Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011

Hver á að ákveða ?

skilyrðin sem stjórnlagaráðið sér fyrir sér um afnám friðhelgi heimilisins?

"Þrátt fyrir ákvæði fyrstu málsgreinar má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra. "

Lítill meirihluti kommúnista á Alþingi Íslendinga ? Eða bara Þorvaldur Gylfason sjálfur?


Kommaplaggið komið fram

frá stjórnlagaráði Jóhönnu.

Ekki er margt sem íhaldsmanni eins og mér finnst standa til bóta. Að 15 % kjósenda geti knúið fram þjóðaratkvæði er fáránlegt og stefnir beint í skrílræði í stað fulltrúalýðræðisins. Við gerum ekki mikið annað en standa í þjóðaratkvæðagreiðslum.

Eftirfarandi er í mannréttindakafla:

" leit á manni, leit í húsakynnum hans eða munum, nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Það sama á við um rannsókn á skjölum og póstsendingum, símtölum og öðrum fjarskiptum, svo og hvers konar sambærilega skerðingu á einkalífi manns.

Þrátt fyrir ákvæði fyrstu málsgreinar má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi
einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra. "

Mér hefði fundist þetta lið hefði átt að athuga praxísinn í þjóðlífinu fyrst? Hvernig ætla menn að samríma þau grundvallarbrot á mannréttindum sem framin voru þegar bankareikningar voru beintengdir við skattstofurnar? Grundvallarmannréttindi um leyndarmálin þrjú voru rofin. En allstaðar í siðuðum löndum eru í heiðri höfð leyndarmálin þrjú, bréfaleyndarmál, bankaleyndarmál og ríkisleyndarmál.

Hér í Alþýðulýðveldinu er allt opið. Enda þykir stuldur þarekki tiltökumál heldur sbr.tölvupóstar Jónínu fremur en að möguleg delínkventi hafi möguleg áhrif á skipan dómara í Hérðaðsdómi Reykjavíkur. Hvað hefur svona þjóðfélag að gera við einhverja aðra stjórnarskrá en það hefur? Brotaviljinn lagast ekki við það.

Þeir skemmti sér yfir þessu kommaplaggi sem vilja fyrir mér.

Ég gef akkúrat ekkert fyrir þessar tillögur enda hreint ekki í verkahring svona samkundu að vera að skipta sér af stjórnarskránni. Hún er verkefni Alþingis en ekki þessa liðs sem þarna dáðist hvort að öðru á minn og þinn kostnað.


Varla til svo vitlaus bankastjórn

að henni finnist í lagi að lána 14 % af bankanum til eins sveitastráks til að kaupa fasteignir.

Nema vitleysan sé þaulskipulögð eins og gjarnan hefur verið í BYR. Ekki hefði hann Jósafat gamli gert þetta svo mikið er víst. En svo fengu menn stórverðlaun fyrir að svókja SPK í hendur BYR og það þykir hið besta mál í íslensku réttarfari.

Ætli ekki finnist einhver tengsli við einhverja sem ekki eru sveitastrákar í BYR ef grannt er skoðað ? Þar hafa áður verið framkvæmd hin furðulegustu viðskipti svo maður verður eiginlega ekki hissa lengur. Það er varla til svo vitlaus bankastjórn...og þó?


Opnum fyrir innflutning á lambakjöti

til þess að létta beitarálagi á landinu og opna á samkeppni í sauðfjárrækt eins og í öðru.

Ég hef sannfærst um það í gegnum minn eigin túla að lambakjöt í Bandaríkjunum er alveg ætt og erfitt að hafna þeirri staðreynd að lamb er víðar ræktað en á íslenskum uppblæstri.

Er ekki hægt að spyrja Gylfa Arnbjörnsson álits á þessu? Þá þarf hann ekki að neita sér um lambakjöt sem ég er viss um að hann gerir nauðugur eins og ég.


"Integrity"

er hugtak sem er erfitt að þýða með einu orði á íslensku. Siðferðileg staðfesta nær nokkurn veginn merkingunni held ég.

Ég hef velt því fyrir mér hvort þurfi ekki að líta til aðaleiganda flugfélags þar sem fylgni þess við reglur er dregin í efa. Flugfélag fer með líf og limi lifandi fólks. Menn mega ekki efast um "integrity" á bak við félagið.

Það er ástæða til að spyrja slíkra spurninga í tilviki Iceland Express.


Er Sigurjón M. þjófur?

eða þjófsnautur?

Ég datt inn í að hlusta á Sigurjón M. Egilsson(mér fannst ég þekkja röddina, vona að mér skjátlist ekki) flytja mikla varnarræðu fyrir sig á Bylgjunni vegna þess að Óli Björn Kárason og Agnes Bragadóttir hafa verið að fjalla um að stuldur á tölvupóstum á Íslandi og innbrot í talsíma hjá Murdoch í London séu sami hlutur. Sigurjóni finnst að sér vegið þar sem þau séu að kalla hann þjóf fyrir að hafa birt tölvupósta Jónínu Benediktsdóttur. Sigurjóni finnst hann sárasaklaus af því að þjófurinn hafi látið hann fá póstana og hann birt þá.

Mér finnst þjófnaðurinn hafa verið þvílíkur glæpur á sínum tíma að mér finnst að Sigurjón hefði alveg eins átt að fara í gæsluvarðhald meðan leitað væri að þjófnum. En mér skilst að þetta þyki bara ekkert tiltökumál á Íslandi í blaðaheiminum að stela einkamálum fólks og setja í blöðin, með þjófinn sem millilið. Og Sigurjóni M. Egilssyni og fleiri blaðamönnum finnst það alveg í lagi eins og manni sýnist.

Ég var að horfa á myndina um Nixon í gærkveldi.Þar leiddu birtingar á leyniupplýsingum til afsagnar forsetans. Því hann var raunverulega flæktur í glæpamál. En þessum upplýsingum var lekið með broti á trúnaði en ekki aflað með beinum þjófnaði skildist mér eins og er í tilviki Sigurjóns og Murdochs.

Hvað sagði gamla máltækið um þjófinn sem þrífst en þjófsnautur eigi? Allavega veit ég ekki til þess að Jónína hafi fengið neinar bætur fyrir sínar þjáningar. Án þess að ég hafi nokkru sinni hitt hana Jónínu þá finnst mér hún vera sannkölluð þjóðhetja á meðan ég ég velti fyrir mér hvað kalla megi blaðamenn sem birti upplýsingar sem þeir vita að eru stolnar.


Til móts við fortíðina

Ég datt inná gamalt blogg frá einhverjum gaur sem ég varla þekki lengur. En mér fannst þetta ekki alvitlaust og mér dettur í hug að setja það inn hér.

"Það er oft gaman að hlusta á Jón Baldvin Hannibalsson. Á laugardagsmorgun var hann í útvarpinu ásamt fleirum í Krossgötum. Þar lýsti hann því að Reykjavík væri amerísk borg, urban sprawl,með engar almenningssamgöngur og 3 bíla á hvert heimili. En hann vildi ganga í Evrópusambandið og finnst hann vera Evrópumaður, enda var Lenin Rússi og maður gleymir ekki pólitískum uppruna sínum.

Mér fannst þetta athyglisvert og leiddi hugann að mörgu sem ég skil í raun ekki.
Það er alltaf verið að tala um að við séum Evrópuþjóð, sem eigi að ganga í Evrópusambandið og taka upp Evru. Við erum líka alltaf að taka upp Evrópustaðla og reglugerðir og lepjum allt upp hrátt sem þaðan kemur. Frjálst flæði innflytjenda og hver veit hvað.

Hvað er Evrópusambandið ? Það er tollabandalag gegn Bandaríkjunum sérstaklega og svo öllum utan bandalagsins. Það er innbyrðis hagsmunasamband sem hefur gert margt gott fyrir bandalagsþjóðirnar og haldið friðinn milli Þjóðverja og Frakka-, enn sem komið er.

Jón Baldvin kemst hinsvegar að þeirri niðurstöðu að við séum Evrópuþjóð, sem eigi að hanga aftan í Norðurlandaþjóðunum. Við séum hinsvegar varnarlaust rekald, sem er rétt..

Er þetta Evróputal ekki þráhyggja sem við erum hætt að efast um ? Erum við ekki miklu bandarískari að allri menningu og lífsstíl heldur en við tökum eftir. Væri okkur ekki hollara að taka meira mið af bandarískum stöðlum og reglugerðum heldur en að hanga svona í Evrópu.

Tölvan og netið eru fædd í Bandaríkjunum. Bandarískir staðlar voru langt á undan evrópskum stöðlum, sem eru í rauninni oft léleg stæling á bandarískum stöðlum, og auðvitað til muna ógreinilegri og þvælukenndari eftir að þýzkir grillufángarar hafa dritað í þá ótal breytum sem takmarkaða þýðingu hafa. Öll bestu burðarþolsforrit heimsins eru bandarísk og þau nota íslenzkir verkfræðingar . Þar þvælast bara evrópustaðlarnir fyrir þó að forritin verði sífellt betri og geti stillt sig á evrópskar kenjar sum hver. Allt þetta evrópukjaftæði bara stórspillir fyrir á flestum sviðum, til dæmis Rarik og Orkusalan, tveir reikningar fyrir einn og áfram má telja. Tveir einokunaraðilar í eigu sama aðila í stað eins með tvöföldum kostnaði er það sem Íslendingar hafa uppúr þessum eltingaleik við þessa Evrópuhugmynd.. En einkafyrirtækið Frumherji hefur svo einkaleyfi á öllum orkusölumælum ! Hvaða evrópuformúla skyldi það vera. ?

Þetta er ekki bandarísk nálgun að rekstri. Bandaríkin eru svo langt á undan Evrópu tæknilega, að þar skilur himin og haf. En okkur er innrætt að líta niður á þau af því að Bush sé bjáni og þeir eigi ekki neinar fornsögur eins og við. Þessvegna megum við ekki nota hér bandaríska staðla samhliða evrópustöðlum, ekki reikna í þeirra einingum ef við viljum og svo framvegis.
Flugið er líka fætt í Bandaríkjunum og flugeiningar eru bandarískar, fet, hnútar, mílur etc. Samt lepjum við upp allt frá Evróusambandinu, gott eða illt gagnrýnislaust , en blásum á allt bandarískt, bæði próf, menntun osfrv.. Sem eru þó mesta flugþjóð í heimi.

Mér finnst ég ekkert vera neinn sérstakur Evrópumaður. Mér finnst við Íslendingar séum ekki nein sérstök Evrópuþjóð. Við erum frjáls þ.jóð sem liggur á krossgötum sem getur nýtt það besta úr báðum heimum. Við lifum í amerískum stíl, við hugsum eins og bandarískur kapítalisti þó við séum enn sannfærð um nauðsyn öryggisnets þjóðfélagsins.

Við erum bílaþjóð sem vill ekki keyra í strætó, lifa í þröngum miðbæjum með fylleríi og sukki á götunum. Við viljum vinna og græða peninga og búa í úthverfum. Urban sprawl er það sem við viljum. Við viljum geta ferðast að vild en við viljum ekki yfirfylla hér allt með gagnkvæmni í innflytjendafjölda.

Evrópusambandið getur enga ákvörðun tekið ef kemur að hernaði.Sjáið þið hvað það gat gert í Bosníu . Það var bara Kaninn sem gat leyst það mál þó að það stæði Evrópusambandinu nær.

Það er ekkert gagn í norskri orustuþotu, því það er ekkert á bak við hana sem einhver hræðist. Bandaríska flaggið þýðir bisness. Á bak við það er ein þjóð með eina stjórn, vitlausa stjórn eða ekki, það er stjórn sem getur tekið ákvörðun og framfylgt henni. Í Evrópusambandinu er öllu skotið í nefnd, sem auðvitað getur aldrei afgreitt neitt. Því er ekkert gagn í varnarsambandi við Evrópu öðru vísi en hægt væri að gera hernaðarbandalag við einstakt ríki, Frakka eða Þjóðverja. Það er bara ekki hægt. Því verðum við að treysta á Bandaríkin okkur til hjálpar ef til stykkisins kemur auk þess sem við ættum að treysta á okkur sjálf í ríkari mæli.

Eigum við ekki að velta þessu Evróputali aðeins betur fyrir okkur? Evrópa hefur aldrei getað leyst sín mál sjálf. Hún hefur alltaf orðið að treysta á Kanann sér til bjargar þegar í harðbakkan slær. Og auðvitað hreytt skít í hann í þakklætisskyni þegar ógnin er afstaðin. Blair reyndi þó að vera vinur vinar síns í Irak og þeir Dabbi og Dóri líka En af því að allt gengur ekki eftir plani, þá stöndum við og görgum gegn Bandaríkjunum. Ekki finnst mér okkur alltaf farast stórmannlega."

Þetta er sjálfsagt raus úr fortíðinni og á ekkert erindi í nútímann eftir bankahrun og fleiri sviptingar. En þetta er skrifað í júni 2007, löngu fyrir Icesave, og helgina með Quaracchi á Gaddstaðaflötum um síðusu helgi.Skrifarinn orðinn meira elliær og vitlausari, ef ekki vonlausari en þá.

Koma og fara frægðarmenn, fara útí buskann senn. Eitt er víst að ég, ég er hér. Því ég er maðurinn hennar Jónínu hans Jóns.....

Bush er farinn, og við flest komin á hausinn. Trúum samt á Jón Baldvin og aðildarviðræðurnar. Stjórnlagagaráð Þorvaldar Gylfasonar, visku Seingríms og nauðsyn hærri "skatta á öll lífsins gæði".

Sumt breytist ekki, sumt breytist eitthvað.


Frábær frammistaða!

brúarflokks Vegagerðarinnar að brúa Múlakvísl á 5 dögum.

Í gamla daga fór það í taugar réttspekinga krata og jafnvel frjálshyggjumanna íhaldsins, að Vegagerðin væri að halda úti brúarflokk þegar nógir verktakar væru til að bjóða í verkefni. Nú virtist hafa skipt sköpum að hafa svona lið tiltækt sem hægt var að ræsa út.

Réttrúarmenn úr Samfylkingunni þegja þunnu hljóði yfir því hvað þetta er auðvitað gróft brot gegn rétthugsuninni um Evrópska Efnahagssvæðið. Að réttu hefði orðið að bjóða þetta út, sem hefði þytt teiknivinnu í margar vikur, síðan útboðsgögn í mögum liðum með spurningum um gæðakerfi bjóðenda, hvort þeir skulduði skatt, hvort þeir hefðu brúað margar Múlakvíslir á ferlinum, hver ætti að vera byggingastjóri og svo fram eftir götunum. Síðan hefði átt að auglýsa eftir tilboðum á EES og síðan fara yfir tilboðin, semja og ráðast í verkið hugsanlega snemma árs 2012 og ljúka því að vori.

Í stað þessa sýna Íslendingar enn einu sinni hvað í þeim býr. Þeir hlusta ekki á neitt "kjaftede" heldur vaða í hlutina, hvað sem líður evrópskum hvíldatímareglum og ráðherrum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, og byggja brú á 96 klukkustundum ef hana vantar.

Þetta er frábær frammistaða, hvað sem líður Evrópureglum. Ég er stoltur af þessum löndum mínum.



Mogginn sannaði sig

í morgun, þegar hann kom ásamt Rúmfatalagerstíðindum, Fréttatímanum og Baugstíðindum í hrúgu. Ég byrjaði á Rúmfó og sá þar margt auglýst sem mig vantar ekki. Samt er þetta gagnmerkt rit og hreint ótrúlegt hvað margt fæst mikið fyrir krónuna okkar.

Síðan kom Mogginn. Margt athyglivert, leiðarinn langur um hryðjuverk. Hann krækti í þversagnirnar sem Íslendingar standa að með vinskap Össurar við Hamas. En það sem fangar athyglina er grein eftir Gísla Holgeirsson kaupmann hvern ég ekki þekki. Gísli ritar frábæra grein undir heitinu "Nei takk fyrir Ísland"

Grípum niður í greininni:

..."Tveir stjórnmálaflokkar ráða ferðinni á Alþingi og eru þeir heilaþvegnir af almætti Evrópusambandsins fyrir Íslendinga, þvert á vilja meirihluta þjóða... Við erum Norður-Evrópuþjóð. Við eigum að fara »í var« með Norðmönnum, ef hægt er, sem eru ekki í Evrópusambandinu. Norðmenn eru kristnir eins og við Íslendingar. Þeir hafa náðina, eru hófsmenn og þar að auki moldríkir. Íslendingar og Norðmenn eiga bestu fiskimið á norðurslóðum. Við eigum líka mestu og stærstu gas- og olíusvæði á norðurslóðum. Norðmenn eru með bestu olíuleitartæki og klárustu vísindamenn til að fanga gas og olíu. Norðmenn yrðu harðir og heiðarlegir við okkur.
Við getum tekið Norður-Atlantshafs- og Norður-Íshafs-siglingar sameiginlega til rannsókna og siglinga. Vinir okkar, Norðmenn, fá tækifæri til að leysa alla okkar fjárhagslegu erfiðleika. Við greiðum skuldina síðar, hratt og örugglega.....

Glæsilandið og eyjan okkar er í Norður-Atlantshafi. Við erum frjáls og sjálfstæð. Við eigum eigið ritmál og talmál. Hér eru engar landamæradeilur. Þokan, veður, vindar og landvættir hafa verndað okkur frá örófi alda. Afurðir bænda á Íslandi og fiskurinn úr Norður-Atlantshafinu hefur gert okkur hrausta og langlífa. Nú hefur þetta görótta fólk, vinstri menn og konur, fundið tækifæri til að »leggja niður« íslenska bændur og færa okkur í staðinn eitthvað annað en fyrsta flokks matvöru frá fátækum Austur-Evrópulöndum. Þetta vekur ekki ánægju mína né margra annarra. Það er skelfing að hugsa til þess að tveir »örflokkar« ráði Íslandi þessi misserin. Samfylking og enn minni flokkur, VG, hafa eytt milljörðum frá fátækri þjóð við að koma Íslendingum inn í Evrópusambandið. Samfylkingin, sem hefur verið í teymi fyrirtækja Baugs og Haga til margra ára, hefur hugsanlega fengið það hlutverk að undirbúa og tryggja sömu fyrirtækjum allan innflutning frá Evrópusambandinu til Íslands á matvælum, lyfjum og byggingarvörum, svo eitthvað sé nefnt.....

... Höfum það í huga að ef Evrópusambandið vantar fiskinn okkar, fossa, flúðir og bergvatnsár, þá taka þeir það til sín. Sama gildir um virkjanir, rafmagn, háhitasvæði, álver, gas og olíu. Horfum til enn verri aðgerða gagnvart Íslandi: Landið er stórt og fámennt. Er ekki heppilegt að nota Ísland undir fangelsi stórglæpamanna? Eyjur hafa áður verið notaðar til slíkra hluta. Hvað með kjarnorkuúrgang frá stærstu löndum Evrópusambandsins? Það er stutt til Íslands en langt til Kína. Hvað með kristna trú og siði Evrópulanda?.....

.....Eru ekki um 600 milljónir af ólíku þjóðerni í Evrópusambandinu?
Einhver minntist á 65 milljónir múslima í Evrópu?...

Evrópusambandið er stríðsbandalag sem rekið verður af hörku. Það verða síðustu verk vinstri manna á íslensku Alþingi, að bjóða Ísland til sölu ESB þjóða á þjóðhátíðardag Íslendinga 17. júní. Þessu má enginn gleyma. Þá hafa Íslendingar flúið heimkynni sín vegna atvinnuleysis og skattpíningar. Viljum við glata þjóðerni okkar, móðurmáli og ritmáli? Nei......

Ég vonast til að við séum ekki að storma inn í vandasamt fjölþjóðasamfélag sem er að kljást við margvíslegan vanda, svo sem trúarlegan og fjárhagslegan. Ýmsir telja að innan skamms tíma verði barist hús úr húsi meðal ólíkra trúar- og trúarofstækishópa innan Evrópusambandsins vegna atvinnuleysis, hruns á evru og ósættis, sem aldrei verður hægt að leysa á skynsamlegan hátt.....

.....Hugsum til framtíðar fyrir okkar gjöfula og einstaka land. Það eru margvísleg tækifæri sem við Íslendingar getum nýtt okkur til að efla hér atvinnu og hag þjóðarinnar. Látum ekki glepjast þó nú séu erfiðir tímar.
Við viljum ekki vera vesæll »hreppur« í Suður-Evrópu. Segjum nei við óskum Samfylkingar og VG sem vilja selja föðurlandið til Suður-Evrópu. Snúum okkur að gömlum íslenskum gildum um leið og við horfum til betri tíma fyrir land og þjóð.Verum Íslendingar og segjum nei við Evrópusambandinu. Guð blessi eyjuna okkar, Ísland. "

Þetta fékk ég sem sagt af því að ég kaupi Moggann síðan í gær. Þetta finnst mér innblásin grein hjá Gísla Holgeirssyni sem mér finnst að ekkilesendur Mogganns þurfi líka að sjá og því tilfæri ég þessar glefsur hér.

Sem sagt, Mogginn sannaði sig þennan morgun með tilstilli Gísla kaupmanns.


Mogginn kom aftur

að morgni til mín og mælti og stundi við þungann:- Vildirðu  fara mér frá? Ég sem sannleikann á? Heldur háttunum ná?  heilli Evrópu hjá? Viltekki  línu hjá  mér?  til að létta lífshlaupið þér?

Góða skapið kom aftur og settist með morgunkaffið og Moggann.  Að lokinni yfirferð til að reyna að finna línuna þá fletti ég nú Fréttablaðinu samt og las Þorvald Gylfa. Þar örlar á stjórnarskrárhugmyndum með fyrirmynd frá Kenía um hvernig á að skipa Hæstaréttardómara í stað þess að láta einhvern Davíð gera það. En það er að láta heldur forsetann skipa þá eftir að umsækjendur hafa komið fram í skemmtiþáttum í sjónvarpi og fólkið hefur kynnst þeim. það verður aldeilis fróðlegt að sjá hvað stjórnlagaráðið kemur með allt á endanum þegar Þorvaldur er þarna kominn með Kenía sem útspil handa Íslendingum í stjórnarskrárkapli Jóhönnu Sigurðardóttur.

Á stjórnlagaráði sitja alls kyns spekingar uppá kaup  og reyna að búa til nýja stjórnarskrá sem engann vantar í atvinnu-og úrræðaleysinu. Það verður ljótan ef svo á að taka tíma frá Alþingi við að fara ræða þessar tillögur allar þegar brýnni mál bíða. Við getum alveg búið við núverandi stjórnarskrá áratugi enn hér eftir sem hingað til, því landsbyggðin mun aldrei una þéttbýlinu jöfnuðar í atkvæðisrétti frekar en Gaddafi vilji láta völdin í hendur réttlátra.

Þá er nú betra að fá blaðið sitt með línuna eins og sagt var í gamla daga. Trikkkið hjá Mogganum virkaði. ég gerðist áskrifandi í gær. Gat ekki hætt eftir að hafa vanist á það í mánuð. Nú er ég áskrifandi en BARA út mánuðinn, svo þá  kannski reyni ég að hætta aftur.

Ef ég get?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418198

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband