Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2019
19.7.2019 | 18:23
19 %
er hið nýja fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Svo segir í Mogga:
Miðflokkurinn er hástökkvari nýrrar skoðanakönnunar sem MMR birti í dag. Flokkurinn mælist með 14,4% fylgi og yrði þriðji stærsti flokkurinn ef boðað yrði til kosninga í dag.
Að sama skapi lækkar fylgi Sjálfstæðisflokksins um rúm 3 prósentustig og mælist hann nú með 19,0% fylgi en er þó eftir sem áður stærstur flokka.
Píratar eru næststærstir, en 14,9% kjósenda hyggjast greiða flokknum atkvæði, litlu fleiri en í síðustu könnun. Skammt undan er Samfylkingin, sem mælist með 13,5% fylgi og tapar rúmu prósenti frá síðustu könnun.
10,3% kjósenda styðja Vinstri græn, prósenti minna en síðast, og 9,7% Viðreisn sem er á pari við síðustu könnun. Þá mælist fylgi Framsóknarflokksins 8,4% en var 7,7% í síðustu könnun.
Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkur Íslands næðu ekki mönnum á þing ef þetta yrðu niðurstöður kosninga, en hvor flokkur um sig nýtur stuðnings rúmlega 4% kjósenda.
Könnunin var framkvæmd dagana 4. til 17. júlí og voru svarendur 2.031, valdir af handahófi úr hópi álitsgjafa MMR úr þjóðskrá."
Eftir 3. september hlýtur fylgi Sjálfstæðisflokksins að ná áður óséðum stærðum þegar Íhaldið sameinast Viðreisn og hinni Samfylkingunni um 3. orkupakkann.
19 % núna en getur breyzt.
19.7.2019 | 15:42
Húsnæðisvandræði?
ungs fólks eru mikil.
Þau eru samsett af glórulausu okri sveitarfélaga við sölu lóða sem taka ekkert tillit til framtíðartekna þeirra sem vilja byggja. Ennfremur sí íþyngjandi kröfum Mannvirkjastofnunar. Regluverka frumskógar Byggingafulltrúanna, í Reykjavík mun skógurinn vera sérlega þéttur og ógreiðfær.
Of miklar kröfur um 100 ára endingu. Einangrun og allskyns bullukröfur um aðgengi fatlaðra sem eiga ekki að búa í húsinu.Eldvarnir aðrar en úðakerfi sem auðvitað ættu að vera í hverri nýrri íbúð og eru ódýrar og veita algera vernd gegn eldsvoðum.
Með hugviti hafa menn smíðað hús sem sjá má á
https://youtu.be/26HHPKJ7gZM
Kemur sem 1 stk gámur á vörubíl og er orðið einbýlishús eftir nokkra klukkutíma. Sett ofan á undirstöður og tengt við veitur sem þurfa að vera gerðar þegar gámurinn kemur.
Það eru til ótalmargar útfærslur á snjallhúsum sem þessum. Þau kosta brot af
fermetraverði monthúsanna á þéttingarsvæðum.
Auðvitað þarf að taka tillit til láréttu rigningarinnar og vatnsþrýstingsins á okkar góða landi. En hvað er það ef húsið er ódýrt að grunni til.
Af hverju ekki ungi maður að gera eitthvað í húsnæðisvandræðunum þó það sé gott að búa á hótel mömmu?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2019 | 13:25
Sorpbrennslustöð gegn matarsóun
myndi umbreyta allri matarsóun sem nemur þúsundum tonna,í hreina orku sem nýtist íbúum.
Það ber brýna nauðsyn að stöðva landeyðingarstefnu sorpurðunar á landinu.
Nýtízku sorpbrennslu stöð eins og Danir hafa tekið í notkun er vel á færi Íslendinga að reisa og flytja að henni sorp af öllu landinu.
Er ekki nær að sinna slíku verkefni innviða en að gæla við að flytja einhvern hugsanlegum þjóðarsjóð frá Landsvirkjun til ávöxtunar erlendis?
Sorpbrennslustöð er þjóðarnauðsyn að byggja.
19.7.2019 | 10:18
Auglýst eftir kostum EES !
er hér með ef einhver skyldi kunna að telja þá upp.
Ennfremur mætti einhver telja upp ókosti EES við sama tækifæri.Við það verk skal ég gjarnan hjálpa til við.
Konráð S. Guðjónsson í Viðskiptaráði fer með trúarjátninguna í Mogga í morgun.Talar um 500 milljón manna markað en gleymir að draga Bretland frá. En játningin hefði allt að eins geta hljóðað svo:
"Ó þú mikli EES samningur, sem hefur fært okkur allt þetta góða,kenndu okkur að lifa svo við megum þóknast þér sem best og lepja allt upp sem þú okkur réttir."
Enginn og tilbiðjendunum nefnir til einn einasts beinharðan kost sem við höfum haft að þessu fullveldisframsali sem fram fór fyrir aldarfjórðungi, sem við hefðum ekki náð í tvíhliða samningum sem fullvalda þjóð. Hvernig munum við semja við Breta? Undir hæli ESB eða sem fullvalda ríki?
Ekki einu sinni Villi Bjarna sem væri manna hæfastur til þess hefur talið upp kosti EES. Samt endar hann snilldargrein sína um Sjálfstæðisflokkinn eins og hann ætti að vera en ekki eins og hann er núna með því að vitna í Bjart bónda."
Maður fer á mis við lífið þángaðtil maður er sjálfstæður. Fólk sem er ekki sjálfstæðisfólk, það er ekki fólk.
Eru EES sinnar yfirleitt sjálfstæðisfólk?
Ég helda að þeir sem skrifa í Fréttablaðið í dag eins og Bolli Héðinson og mæra inngöngu í ESB hljóti að eiga eftir að hugsa málið til enda. Bolli er þó margreyndur í sjálfstæðum rekstri en mér finnst hann skrifa ekki lengur í samræmi við frelsishugtak hins sjálfstæða manns og anda þegar hann vill herleiða Íslendinga til í foraðið sem blasti við í verslun Þjóðaverja og Frakka á Evrópuþinginu.
Muna Íslendingar ekki eftir tímum helmingaskiptareglunnar? Hvað hefðum við ráðið þarna miklu um kjör Evrópuherssinnan van der Leyen?
Mér finnst einföld lausn núna vera sú að innleiða ekkert af gerðum EES sem öll önnur ríki í ESB hafa ekki þegar innleitt hjá sér. Þannig getum við náð samræmingu sem á skortir sárlega núna þegar við erum oft kaþólskari en páfinn.Bara að vinna heimavinnuna þar sem þeir stóru í ESB gera bara það sem þeim gott þykir,
En ég bíð eftir rökum fyrir áframhaldi EES í óbreyttri mynd.
18.7.2019 | 19:00
Ísafjarðarbær býr til snjóflóðavá
á fréttum sjónvarps frá byggingu snjóflóðavarna.
Nýleg fjölbýlishús upp á einar 4 hæðir standa þversum undir hlíðinni þar sem hún er bröttust.
Af hverju fær bærinn að úthluta svona byggingum. Af hverju snéru þær ekki stafni í flóðastefnuna og byggðar í spíss?
Eru bæjarfélög bara stikkfrí en ríkið á að sjá um snjóflóðavarnirnar?
18.7.2019 | 16:01
Nú freta "kommarnir " í Fréttablaðinu!
sem aldrei fyrr í takti við eigendaskiptin þegar Helgi Magnússon Hafskipslimur tók þar við ritstjórnarstefnunni.
Ein rödd heyrist í blaðinu í dag sem segja má að sé sögð af almennri skynsemi. Það er rödd Birnu Lárusdóttur sem segir svo m.a.:
Um það leyti sem rammaáætlun var að taka á sig endanlega mynd fyrir sex árum hafði þjóðþekktur baráttumaður fyrir náttúruvernd á orði að með áætluninni skapaðist vitrænn og skipulegur farvegur til skoðanaskipta sem væri grundvöllur siðaðs lýðræðisþjóðfélags.
Þessi orð rifjast upp í þeirri miklu og óvægnu orrahríð sem nú er háð gegn uppbyggingu Hvalárvirkjunar og þeim sem að henni standa. Baráttan gegn Hvalárvirkjun er um leið atlaga gegn brýnni innviðauppbyggingu á Vestfjörðum. Því er meðal annars lýst yfir af náttúruverndarsamtökum að einskis verði látið ófreistað til að stöðva virkjunaráformin.
Helgar tilgangurinn mögulega öll meðul bæði lögmæt og ólögmæt?
Aðferðafræði þeirra sem hæst láta felst helst í skæðadrífu órökstuddra fullyrðinga og aðdróttana sem ítrekað er vitnað til sem algildra sanninda með tilheyrandi tilfinningahita.
Slíkur hamagangur getur komið róti á hugi margra en verður seint talinn farsæll farvegur fyrir skoðanaskipti. Stærstu samtökin í þessum efnum, Landvernd, ganga síðan svo langt að saka virkjunaraðila um lögbrot. .."
Gegn þessu fara svo "kommarnir" í mörgum gerfum. Formaður Viðreisnar, hinnn margfaldi Ólympíufari Þorgerður Katrín sem hefur sjaldan hefur tekið nema rétta póla i hæðina og hefur inngöngu í hið deyjandi ESB sem sitt Alfa og Omega. Svipað og ruglingsleg skrif Óli Antons Bieltved þar sem hann lofsyngur ESB í sama blaði en nú undir yfirskyni trúar sinnar á nauðsyn hvalafriðunar.
Formaður Samfylkingarinnar fer svo um víðan völl án þess að hægt sé að skilja það óyggjandi. Helst er hann almennt á móti frekari vatnsaflsvirkjun og hlýtur þá að vilja ræða thoríum kjarnorkuver sem lítið fer fyrir enda eru Landsvirkjun þegar farin að selja slíka orku.
Steininn tekur þó úr þegar lesin er grein prófessors doktors Þorvaldar Gylfasonar: Glórulaus pólitísk heift og byrgja honum sýn í öllum málum eftir að gagnfræðaskólastíll hans sem hann kallar stjórnarskrárfrumvarp hans, var fellt í ystu myrkur því það er gersamlega óhæft.
Hér eru tilfærð sýnishorn af orðbragðinu sem Háskólamaðurinn telur sér sæma að nota um Donald J. Trump:
" Ég lýsti því hér fyrir viku hversu komið er fyrir tveim sögufrægum flokkum, bandaríska Repúblikanaflokknum sem situr nú og stendur eins og víðræmdur rasisti, hálfgildingsfasisti og hreint fífl stabílt séní kallar hann sjálfan sig býður mönnum sínum og einnig fyrir brezka Íhaldsflokknum sem bíður þess að gera sams konar trúð að forsætisráðherra Bretlands. Við skulum nefna hlutina réttum nöfnum. Skófla heitir skófla eins og kaninn segir..."
Hvaðan kemur þessum Þorvaldi öll þessi óhenju vizka og sjálfsupphafning? Og þolinmæði til að hamra lygina um stjórnarskrármálið seint og snemma með útúrsnúningum.
Enn segir þessi Þorvaldur:
Það kom í hlut kommanna og AGS að reisa landið við. Þriðji flokkurinn Í miðju hruni reyndu sjálfstæðismenn að selja Ísland í hendur Rússa til að komast hjá neyðarhjálp frá AGS. Bandamenn Íslands í Nató og kommarnir! supu hveljur.
Af þeim sjö mönnum sem Rannsóknarnefnd Alþingis taldi hafa sýnt af sér vanrækslu í skilningi laga voru fjórir hátt settir sjálfstæðismenn. Enginn þeirra var þó látinn sæta ábyrgð, öðru nær.
Sá þeirra sem keyrði Seðlabankann í kaf heldur áfram að láta ljós sitt skína í Morgunblaðinu, fjármagnaður af útvegsmönnum. Sjálfstæðismenn hafa reitt sig á réttarkerfi sem þeir hafa mannað að miklu leyti sjálfir, refsileysi og fyrningu brota, eins og t.d. þegar álitlegur hluti gjaldeyrisforða Seðlabankans var sendur til Tortólu 6. október 2008 og bankinn komst í þrot."..
Þorvaldur snýr auðvitað öllu á haus. Vinstri stjórnin setti landið á hvolf, sló skjalborg um fjármálafyrirtækin, skar upp herör gegn fjölskyldunum heimilunum svo að tíuþúsund manns missti heimili sín, mokaði milljörðum af skattfé í þjófa-og asnaveislur hjá Sjóvá, Byr,SPK og fleiri félögum. Og svo halda þeir kommarnir því fram að þeir hafi bjargað öllu?
Steingrímur gaf sér ekki tíma til að éta svo upptekinn var hann í montinu og því að halda það sjálfur að andi hans í fjármálum væri heilflaska meðan efnahagsvitið hans myndi ekki fylla meðalaglas af minnstu sort og hafi aldrei orðið stærra.
Kommarnir uppskáru eins og þeir sáðu þegar þjóðin fékk loks tækifæri að segja sitt álit eftir Icesave svikin:
Leiðarhöfundur Morgunblaðsins lýsir þessu svo:
"...Skyndiinnganga í ESB var hástig dómgreindarleysis þeirrar ríkisstjórnar. Ríkisstjórn sundrungarleiðtoganna missti starfhæfan meirihluta sinn þegar kjörtímabilið var rétt hálfnað en hékk löskuð áfram og tafði endurreisnina sem því nam.
Fólkinu í landinu ofbauð og með tvöföldum Icesave-gerningi magnaðist fyrirlitningin. Í kosningum vorið 2013 átti fólkið loks leik.
Vinstristjórnin sem fengið hafði hreinan meirihluta 2009 fékk þá verstu útreið sem ríkisstjórn hefur fengið.
Fastagestir stjórnmálafræðinnar á RÚV forðast eins og eldinn að rifja upp þennan sögulega hápunkt.
Ríkisstjórn hafði látið sjálfshólið ganga í fjögur ár og forkólfarnir þóttust þeir fyrstu sem tekið hefðu á því í ríkisstjórnarsögu landsins.
Gengið var með 34 þingmenn til kosninga en meira en helmingur þeirra tapaðist.
Átján þingmenn féllu og aðeins sextán lifðu nóttina af!
Hið innistæðulausa sjálfshól fann hvergi samastað nema hjá montrössunum sjálfum. Aðalástæða einstæðrar rassskellingar var ákvörðunin um að sundra þjóðinni þegar samheldni, samvinna og samhjálp hlutu að verða kjörorð hvers dags..."
Komminn Kolbrún Bergþórsdóttir bregst ekki í leiðarskrifi sínu gegn hverskonar virkjunum sem skemma fossa og fegurð náttúru þegar hún skrifar:
"....Ýmsir fulltrúar orkugeirans og kónar þeirra sem vara við raforkuskorti kunna greinilega ýmislegt fyrir sér í áróðri.
Þannig senda þeir skilaboð til almennings og tónninn er eitthvað á þessa leið:
Eruð þið tilbúin til að fórna hluta af þægilegum lífsstíl ykkar og vera án orku í þó nokkurn tíma vegna þess að til er fólk sem er án jarðsambands og vill ekki sjá virkjanir? Sjáið þið til dæmis lætin út af Hvalárvirkjun sem er mikið framfaramál, en í stað þess að átta sig á því jarmar þetta sama fólk út af einhverjum fossum sem á að þurrka upp í þágu atvinnuuppbyggingar.
Vitaskuld sjá ekki allir gegnum þennan blygðunarlausa og ósvífna áróður og sumir ganga honum glaðir á hönd..."
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar, skrifa róskiljanlega grein til að hakka niður hugsjónir Óla Björns Kárasonar. Ekki er nein leið að fá nokkurn botn eða boðskap í grein hennar frekar en skrif Loga Más Einarssonar um orkumá nema að Logi segir:
"...Sífellt f eiri og sterkari raddir heyrast sem leggjast gegn gegndarlausum fórnum á landinu í þágu rafmagnsframleiðslu. Ekki er nóg með að slíkar fórnir séu oft óafturkræfar, þá spilla þær þeirri auðlind sem ósnortin náttúra er.
Þessar raddir tala fyrir mikilvægum sjónarmiðum. Við þurfum því að bregðast hratt við ekki láta lögmálið um framboð og eftirspurn ráða alfarið. Það mun sundra þjóðinni og getur valdið óbætanlegu tjóni á íslenskri náttúru..."
Logi Már vill engar frekari hefðbundnar virkjanir. Logi er því heldur greinilegra afturhald en Þorgerður Katrín sem mælir nú með inngöngu í ESB að vanda og dýrkun EES-samstarfsins með svohljóðandi skrúðmælgi:
"...Þó að þingmaðurinn tali ekki skýrt um hvað hann meinar með þessu má ætla að hann sé að tala gegn fjölþjóðasamvinnu en fyrir tvíhliða viðskiptasamningum í anda Brexit og Trumps.
Flestar þjóðir drógu þann lærdóm af kreppunni á fyrri hluta síðustu aldar að fjölþjóðasamvinna yrði að leysa tvíhliða viðskiptasamninga af hólmi til að tryggja sem mest viðskiptafrelsi..".
Það er erfitt að ímynda sér að frá Alþingi sem inniheldur þvílíka hjörð af sundurlyndu afturhaldsfólki geti komið eitthvað sem til framfara horfir á atvinnusviði landsins, virkjanir sem annað. Enda fer tíminn þar í salnum í meiningarlaust karp og málþóf sem engu skilar nema samræmdu pólitísku sjálfsmorði þeirra sem ætla að samþykkja Orkupakka 3 þann 3. september.Almenningur er löngu hættur að botna í málum og verklagi á þeim bæ.
Hugsanlega kemur ekki neitt tækifæri fyrr en eftir næstu kosningar hvernig sem ´"óður eða ölur ber að" og hvernig sú brenna fer.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.7.2019 | 09:41
Erum við ekki aumingjar
Islendingar? Getum ekki grafið Fjarðarheiðargöng?
Færeyingar eru að grafa neðansjavargöng til Suðureyjar sem eru 26kílómetrar.Og þeir eru með àætlun um næstu 5 göng.
Svo tölum við um að taka orku peninga og setja í einhvern Asíubanka sem þjóðarsjóð til að mæta næstu kreppu?
Svei mér þà,ég held að við séum aumingjar og heimskir til viðbótar.
17.7.2019 | 09:16
Stjórnmálakaffi
Pírata var haldið með liðugt tugi viðstaddra. Morgunblaðinu finnst það tíðindi að Píratar sem eru fulltrúar gagnsæis og heiðarleika demdu svívirðingum yfir hvorn annan og gáfu hvor öðrum einkunnir sem er varla forboði öflugs stjórnmálastarfs.
Sjálfur stofnandinn Birgitta Jónsdóttir, Alþingistölvusérfræðingur og vinur Assange er lýst óalandi og óferjandi og er kosin frá.
"
Ég upplifi ákveðið mannorðsmorð hér í kvöld og það er ekki fallegt. Þetta sagði Birgitta Jónsdóttir á félagsfundi Pírata í gærkvöldi eftir að Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, hafði meðal annar sagt um Birgittu að hún byggi til ósætti fremur en sætti og stærði sig af því.
Á fundinum voru greidd atkvæði um tilnefningar til trúnaðarráðs Pírata. Birgitta var tilnefnd en hlaut ekki nógu mörg atkvæði eins og mbl.is hefur greint frá. Hinir tveir sem voru tilnefndir voru samþykktir. Þetta voru þau Agnes Erna Esterardóttir og Hrannar Jónsson.
Helgi Hrafn fór ófögrum orðum um Birgittu í ræðu sinni þar sem hann benti á að hún ætti ekki erindi sem fulltrúi flokksins í trúnaðarráði. Hann hvatti aðra til að kjósa hana ekki af fenginni reynslu af samstarfi með henni. Birgitta býr til ósætti frekar en sætti og er algjörlega ófeimin við það og stærir sig af því. Hún krefst þess að aðrir leiti álits hjá sér en leitar ekki álits annarra. Hún grefur undan samherjum sínum ef hún sér af þeim ógn. Hún hótar þeim ef hún fær ekki það sem hún vill. Þetta sagði Helgi Hrafn meðal annars í ræðu sinni.
Eftir að Helgi Hrafn hafði útlistað ókosti Birgittu steig hún sjálf í pontu. Hún sagðist meðal annars ekki ætla að sitja undir þessu og viðurkenndi að hún væri slæm en ekki svona. Hún þakkaði jafnframt þeim sem höfðu kjark til að tilnefna sig til starfa fyrir flokkinn.
Skömmu síðar fékk Þórólfur Júlían Dagsson orðið. Þetta er ógeðslegasti fundur sem ég hef nokkurn tíma verið á, sagði Þórólfur og með þeim orðum lýkur broti af upptöku fundarins sem hægt er að sjá hér fyrir neðan.
Birgitta hefur ekki viljað tjá sig við fjölmiðla eftir fundinn.
Upptaka af fundinum birtist fyrst á Viljanum. "
Það er naumast að fundur í lýðræðislegu saumaklúbbsígildi getur orðið ógeðslegur?Maður hélt að að væri hægt að hittast huggulega í kaffi og hlusta á t.d. Þórhildi Sunnu tala um Ásmund Friðriksson eða forsætisnefnd Alþingis? En svona stjórnmálakaffi kemur óvönum utanaðkomandi á óvart.
16.7.2019 | 15:47
Er stjórnsýsla okkar geðdauf?
Hún virðist ekki geta brugðist við nokkrum sköpuðum hlut.
Bjarni Benediktsson keypti Geysisvæðið fyrir árum síðan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.7.2019 | 11:21
Hvað vill Björn sjálfur?
þegar hann skrifar um ESB?
"Viðræðurnar sigldu í strand strax á árinu 2011 af því að ESB-menn skiluðu ekki umsögn sem var nauðsynleg til að ræða sjávarútvegsmálin. Lá í augum uppi að Íslendingar yrðu að sætta sig við sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB, afsala sér ráðum yfir 200 mílunum og sætta sig við ákvarðanir ESB um leyfilegan hámarksafla.
Upp úr áramótum 2013 þegar dró að þingkosningum ákvað Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra að setja viðræðurnar á ís í von um að minnka ágreining um málið í kosningabaráttunni.
ESB-flokkarnir fengu mjög slæma útreið í kosningunum vorið 2013 og mynduð var ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, þáv. formanns Framsóknarflokksins, Gunnar Bragi Sveinsson, þá í Framsóknarflokki, varð utanríkisráðherra. Saman stóðu þeir að því að draga ESB-umsóknina til baka. Efasemdarmenn telja að ekki hafi verið gengið nægilega tryggilega frá málum með þessum tilkynningum þeirra félaga. Hvað sem því líður líta Brusselmenn ekki þannig á að Ísland sé í hópi umsóknarríkja.
Í Fréttablaðinu er rætt við Jón Steindór Valdimarsson, núv. þingmann Viðreisnar, sem fyrir 10 árum (áður en Viðreisn kom til sögunnar) var formaður samtakanna JÁ Ísland sem börðust fyrir ESB-aðildinni.
Hann efast ekki um réttmæti umsóknarinnar en segir:
Ríkisstjórnin hefði átt að sýna meiri festu. Miðað við það sem við vitum nú hefði verið skynsamlegt að hafa tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildina. En á þeim tíma var ég sjálfur algjörlega mótfallin því.
Telur hann trúlegt að Íslendingar hefðu samþykkt aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann segir röksemdir fyrir inngöngu Íslendinga í ESB sterkari í dag en fyrir 10 árum vegna stöðunnar í heimsmálum. Jón Steindór tekur undir með þeim sem telja að Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi hafi ekki bundið enda á tengslin við ESB sem stofnað var til með umsókninni fyrir 10 árum. Hann segir:
Þó að ferlið hafi verið stöðvað þá verður að líta svo á að Ísland sé enn þá með umsókn inni. Það ætti að vera hægt að endurræsa það án þess að fara í gegnum allt upphafsferlið Evrópusambands megin.
Hér á landi hefur sú mikilvæga pólitíska breyting orðið að fleiri eru afhuga aðild að ESB en áður og enginn flokka vill hreyfa við þessu máli án þess að hafa fyrst fengið umboð þjóðarinnar til þess."
Hvað skyldi Björn sjálfur vilja gera í sambandi við ESB?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Hvað hefur hann rukkað mikið inn á svæðið síðan? Hvað rukkar Óskar Magnússon á degi hverjum inn í Kerið? Alltaf fullt þar eins og Geysi? Af hverju erum við svona miklir athafnaræflar Íslendingar? Gerum ekkert nema seint og illa.
Af hverju líðum við Afgananum að koma hingað með tvo stráka sem við höfum ekki hugmynd um hvort eru synir hans eða ekki og heldur ekki hvort hann stakk móður þeirra af. Hvort hann er ekki bara ótíndur Kidnapper á flótta? Hann heimtar að fá að vera hér áfram þó að hann eigi að vera í Grikklandi. Hann segist vera hræddur við mág sinn sem sé glæpon. Hvernig komst hann yfirleitt hingað inn? Gildir ekki alþjóðlega flóttamannaverndin hans í Grikklandi en á hún erindi hingað?
Af hverju gefumst við upp fyrir hvaða sögum sem hælisleitendur segja okkur? Trúum hverju sem er svo sem að skeggjuð börn séu fjórtán ára? +
Við megum ekki spyrja hvaðan koma fylgdarlaus börn? Af himnum eða hvaðan? Af hverju erum við svona fákæn í hegðun?
Við megum ekki efast þegar hælisleitendur segja hvaða sögur sem er? Við segjum þá í fullum rétti til skjalafalsana og lyga.Alls kyns lýður sem getur verið með allskyns sjúkdóma og jafnvel glæpasögur að baki?
Helga Vala og fleiri lögfræðingar lifa á að sleikja þetta lið upp. Er enginn búinn að fá upp í kok af þessum sífellda geðdaufa stjórnsýsluræfildómi sem tekur helst ekki á neinu vandamáli?