir að smíða aðra slíka vegna verðsins. Hún vegur 7300 tonn.

Bandaríkjamenn eru hugsi ef að stríð myndi skella á. Hvernig á að starta framleiðslunni eins og þegar síðari heimstyrjöld kom þeim á óvart? Það tók langan tíma. En árangurinn varð svo svakalegur að mynd frá Bell sem sýnir verksmiðjuna sem smíðaði B29 sprengjuvélar ásamt annarri eins hjá Boeing  hverfur út í einn punkt fá því að sýna fyrstu vélina alla ofanfrá. Og ekki er Liberator verksmiðjan minni.

bell-marietta-b29-assembly-line-1944

Það voru Bandaríkin sem unnu stríðið fyrir Rússa og alla veröldina með því að smíða margt fyrir þá og senda með skipalestunum í gegnum Hvalfjörð.

 

 

liberator

Bækur Magnúsar Hafsteinssonar eru svakalega lýsingar þá þeim fórnum sem þar voru færðar í líklega hörðustu bardögum alls stríðsins. Mikið rosalegt fífl var annars Hitler að detta í hug að hann gæti unnið stríð gegn Bandaríkjunum  og Japanir auðvitað líka en þeir tókust á sitthvora höndina á Kananum á sama tíma.

 

b29-assembly-line-03

pressan góða

Pressan góða

 

En allt byrjar þetta á einum nagla sem má ekki vanta.


Fé fyrir fæðingar?

barna í stað fleiri fóstureyðinga?

Gísli Holgeirsson viðraði athyglisverða hugmynd í bréfi til mín.

Hann vill að fædd börn af íslensku foreldri fái stofnaðan séreignarreikning sem þau eigi til fullorðinsára sem hjálp í lífinu.

Hann vill líka greiða mæðrum þessara barna verðlaun og meira kaup. 

Hugnast andstæðingum fóstureyðinga allt til 22. viku meðgöngu ekki þessi leið betur en leið drápsins?

Núna er fæðingatíðni íslenskra kvenna fallin niður í 1.7 barn/konu. Þjóðinni getur því aðeins fjölgað með innflutningi ótyngdra útlendinga sem seint lesa Sturlungu til dæmis.

Vantar okkur nokkuð fólk annars með útlendinga sem  þriðjung atvinnulausra? Er ekki aukin sjálfvirkni og gervigreind að útrýma störfum? Okkur vantar ekki leiguhúsnæði heldur, það er pólitískur tilbúningur.

Fé fyrir fæðingu væru hvati til að vinna gegn fóstureyðingum.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband