Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2019

Kópavogur tekur af skarið

er fyrirsögn á færslu Ómars Geirsssonar um launamál opinberra starfsmanna.

" 

Svo eftir er tekið.

Þeirra skilaboð eru skýr fyrir komandi kjarasamninga;

"Við hækkuðum laun okkar of mikið, við skömmumst okkar, við leiðréttum, við tölum ekki."!

 

Ráðherrar og alþingismenn tala hins vegar.

Fundu bankastjóra sem þeir gátu skammast útí.

En að sýna fordæmi hvarflaði ekki að þeim.

 

Aðeins einn einstaklingur hefur sýnt ærlega framkomu frá hækkun Kjararáðs, og það er Guðni forseti.

Hann gaf líknarfélagi kauphækkun sína.

Sýndi þar og sannaði að hann hefur þroska til að gegna embætti sínu.

 

Kópavogsbær hefur líka sýnt þann þroska.

Og þar með er þroskinn upp talinn.

 

Keilur lýðskrumsins, að fordæma, en sýna ekki fordæmi, segir allt sem segja þarf um fólkið sem stjórnar þjóðinni.

Jafnt í stjórn, sem stjórnarandstöðu.

Í raun er þetta ekki fullorðið fólk.

 

Það gasprar, það röflar.

En gerir ekki neitt.

 

Ekkert til að sætta þjóðina.

Ekkert til að byggja brýr.

 

En það talar.

Kveðja að austan" 

Hefur eitthvað heyrst frá Alþingismönnum okkar sem fengu allar þessar hækkanir? Ég hef þá ekki heyrt það?  

Skyldu sósíalistar ekki fá einhverja huggun í því að aðrir skuli missa eitthvað líka svo þeir sætti sig betur við sinn meinta launaömurleika?

Getur ekki sjálftökulið alltaf hækkað laun eins og lækkað?

Virðist Kópavogur ekki vita það þó Að Alþingi geri sér það ekki jafnljóst?


FjörgralaufaSmárinn

vill usla og skaða fyrir alla eins og hann sjálfur varð fyrir á egóinu í gjaldþrotum blaða sinna fyrir hrunið. 

Maður hélt samt að sogrörið hans og konunnar beint ofan í sjóði Eflingar myndu friða hann eitthvað en svo er líklega ekki. Hann vill verkföll sem allra fyrst og býr til fréttir til að styðja það.

FjögralaufaSmárar færa fólki ekki einboðna hamingju.


Enn er bullað

á öllum rásum um vilja Eflingar til að fara í verkfall. Bæði Morgunblaðið og Fréttablaðið í dag birta falsfréttina um að 80 % félagsmanna vilji fara í verkfall.

Hið rétta er að 28 % 4768 félagsmanna svarar og af þeim vilja 1080 eða 22.7 % félagsmanna fara í verkfall. Fimmti hver félagsmaður en ekki 80 % félagsmanna.

Er ástæða til að gera hlutina verri en þeir eru með því að bulla svona?


Rekum bankaráðin

og bankastjórana og gáum hvort við getum ekki fengið hagstæð tilboð í að reka þessa ríkisbanka.

Svo segir Ragnar Önundarson:

"

Gamla  bankakerfið, fyrir einkavæðinguna og sjálftökuna, var ekki að öllu leyti til fyrirmyndar. Að sumu leyti þó: Bankastjóralaun voru samræmd og fylgdu launum hæstaréttardómara skv. Kjaradómi, nú um 1.400 þús. á mánuði. Greiddur var að auki jólabónus, sem allir bankastarfsmenn fengu, kallaður 13. mánuðurinn, þannig að raunveruleg mánaðarlaun hafa verið rúm 1.500 þús. Þeir sem sóttust eftir þessum störfum vissu hvað var í boði og að hverju þeir gengu. Annað var ekki umsemjanlegt. Þetta þýddi að löngunin til að auðgast var ekki það sem hvatti þá áfram, græðgin var ekki leidd til hásætis. Menn gerðu það upp við sig hvort þeir vildu una þessu eða leita annað.

Uppástunga mín er sú að störf bankastjóra núverandi ríkisbanka verði auglýst laus til umsóknar á fyrirfram ákveðnum kjörum. Núverandi bankastjórar geta sótt um eins og aðrir."

Hann tekur þarna undir tillögu mína frá því nýlega.

Bankastjóri Aríon banka hefur ekki algóðan feril að baki hvað varðar viðskipti við almenning. En hann er líklega ósnertanlegur með sínar 6 millur á mánuði. Skyldi hann vera svo snjall að enginn finnist honum jafngóður fyrir minni pening?

Hvaða snilld þarf til að vera bankastjóri? Ég hef kynnst þeim mörgum og ekki komið auga á hana.

Rekum þetta lið og fáum nýtt fólk.


Truntuflokkar

stjórna Reykjavík. Laugavegslokanir eru sagðar gerðar vegna ákalls frá kaupmönnum við þann veg. Í viðtölum við kaupmenn kemur fram að ekki eitt einasta samráð hefur verið haft við kaupmenn um lokanir, þrengingar og fækkun bílastæða við Laugaveg. Meirihlutinn lýgur þessu blákalt opinberlega. Þeir eru heldur ekki til viðtals fyrir borgarana nema að úitfylltum löngum biðlista þannig að kaupmenn segjast ekki ná í neinn til að ræða við.

Þetta er allt með endemum og fyrirtæki eru sem óðast að flytjast á brott úr miðbænum.

Svona stjórnunarstíll er sannkallaður truntustíll þar sem valdamenn þursast áfram í upphafinni hugsjónabaráttu sinni sem allt veit best og tala ekki við neinn,  hatast við einkabílinn og heimta reiðhjól og Borgarlínu sem lausnir fyrir mannlífið.

Eyða 7 milljörðum á 7 árum til að auka vægi almenningssamgangna úr 4 % í 12  % með núll árangri í stað nútíma umferðarmannvirkja.

Dagur B(raggi) Eggertsson var kosinn frá í síðustu kosningum. Viðreisn tók að sér að halda honum við völd í óþökk Borgabúa þrátt fyrir borðliggjandi tilraunir hans til kosningasvindls að því að fróðir menn skrifa margir um.

Verði kjósendum að góðu að þurfa að lífa með truntuflokkunum í Borgarstjórn Reykjavíkur í boði Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur liðhlaupa úr Sjálfstæðisflokknum.


Falsfréttir

frá Fjögralaufasmára:

Í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi meðal félagsmanna Eflingar-stéttarfélags kemur í ljós afdráttarlaus stuðningur við kröfugerð félagsins í kjarasamningum. Tæplega 80% félagsmanna telja hana sanngjarna og sama hlutfall segist hlynnt því að fara verkfall til að knýja á um launakröfur verkalýðsfélaganna.

Það er ekki síst erlendur hluti vinnuaflsins sem að fylkir sér bak við launakröfurnar en samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hefur stuðningur við kröfur og verkfallsaðgerðir auk væntinga um launahækkanir í kjölfar kjarasamninga tilhneigingu til að vera meiri meðal félaga af erlendum uppruna.

Þá leiðir könnunin í ljós mikla aukningu á fjárhagsáhyggjum meðal félagsmanna frá launakönnun sem framkvæmd var í ágúst síðastliðnum. En þær aukast um 16% á milli mælinga úr 47% sem hafa miklar eða mjög miklar áhyggjur í kjarakönnun í ágúst 2018 í 63% í janúar 2019. Þetta eru mestu fjárhagsáhyggjur sem hafa mælst í könnunum Eflingar frá hruni.

Spurningarnar voru lagðar fyrir fullvinnandi félagsmenn Eflingar með netkönnun á tímabilinu 19.-26. janúar. Haft var samband við 4758 félagsmenn og þar af svöruðu 1350. Niðurstöður voru vigtaðar út frá atvinnugrein og uppruna."

Hið rétta er að 28 % 4768 félagsmanna svarar og af þeim vilja 1080 eða 22.7 % félagsmanna fara í verkfall.

Sem sagt alger einhugur að baki Gunnari Smára til að eyðileggja sem mest hann má. Bitur greyið eftir skipbrotin í kapítalismanum og framleiðir því falsfréttir með sogrörið sitt tryggt ofan í sjóðum Eflingar.

 

Mikið var

að formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson minnir á hvað hefur áunnist á vakt flokksins. Hann segir í Fréttablaðinu í dag:

"Við Íslendingar höfum náð framúrskarandi árangri á undanförnum árum. Myndin er skýr þegar við horfum á skuldastöðu heimilanna, sem er betri en hún var á uppgangsárunum fyrir fjármálahrunið, landsframleiðslu sem er sömuleiðis meiri en eins og hún gerðist best fyrir rúmum áratug, fjármálakerfið sem er heilbrigðara og sterkara, skuldir ríkisins sem hafa snarlækkað og stöðu þjóðarbúsins gagnvart útlöndum en við erum nú í fyrsta skipti á lýðveldistímanum með meiri eignir en skuldir í öðrum löndum.

Sennilega hefur fáum dottið í hug að þetta yrði staðan áratug eftir að neyðarlögunum var komið á. Að við hefðum endurheimt allan beinan kostnað af hruninu, losað okkur við höftin og komist í þá stöðu með afnámi tolla og vörugjalda að vera eitt opnasta og frjálsasta hagkerfi heims.

Við höfum notið stöðugleika í verðlagi og lægri raunvaxta húsnæðislána en áður hafa sést. Myndin af efnahagsmálum Íslands í dag sýnir einnig afgang af viðskiptajöfnuði.

Í stuttu máli má segja að okkur hafi nær alla tíð gengið treglega að skapa gjaldeyristekjur fyrir því sem við höfum þurft að sækja til annarra landa. Til að tryggja jafnvægi í utanríkisviðskiptum voru því hér áður fyrr löng haftatímabil.

Gerbreytt staða birtist okkur að þessu leyti í dag. Síðastliðinn áratug eigum við jafn mörg ár með afgang af viðskiptum við útlönd og samtals frá lokum síðari heimsstyrjaldar.

Með þessu hefur orðið til myndarlegur óskuldsettur gjaldeyrisforði.

Auk þess að byggja gjaldeyrissköpunina á öflugum sjávarútvegi og orkufrekum iðnaði hefur ferðaþjónustan nú bæst við sem afar öflug stoð í hagkerfinu og góður vöxtur er í margvíslegu rannsóknar- og þróunarstarfi, hugbúnaðargerð, lyfjaiðnaði og erfðarannsóknum svo dæmi séu nefnd.

Myndin sem við sjáum er því af nýjum efnahagslegum veruleika. Við búum við breytt, sterkara og fjölbreyttara hagkerfi sem við verðum að gefa svigrúm til að halda áfram að vaxa og dafna."

Ég hef haldið því fram að PR-mál Sjálfstæðisflokksins hafi verið í megnasta ólestri. Flokkurinn hafi vanrækt að minna kjósendur á hvað hann hefur til leiðar komið.

Mér hefur fundist að forysta flokksins hafi sinnt áminningum til kjósenda um hvað stefnumál flokksins snúast allt of lítið svo og að halda því á lofti sem flokkurinn hefur áorkað.Hógværð á ekki við í pólitík þegar glamrið er jafn hávært og nú er.

Mér hefur fundist að formaðurinn þyrfti að verja meiri tíma til slíkra hluta sem hann er mjög vel fær um að gera. Hugsanlega eru nú einhverjar breytingar í þessu að verða með ferðalagi hans og  þingmanna um landið.

Engar framfarir hafa orðið á þessu landi öðruvísi en að Sjálfstæðisflokkurinn hafi að þeim komið. Afturfarir hafa hinsvegar orðið reglulega undir stjórn annarra flokka.

Sjálfstæðisflokkurinn er 90 ára á þessu ári. Hann sagði við stofnun sína ætla að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Nafn flokksins nægir til þess að skýra stöðu flokksins í fullveldismálum.

Þannig var Sjálfstæðisstefnan skilgreind í fáum orðum 1929.

Mikið var að eitthvað gerðist í því að minna fólk á hvað Sjálfstæðisflokkurinn hefur þó nýlega gert fyrir landsmenn.

 


Pósturinn kemur því til skila

svo sannarlega.

Í síðustu viku barst mér jólakort frá vini mínum með póststimlpli 23.12.2018.

Pósturinn kemur því sannarlega til skila.


Lækkun umferðarhraðans leysir ekkert

vandamál á Hringbraut hvað þá Miklubraut.

 Vandamálið eru þeir sem þurfa yfir götuna.

Í stað fíflalegu gangbrautarljósanna á Miklubraut sé ég fyrir mér stálbrýr sem standa á lyftuturnum sitt hvoru megin. Fólk getur farið í 5 manna opinni lyftu upp og niður. Málið dautt og umferðarafköstin hafa aukist að mun.

En auðvitað þýðir ekkert að gera svona tillögur meðan núverandi meirihluti ræður Borginni.

En lækkun umferðarhraðans leysir akkúrat ekkert eins og Ólafur umferðarverkfræðingur útskýrir í Mogganum í dag.


Kjósum um klukkuna

en látum ekki 101 liðið og elítuna prakka hringlinu inn á okkur með samráðsgáttarblekkingum og álíka fúppi.

Ég er nokkuð viss um að meirihlutinn vill ekki byrja á gömlu vitleysunni um klukkuhringlið.

Kjósum bara um klukkuna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 18
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 3418312

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband