24.4.2011 | 10:31
Ófullir við ábyrgðarstörf
segir Jón Magnússon í bloggi sínu, að franska óeirðalöggan eigi framvegis að vera. Félagar í henni mega ekki smakka það meðan þeir eru að berja mótmælendur. Þeir létu mynda sig við slíkt athæfi kallarnir og þessvegna er skrúfan sett á þá. Aðrar löggur mega fá sér dropa og dropa meðan það er ekki tiltökumál. Á Íslandi er maður sem drekkur einn sjúss búinn að missa öll mannréttindi og er útlægur með það sama.
Hafa menn nokkurntímann velt því fyrir sér, að flestar þessar reglur um áfengisnotkun eru til komnar vegna minnihlutans sem getur ekki farið með það. Það má enginn drekka bjór og keyra bílinn sinn heim, þó að 96 % fólks geti það alveg. En það eru 4 % fólks sem er klikkað, óabyrgt, illa siðað og óuppdregið og hættulegt öðru fólki hvort sem það er fullt eða edrú. Þetta er bara staðreyndin. Hérna er löggan með allt þetta þeferí af saklausu fólki bara til þess að nappa einhvern af þessum 4 % og öll lög sniðin eftir þeim.
Það er líka bannað að keyra bíl eftir drykk í Ameríku. En löggan þar er ekkert að abbast uppá fólk á heimili sínu, sem er líka bíllinn, meðan það gerir ekkert af sér í umferðinni. Sem gengur alveg þokkalega viðast hvar. En ef þú gerir eitthvað af þér og ert fullur, þá Guð hjálpi þér. Þessvegna tekur fólkið þar yfirleitt ekki sjansinn. Nema 4 % fólkið,sem er líklega þar kannski stærri hópur, sem fer aldrei eftir neinu.
Ábyrgur maður drekkur ekki þegar hann þarf að gera eitthvað sem hætta getur stafað af. Keyra bíl, fljúga flugvél eða þessháttar. 4 % fólksins drekka hvernig sem á stendur og er sumu skítsama þó það drepi einhvern. Þessi hópur stendur fyrir öllu havaríinu í þjóðfélaginu. Hitler tók þenna hóp úr umferð og geymdi þá í búðum. Í þriðja ríkinu gat hvaða kona sem er gengið um hvaða garð sem var án þess að óttast árásir þekktra nauðgara eða þekktra glæpamanna. Gamlir Þjóðverjar minntust þessara tíma sem jákvæðra burtséð frá öðru sem fylgdi.
Ég var að horfa á mynd af Kúbukrísunni. Þar sést að Kennedy og samstarfsmenn fengu sér í glasið meðan þeir voru á fullu að reyna að aftýra heimstyrjöld. Get ég vitað hvenær Bandaríkjaforseti eða Pútín fá sér í glas? Hitler var bindindismaður, Churchill drakk stundum flösku á dag, Truman sló ekki höndinni á móti "a small libation" osfrv. Áhrif drykkjar eru ekki þau sömu á alla menn. Menn eru ekki jafnir, það er staðreyndin.Vín gerir oft góða menn betri en vonda menn verri.
En það á að vera sjálfsagt að menn séu áberandi ófullir í vinnunni, t.d á Alþingi. En það er langur vegur á milli hófs og óhófs við ábyrgðarstörf og jafnvitlaust að vera með einhverja fanatík þegar hún á ekki við alla, hvað þá mikinn meirihlutann.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.4.2011 | 17:59
Riverjet
bátar eru farnir að sigla á Hvítá á svæðinu kringum Brúarhlöð. Þetta eru mikil kraftaskip, knúnir mörg hundruð hestöflum og spýta vatni niðurúr sér til að drífa sig áfram. Einhver munur en að fljóta á einhverjum tuðrum niður ána eins og búið er að gera í mörg ár.
Í Hvítá höfðu bændaskammirnar hérna uppfrá einhverja laxveiði í net hér áður fyrr. En mikið af laxi gengur upp Hvítá allt upp að Gullfossi held ég. Laxinn á víst það erindi eitt í ána að hrygna og til að láta veiða sig. Hrognin eru líklega einhverstaðar vel geymd á botninum og verða að stórlöxum í fyllingu tímans.
Sjálfsagt rótar þessi bátur ekkert í þessu vistkerfi, er algerlega vistvænn og algerlega óviðkomandi búandköllunum á árbökkunum. Allt hafa eigendurnir bátanna sjálfsagt þaulrannsakað áður og látið Veiðifélag Árnesinga vita eða Drífu á Torfastöðum. Því ekki höfðu þeir neitt fyrir því að bera þennan rekstur undir neinn af þeim landeigendum sem að svæðinu liggja enda framangreindir aðilar best til þess bærir að fara með málefni þeirra og laxveiðihagsmuni.
Það er áreiðanlega svaka gaman að fá sér bunu í þessum bátum, kostar bara fjögurþúsund krónur kortérið fyrir hvern af 10 farþegunum borð. Enda fyrirtækið búið að opna nýjar höfuðstöðvar í glæsihúsi í Reykholti. Bendir þetta til þess að starfsemin gangi vel og er eigendunum óskað til hamingju með þetta.
Er ekki tilvalið að útvíkka þessa starfsemi. Svona bátar gætu orðið mikill yndisauki á Þverá-Kjarrár svæðinu og Norðurá líka. Það er hundleiðinlegt að standa þar með laxastöng fyrir hundraðþúsundkall og ekkert ber kannski fyrir augun nema ein og ein kría. Þá kæmi svona bátur með boðaföllum og drunum þannig að menn féllu í stafi yfir ósköpunum og lífgaði upp daginn. Þannig gætu líka þeir sem ekki eiga hundraðþúsundkalla fengið að sjá þá dásamlegu hluti af landinu sem aðeins þeir ríku sjá allajafna á þessu svæði.
Blanda væri líka tilvalin fyrir svona útgerð. Svo má benda á að þetta myndi lyfta öllu umhverfi Sogsins og svo auðvitað myndi umferð svona báta lyfta öllu vatnasvæði Hvítár og Stóru Laxár allt til ósa.
Það er gleðilegt þegar framtakssamir menn brytja uppá nýjungum í svona sprotafyrirtækjum í sátt við sjálfa sig, náttúru landsins og þá sem í landinu byggja.Hér mun ekki þurfa nein umhvervismöt eða önnur leiðindi sem oft er verið að rövla um þegar eitthvað á að gera.
Allir um borð. Riverjet, það er kikkið sem þig vantar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2011 | 12:56
Nýjir vendir
óskast þegar í stað, skildist manni á máli rithöfundanna sem voru í útvarpinu áðan. Allt traust fólks á Alþingismönnum væri farið því að miðjan í þjóðfélaginu hefði skaddast. Ein konan í hópnum lýsti því að þetta væri eins og með manninn sem héldi framhjá konunni sinni. Ef hún fyrirgæfi honum og hann lofaði að hætta framhjáhaldinu væri samt allt í ólagi, konan væri sífellt tortryggin og hann fyndi það greinilega og gæti því hrasað aftur. Sama væri með drykkjumanninn sem lofaði að hætta en dytti samt í það.
Okkur vantaði því fólk sögðu rithöfundarnir sem við gætum treyst því allir og einhveer nýfrjálshyggja hefðu brugðist okkur. Við yrðum að fá svoleiðis fólk á þing sem við gætum treyst að héldi ekki framhjá og væri ekki sífellt á einhverju fylleríi. Ekkert hefði breyst í þjóðfélaginu síðan í hruni , þeir ríku væru enn ríkir en þeir fátæku fátækari og öryrkjar hefðu það líka verra. Þetta fólk yrði að fá meiri peninga svo það gæti keypt sér bók og helst miða í Hörpuna líka.
Þarna er þá kominn uppskrift að þingmanni sem hægt er að uppfylla. Ef maður er orðinn svo gamall að maður er orðin jafnfótkaldur og óbrúklegur til kvenna og Egill Skallagrímsson lýsti sjálfum sér í kvæði sínu, orðinn til viðbótar svo leiðinlegur að enginn vill hvort sem er drekka með manni, er maður þá ekki kominn áleiðis með að standast væntingar rithöfundanna ? Er slíku fólki ekki best treystandi?
Rithöfundarnir sögðust vissir um að Jóhanna og Steingrímur vildu gera vel fyrir þjóðina. Þau bara gætu það ekki. Allt hefði mistekist hjá þeim. Það yrði því að fá þetta nýja fullkomna fólk sem væri ekki með þessa svika-eiginleika eins og allir þessir Alþingismenn. Þjóðin væri gersamlega búin að fá nóg af þessu liði og tapa öllu trausti sínu á því. Við yrðum að velja nýtt fólk til forystu.
Bingó, þá vitum við hvernig á að velja Alþingismenn. Helst náttúrulausir bindindismenn koma til greina. Þeim geta rithöfundarnir treyst. Þeir verða ekki með þessi sífelldu svik og framhjáhöld eða vera fullir í vinnunni. "Því flestir eru bara venjuleg svín" eins og Nóbelsskáldið sagði í kvæðinu.
Góður vinur minn Sveinn K. í Völundi sagði eitt sinn þegar upp komst um fjárdrátt hjá þekktum bindindismanni, að menn gættu ekki að því að summa lastanna væri alltaf konstant. Jón vinur minn sagði líka að maður ætti alltaf að gjalda varhug við að trúa bindindismönnum fyrir peningum, því þeir treystu ekki sjálfum sér fyrir brennivíni. Ég man nú ekki hvort hann gaf kvennamönnum sérstaka peningaeinkunn, né heldur að ég muni hvaða álit hann hafði á fyllibyttum og flögurum þegar þeir eiginleikar mættust í sama manninum. En eru slíkir menn oftar en ekki í hávegum hafðir með íslenskri þjóð, sérlega ef þeir eru svo skáld eða stjórnmálamenn til viðbótar?
Guðbrandur Jónsson stakk uppá því að sérstöku salti yrði blandað í fæðu manna sem gerði þá heiðarlega, góðviljaða og vitra. Aðspurður um þetta salt sagði hann að það væri að vísu ekki til ennþá en menn hlytu að geta fundið það upp úr því að menn vissu til hvers ætti að nota það. Líklega verður það seint sem menn fái pottþétt betri pólitíkusa en þá sem maður eru búinn að missa. Kristinn í Björgun sagðist ekki hafa rekið vélstjórann sem tók negluna úr skipinu hans svo það sökk næstum því,- Hann gerir það pottþétt ekki aftur" sagði Kiddi.
Hugsanlega gætu rithöfundarnir skoðað skoðanakönnunina til hægri hérna á síðunni. Eru þeir vissir um að einhverjir nýir frambjóðendur verði endilega betri en þeir sem flest atkvæðin fá þar?
Trúum við ekki á nýja leiðtoga þar til að þeir bregðast? Trúum við ekki alltaf á nýju fötin keisarans?
Sópa ekki nýir vendir alltaf best?
20.4.2011 | 19:31
Bananastappa með lýðræðisívafi
er eiginlega það lýðræðisform landsins sem að okkur kjósendum snýr.
Hvar í veröldinni myndi svona ríkisstjórn eins og sú sem hér situr, sem er búin að tapa tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum í röð sitja áfram ? Að maður ekki tali um að hún höktir á hækjum dag fra´degi eins og bandarísk sápuópera og er í sjálfu sér sundurþykk í hverju máli. Gersamlega búin að ganga fram af meirihluta landsmanna að því að skoðanakannanir sýna.
Það er leitun að nokkru stefnumáli sem ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms hefur ekki svikið. Nema það að keyra Íslendinga áleiðis til Brüssel enda virðist annað ekki skipta hana nokkru máli. Tíuþúsund flúnir land og 14.000 atvinnulausir því þolanlegt ástand að hennar dómi. Hingað streyma agentar frá Noregi til að krækja í besta fólkið og halda fjölmenna fundi eins og Vesturfaraagentarnir gerðu á nítjándu öld.. Eftir sitjum við aumingjarnir, aldraðir og öryrkjar. En þeir hópar hafa sýnt mestan vöxt á síðustu árum. Sumir eru farnir að tala um öryrkja sem nýja atvinnugrein vegna gríðarlegrar og furðulegrar fjölgunar í stéttinni á undanförnum misserum.
Stjórnarfarið á Íslandi um þessar mundir er eiginlega besta falli hrein bananastappa með lýðræðisívafi.
19.4.2011 | 22:29
Uffe minn!
hvernig geturðu verið svona leiðinlegur ? Ég sem hef komist næst því að verða Evrópusinni af að hlusta á þig á Hótel Sögu í gamla daga.Þá varstu svo fjandi skemmtilegur. Nú ertu bara fúll á móti þó þú sért ennþá flottur. Segir að við Íslendingar verðum að borga Icesave. Er það svo?
Stofnuðum við ekki Tryggingasjóð Innistæðueigenda löglega? Var ekki greitt í hann samkvæmt lögum? Er nokkur ríkisábyrgð á slíkum sjóðum hjá þér eða í öðrum Evrópuríkjum?
Hvernig getum við þá skuldað annað en það sem er í sjóðnum ? 25 milljarðar eða svo? Við urðum að þykjast hafa ríkisábyrgð á innistæðum á Íslandi af því að Geir Haarde sagði það til að róa okkur niður því við vorum að missa stjórn á okkur.Algerlega Force-Meilleure ábyrgðarlaus yfirlýsing því Alþingi samþykkti svo aldrei neina ríkisábyrgð. Þá eer ekki og hefur aldrei verið nein ríkisábyrgð á innistæðum samkvæmt stjórnarskránni.
Þetta er bara bull í þér Úffi minn. Það ert þú sem ert galinn en ekki hann Óli Forseti. Þú segir að hann sé lýðskrumari þegar hann vísar málinu til þjóðarinnar í andstöðu við Alþingi. En hvað ertu þá sjálfur þegar svo illa horfir í Evrópusambandinu eins og núna ?
Það breytir engu þótt Lykketoft taki undir með þér og segi að Ólafur Ragnar sé galinn. Ólafur bjargaði íslensku þjóðinni frá sjálfsmorði ekki einu sinni heldur tvisvar þegar þingið hafði tapað glórunni. Margrét Þórhildur gæti tæknilega alveg gert það sama hjá ykkur.
Hvernig ætlar þú að taka á því Úffi minn þegar múslímarnir fara að heimta að þú samþykkir sjaríalög ? Ég ætla að sjá hvað þú gerir þá. Samþykkir sjálfsagt eins og sannur krati. Ætli einhver verði ekki feginn að hafa Þórhildi Drottningu þegar að því kemur?
Við Íslendingar borgum ekki Icesave Úffi minn hvað sem þú og Lykketoft talið illa um Óla Forseta og reynið að snúa útúr staðreyndum málsins.
Við endurkjósum hann Ólaf Ragnar sem Forseta. Þó ekki nema væri Úffa og Lykketoft til skapraunar. Þjóðin verður einhuga að baki Ólafi fyrir að bjarga þjóðinni ekki einu sinni heldur tvisvar! Minna má eki vera !
18.4.2011 | 18:39
Skrípamyndin af Siv
finnst mér ekki vera þess virði að framsóknarmenn og feminístar séu að æsa sig. Það þarf ekki mikið innsæi til að sjá hana í svona spaugilegu ljósi þar sem hún stendur og veifar til ríkisstjórnarinnar um að taka sig með. Gegn borgun auðvitað, hún fer ekki að styðja Jóhönnu og Steingrím án þess að fá eitthvað fyrir það sjálf.
Í Bandaríkjunum má segja hvað sem er um Forsetann og hann verður að þola það óbætt. Hann má ekki bera hönd fyrir höfuð sér því það fylgir embættinu. Hann getur ekki höfðað meiðyrðamál. Ég hugsa að hann geti ekki einu sinni sent CIA til að berja teiknarann eins og múllarnir senda´leigumorðingja af stað ef einhver teiknar skrípamynd af spámanninum. Við erum svo hræddir við þá að enginn íslenskur fjölmiðill þorði að birta myndirnar úr Jyllandsposten að því ég best veit. Skaðaðu ekki skálkinn svo hann skemmi þig ekki.
Mér fannst ekkert að þessari mynd af Siv og hrein hræsni eða heimska að vera að geysa sig yfir þessu. Enda vekur það enn meiri athygli á hvað Siv er í raun að gera. Hún er nefnilega að gera akkúrat þetta, selja sig pólitískt.
Það er engin skrípamynd heldur grafalvarleg staðeynd fyrir alla þjóðina.
17.4.2011 | 11:10
Kjarabætur í krónum !
eru nú loks mögulegar.
Það er mikið talað um nauðsyn á þriggja ára kjarasamningi. Ef það tekst ekki vegna kvótamálanna, þá er talið hægt að semja til skemmri tíma. Og nú eru þær aðstæður í þjóðfélaginu, að það er hægt að semja um raunverulegar kjarabætur til allra. Í fyrsta sinn lengi. Af hverju?
Það eru núna gjaldeyrishöft í landinu. Genginu er handstýrt af Seðlabankanum. Það er mikið talað um að Íslendinga skorti alvörugjaldmiðil eins og þeir kalla það. Hann verður að heita eitthvað annað en króna segja þeir. En hversvegna ekki að gera krónuna betri?
Látum Má hækka gengi krónunnar um 10 % Í stað þess verða engar taxtahækkanir. Fylgt verði eftir að allur innflutningur lækki í takt við gengið. Allir fá meira fyrir krónuna sína í búðinni. Bensínið lækkar, brauðið lækkar. Allt lækkar nema kannski kaupið hjá skilanefndunum.
Sjálfsvirðing Íslendinga vex sem afleiðing af þessu. Traustið innanlands vex.
Af hverju ekki að semja um kjarabætur í krónum í stað þess að semja um hreina verðbólgu eins og venja er í okkar hefðbundnum "kjarasamningum"
Fáum okkur kjarabætur í krónum !
17.4.2011 | 09:20
Afdalamenn í kaupstaðarferð?
dettur manni í hug í sambandi við för Steingríms J. og Árna Páls til Washington. Ekki finnst mér þeir reisulegir að sitja fyrir framan matsfyrirtækin og grenja um gott veður. Þeir hefðu átt að gefa þeim sitt undir hvorn og leggja áherslu á fánýti vinnubragða þeirra í einkunnagjöfinni til hrunbankanna 2008.
Segja þeim að skammast sín og líta raunhæft á málin sem gætu ekki verið annað en jákvæð til skemmri tíma að minnsta kosti vegna þess að ríkissjóður er ekki með neinar skuldbindingar vegna Icesave.
Þess í stað grenja þeir og kvíða fyrir einhverjum dómsmálum sem kannski aldrei koma
Treystum við þessum þreyttu mönnum ?
Eru þetta ekki bara afdalamenn í kaupstaðarferð til faktorsins fúla?
16.4.2011 | 13:02
Við klöppuðum í Valhöll
fyrir Bjarna formanni þar eð honum mæltist vel. Hann fór yfir muninn á því hvernig Sjálfstæðismenn vildu nálgast þau vandmál heimila og fyrirtækja og hvaða leið ríkisstjórnin fetar. Hann var þungorður um framgöngu bankanna gagnvart fyrirtækjum. Í raun væru þeir ekki að bjóða neitt annað en 100 % skuldsetningu, sem engin von væri til að eigendur þeirra hefðu áhuga á að taka þátt í. Bjarni lagði áherslu á nauðsyn þess að eigendur væru við stjórn í fyrirtækjunum. Fyrirtæki gengju ekki án áhuga og atorku eigenda sinna sem hefðu alla þekkinguna og viðskiptasamböndin sín megin. Þeir hefðu ekki áhuga að reka fyrirtækin sem skuldaþrælar bankanna. Hann vildi taka þessi mál bankanna hörðum tökum ef hann mætti. Hann vildi banna eignfærslu banka á lánum fyrirtækja sem væru í vanskilum.
Líflegar umræður urðu um þessi mál og voru fundarmenn einhuga um að þjóðinni lægi á að leysa atvinnumálin. En forsendan væri að þessi ríkisstjórn færi frá og kosningar yrðu haldnar. Það væri stóra verkefnið sem við blasti að mati fundarmanna.
Formaðurinn skýrði frá því að hann og meirihluti þingflokks hefðu viljað samþykkja Icesave lll en minnti jafnframt á að Sjálfstæðisflokkurinn allur hefði lagt áherslu á vilja sinn til að málinu yrði skotið til þjóðarinnar til endanlegrar afgreiðslu. Það væri nú að baki og tíminn myndi núna vinna með þjóðinni að lausn málsins.
Við klöppuðum í Valhöll fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn veit hvað hann vill gera en getur ekki gert vegna helstefnu ríkisstjórnarflokkanna, sem hanga við völdin eins og hundar á roði.
16.4.2011 | 07:19
Orkuveitan einkamál?
Reykvíkinga?
OR selur afurðir sínar miklu víðar en bara í Reykjavík. Henni er skipuð hver stjórnin eftir aðra. Þar er misjafn sauður í mörgu fé.
Uppsafnað ástandið eftir regeringstíð orkukóngsins Alfreðs Gíslasonar, oddamanns Framsóknar í R-listanum, er það að stórfelldar taxtahækkanir eru sagðar nauðsynlegar til að fyrirtgækið geti borgað af lánum á næsta ári. Heitavatnið er að verða tvöfalt dýrara í Kópavogi, Garðabæ, Mosó, Akranesi,Grímsnesi, uppsveitum Árnessýslu og Guð veit hvar ekki, heldur en það verð sem dugar Hitaveitu Seltjarnarness. Í rafmagninu er enginn samanburður þar sem búið er að rústa góða fyrirtækinu RARIK í Evrópubandalagsvanskapning með lagkökuskiptum valdapýramída RARIK-Orkusalan, og óþarfa milliliðum. Sjálfsagt er sama vitleysan þar í gangi með öllum silkihúfunum.
Ég er viss um að hefðu fulltrúar allra sveitarfélaga á orkusölusvæði OR setið í stjórninni með "Alfreð the Great", þá hefðu umræður um Tetralínu, Línu-Net, Risarækju og hvað það hét alltsaman, tekið lengri tíma og kannski orðið til þess að hægar hefði verið farið. Ég hugsa til dæmis að Gunnar Birgisson hefði hugsað meira um orkuverðið til Kópavogsbúa heldur en pendúlinn og eldhúsið í Orkuveituhúsinu svo eitthvað sé nefnt.
Af hverju fá fórnardýrin í jaðarbyggðunum ekki að hafa áhrif í stjórn Orkuveitu sinnar? Það er ekkert einkamál Reykvíkinga hvað heitavatnið kostar í Kópavogi.
15.4.2011 | 20:56
Fundur í Valhöll
með formanni og þingflokki. Líklega á að skýra hversvegna þingflokkur mínus fjórir ákvað að ganga til liðs við VG um að samþykkja Icesave.
Venjulegir Sjálfstæðismenn botna ekkert í því hversvegna þeir gerðu þetta ? Hvaða nauður rak þá til þess að ganga í þessi njörg kommúnista og krata?
Ætli eigi að skýra út fyrir okkur hversvegna allt þetta var svo þaulhugsað að við bara föttum ekki snilldina? Ætli eigi að sannfæra okkur um dómgreind þingflokksins mínus fjórir til þess að vísa þjóðinni veginn í öðrum málum? Hugsanlega er enn hægt að grípa til gamla trixins að sem hljóðaði svo: "Munið það piltar að þó við séum vondir þá eru aðrir verri",svo ég minnist orða Bjarna Benediktssonar fyrrum formanns flokksins yfir hausamótunum á okkur fýlupokunum í gamla daga.
Spurning sem ég velti fyrir mér um stjórnmálaforingja yfirleitt, hvort ekki sé betra að hafa samband við flokkinn sinn áður en menn gusast í svona stór útspil eins og Icesave samningarnir voru.
Mikið ef Steingrímur og VG eru ekki farnir að velta þessu fyrir sér?
Allavega er fundur í Valhöll á morgum og þar klöppum við sem aldrei fyrr.
15.4.2011 | 20:41
Það er ekkert að stjórnarskránni
sem réttlætir það að láta Jóhönnu Sigurðardóttir hafa þjóðina og þingið að fíflum með að búa til Stjórnlagaráð eftir að Stjórnlagaþingið klikkaði, eins og það væri einhver þörf á því að búa til nýja stjórnarskrá.
Þjóðin sá stjórnarskrána virka þegar gjá myndaðist milli þings og þjóðar og Forsetinn hlýddi kalli kjósenda. Það er ömurlegt að horfa á það hvernig ríkisstjórninni líðst að brenna upp peningum í þetta hugarfóstur sitt, kosningarnar frægu sem Hæstiréttur ógilti og svo farsinn og óvirðingin á Hæstarétti sem fylgdi á eftir. Ef hér verða kosningar þá ætti það að verða fyrsta verkið á eftir því að skipa annan Seðlabankastjóra að reka stjórnlagaráðið heim og loka sjoppunni.Frá þessu bullráði kemur ekkert sem neinn varðar um. Það er Alþingis að breyta stjórnarskránni ef einhver þörf er á og einskis annars og eitthvað lið úti í bæ hefur þar ekkert að segja.Ekki frekar enn fyrri stjórnarskrárnefndir frá 1944.
Mörgum finnst að Alþingi hafi verið tregt að breyta kosningafyrirkomulaginu þannig að lýðræði myndi ríkja á Íslandi fremur en jöfnuður á milli flokka eins og nú er. Eitthvert ákvæði um einhverja þjóðareign á fiskinum er algerlega óþarft þegar Alþingi ákveður að úthluta honum til gæðinga sinna og gefur skít í einhverja rómantík. Ómar Ragnarsson eða Þorvaldur Gylfason geta engu breytt í þessu efni og ættu þess vegna að sinna einhverju öðru. Ómar að skemmta okkur og Þorvaldur að fara í taugarnar á okkur, hér eftir sem hingað til.
Það er ekkert að stjórnarskránni sem getur batnað við afskipti þessa liðs sem ér stjórnlagaráð Jóhönnu Sigurðardóttur og kommúnista. Það er ekkert annað en venjuleg rakettusýning óhæfrar ríkisstjórnar til að tala um annað en eigið getuleysi.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.7.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko