Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2015

Ótrúlegt !

er það sem maður les í Staksteinum Mogga.

"Lög sem sett voru árið 2013 og gera það að verkum að olíufélögin verða að setja íblöndunarefni í eldsneytið eru vafasöm fyrir margra hluta sakir. 

Fyrir það fyrsta voru vinnubrögðin við lagasetningu stórundarleg, þar sem í ljós kom að tiltekinn hagsmunaaðili hafði samið lögin.

 

Þá hefur verið bent á að lögin, sem sett voru til að mæta tilskipun frá ESB, ganga mun lengra en þörf var á og væru jafnvel alveg óþörf ef stjórnvöld hefðu frekar farið þá leið að sækja um undanþágu, sem ætti að vera sjálfsögð miðað við hve stór hluti orkunýtingar hér á landi er frá umhverfisvænni orku.

  

Einnig hefur komið fram að lögin hafa leitt til þess að miklar fúlgur af dýrmætum erlendum gjaldeyri hafa farið í að kaupa íblöndunarefnið, langt umfram það sem eldsneytið sjálft kostar. Þar við bætist að eldsneytið nýtist verr með íblöndunarefninu í, sem eykur líka kostnað bíleigenda. 

 

Nýjast í þessu máli er svo að Samkeppniseftirlitið bendir á það í nýrri skýrslu sinni um eldsneytismarkaðinn að þessi lagasetning sé samkeppnishamlandi og hafi einnig þannig orðið til að auka kostnað neytenda. 

 

Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp Sigríðar Andersen og nokkurra annarra þingmanna um að vinda ofan af þessar vitleysu. Alþingi hlýtur að afgreiða frumvarpið með hagsmuni íslenskra neytenda í huga."

Er þetta afrek hjá Sigríði Andersen eða er þetta vitni um sofandahátt núverandi ríkisstjórnar að hafa valdið neytendum þessum skaða og halda því áfram? 

Hverskonar vinnubrögð eru þarna við Austurvöll? Er þetta fólk að vinna fyrir almenning eða einhverja aðra? Hvar er virðing Alþingis stödd? Er þetta umhyggjan fyrir smælingjunum að láta þá borga meira fyrir bensínið? 

Langafi minn, hann Jón Ólafsson, gekk þaðan út einn góðan veðurdag fyrir margt löngu, sagði af sér þingmennskunni og sagðist ekki geta setið stundinni lengur með þvílíkum mönnum sem þar væru innan dyra. Enda var hann um margt á undan sinni samtíð hann Jón Ólafsson. Hann átti það eftir löngu síðar að segja af sér þingmennsku og öllum eftirlaunum af sömu ástæðum.

Þá voru líklega bæði launin og eftirlaunin ekki eins góð og þau eru í dag sem gera það að verkum að menn hanga á þingmennskunni sinni eins og hundar á roði. Hver skyldu mánaðareftirlaun Steingríms J. Sigfússonar, sem setti lögin um íblöndunina, sem hins þingelsta verða þegar hann loksins hættir? 

Jón Ólafsson barðist fjárhagslega í bökkum til æviloka vegna seinni afsagnarinnar sem hann gerði í bræðikasti vegna þess að vera ekki skipaður í bygginganefnd Safnahússins. Hann hafði nefnilega 8 ára starfsreynslu að baki sem bókavörður í Chicago umfram alla þálifandi Íslendinga. Hann reiddist svona illa þegar Landlæknirinn var tekinn fram yfir hann í nefndina.

 

Jón þessi fékkst við margt um dagana. Hann gaf út stafrófskver handa Íslendingum í meira en 16000 eintökum rétt eftir aldamótin 1900 og kenndi greinilega flestum Íslendingum af þeim kynslóðum að lesa. Hann varð ritstjóri fleiri blaða en nokkur Íslendingur til þessa dags.

Jón Ólafsson kenndi í Verslunarskólanum og samdi eitt fyrsta íslenska fræðiritið í Hagfræði sem afkomandi hans, Ársæll Valfells lektor, hefur endurútgefið.

Hann varð líka þjóðskáld með "Máninn hátt á himni skín." Hann dró að sér konur sem segull stál og þjáðist í hljóði vegna fjarvista við börnin sín mörg og fjarlægu því hann var án efa tilfinningaríkur maður. 

 

Í dagsins önn var Jón Ólafsson höfundur nýyrðanna:

Lindarpenni,strokleður,afbrigðilegur, bandalag, dómgreind, eldmóður, félagslund, fjölbreytni, fjölhæfi, fjölhæfni, formælandi, talsmaður, frumkvæði, frumlegur, frumleiki , hugðarefni, hugnæmur, íhlutun, jákvæður, neikvæður, misbeita, ófremdarástand, ofstækismaður, raunhæfur, raunvísindi, réttmætur , rétttrúaður, rökleiðsla, rökræða, samkeppni, sérlyndi, siðmenning, skilgreina, smásálarskapur, stjórnmálamaður, umburðarleysi, uppeldisáhrif, valdhafi, vanmeta, viðfangsefni, víðtækur, þröngsýnn.

Flest orðin eru  notuð enn í dag. En Jón varð að búa þau til til að geta tjáð hugsun sína fyrir einföldum sálum á þeirri tíð.

Jóni Ólafssyni var hinsvegar ávallt mest í nöp við heimskuna ótrúlegu í fari mannkynsins og reyndi ávallt að kenna og uppfræða alþýðu.

Hann mælti við mann af munni fram daginn áður en hann dó, 67 ára gamall:

"Höndin skelfur, heyrnin þverr,

helst þó sálar kraftur.

Sjónin nokkuð ágæt er

og aldrei bilar kjaftur".

En er ekki gott þegar menn geta með stífri efrivör gert góðlátlegt grín að sjálfum sér að leiðarlokum eins og Jón þessi Ólafsson sem kallaði sjálfan sig ævintýramann? Og hafði nokkuð til síns máls.

Hefði Jón sætt sig við þá íblöndun bensíns sem myndi rýra kjör lítilmagnanna eins og samþykkt Alþingis ber vitni?.Var þetta ekki sama fólkið og snökti af umhyggju fyrir fátæka fólkinu fyrir kosningarnar? Hefði Jón Ólafsson samþykkt svona ótrúlegt "ófremdarástand" í eldsneytismálum fátæks fólks?

 

 


Sámur fóstri

 

Loksins, loksins!  
 
Sámur fóstri er kominn út í 20.000 eintökum. Hann er 44 bls. að stærð og var* prentaður í Landsprenti eftir hádegi í gær. 
 
Verður dreift 14. og 15. desember af Íslandspósti í 19097+ póstkassa milli fjöru og fjalla frá Kirkjubæjarklaustri um allt Suðurlandsundirlendi og Vestmannaeyjar, öll Suðurnes og Reykjanes til Voga á Vatnsleysuströnd.
 
Auglýsendur  mun örugglega finna fyrir talsverðri söluaukningu frá þessum dögum. 
 
Enda hvernig væri hægt að afsanna það?
 
Vonum að allir auglýsendur verði með í næsta tölublaði þar sem Sámur fóstri hefur vaxið mikið á skömmum tíma og fylgir fast sínum vinum sem sá gamli frá Hlíðarenda gerði á dögum Gunnars. En án auglýsenda kemur svona blað ekki út. Þeirra skulu allir lesendur minnast hlýlega, sem hafa gaman af að lesa þetta blað. Sem ég held að sé bara skemmtilegt og fróðlegt. 
 
Ef þið, sem örlögin hafa sett niður til búsetu utan þessara framantöldu svæða sem Ingólfur fór um á leið sinni til Reykjavíkur og svo auðvitað allt dreifbýlis-og sjófólk um allt land, þið þurfið ekki að fara á mis við blaðið og getið skoðað það strax með því að fylgja þessum tengli:
 
 
Vona að ykkur líki blaðið og megið gjarnan láta álit ykkar í ljósi á hvorn veginn sem er. Því eins og Mark Twain vissi að betra er illt umtal en ekki neitt. 
 
Hver var hann Sámur fóstri? Það veit auðvitað allt Njálufólk. Ekki allir vita samt að hann var trúlega risastór írskur úlfhundur af kyni sem enn í dag er sagt hafa svipað skaplyndi og Ólafur Pá segir Sám hafa þegar hann gefur Gunnari frá Hlíðarenda þennan hund.
 
Hvar verður saga blaðsins Sámur fóstri í framtíðinni, það veltur á móttökum lesenda og stuðningi velunnara. 

Kári í jötunmóð

í Mogga í dag. Afköstin í skurðaðgerðum við gáttatifi ná ekki helmingi af þörf.

Í stað þessa að heimta allt af helfrosnu ríkisvaldinu sem er alltaf eins hverjir sem stjórna finnst mér að svona eldstólpi eins og dr. Kári er ætti að beita sér fyrir því að setja upp prívat klíníkk þar sem þeir sem geta borgað frá afgreiðslu strax. Þá styttist biðlistinn strax um helming.

Svo getur hann boðið einhverjum Visa-raðgreiðslur og einhverjir hlaupa á það. Svo má hafa landssöfnun og happdrætti, 1. viningur aðgerð við gáttatifi. Landspítalasósíallinn klárar þá kannski restina.

Bindum við ekki sem fyrrum vonir við dr.Kára í jötunmóð!

 


Til hvers er fjölmenning?

sem hugtak og markmið?

Íslendingar eru sem óðast að flytja inn fólk sem hefur gerólíka menningu, trúarbrögð og siðu heldur en við sem fyrir eru í landinu.

Við leggjum upphátt kapp á að þetta fólk læri íslensku. Sem allir vita að ber lítinn áramgur. Til hvers skyldi það vera? Ætlar Þetta fólk að samlagast okkur eða halda sínum siðum og venjum? Ætlum við ekki að kenna börnum þeirra á þeirra eigin máli? Ætlum við ekki að láta þetta fólk mynda sín eigin samfélög í fjölmenningarsamfélaginu Ísland? Ætlum við ekki að greiða fyrir því að ættmenni þeirra flytjist hingað og taki þátt í fjölmenningarsamfélaginu hér á landi? Er þessi ráðstefna hugsanlega endurtekning á Rögnunefndarsýningu Dags Bé Eggertssonar í auglýsingaskyni fyrir hann sjálfan?

Við kunnum flest ensku svo við getum gert okkur skiljanleg gagnvart því flóttafólki sem hana talar. Alveg án þess að þetta fólk þurfi að læra íslensku.  Til hvers í veröldinni að vera að áreita það með íslenskukennslu? Sjáum við ekki hvernig mál munu þróast hérlendis í þessu fjölmenningarsamfélagi sem allir ráðamenn góðafólksins stefna pólitískt að hvað sem okkur í kúgaða minnihlutanum finnst.

Er einhver ástæða til annars en að ætla að fjölmenningarsamfélagið hér mun líta eitthvað öðruvísi hér en Sviþjóð, Danmörku, Hollandi, Þýslandi eða Frakklandi? Sem verða Borgarhverfi fjölmenningar þar sem okkar menning er óvelkomin?

Ég fæ ekki skilið til hvers svona ráðstefna er sem á að halda á morgun á vegum Háskóla Íslands nema til þess að gefa opinberum starfsmönnum kost á að taka sér frí úr vinnunni sinni.Niðurstaðan er gefin fyrirfram.

Verða ekki þarna Dagur Bé,háskólarektor Jón Atli Bendeiktsson, Kristrún Sigurjónsdóttir og Hanna Ragnarsdóttir og svo allir velkomnir úr hópi góðafólksins sem vilja lofsyngja fjölmenningu sem andstæðu íslenskrar menningar?  Það á ekki að ræða aðlögun fólks af fyrrnefnda hópnum heldur aðlögun íslensku menningarinnar að fjölmenningunni.

Til hvers er þá þessi fjölmenning í sambandi við móttöku flóttamanna?


Finnagaldur

nýr er í athugun í þúsund vatna landinu. Þeir eru að spá í hver þegn fái 800 evrur á mánuði í peningum og allar bætur Tryggingastofnunar og sveitarfélaga falli niður.

Hugsið ykkur. Loka Kratahreiðrinu við Laugaveg eins og það leggur sig. Bara Mávur Seðla sendir gjaldeyri á hvern einstakling, aldinn sem ungan. Enginn að hringja í Pétur Gunnlaugs eða Arnþrúði  til að kvarta yfir svikum stjórnvalda. Ekkert fyrir Björgvin eða Erling Garðar að skrifa um ranglætið á eldri borgurum sem enginn vorkennir neitt í alvöru hvert sem er.

Mér finnst þetta hreinn brilljans. Það held ég að verði nú skrækur í Samfylkingunni ef Bjarni hreyfir þessu! 

Mér finnst þessi Finnagaldur hinn fremsti sem ég hef heyrt lengi.


Listafasismi?

birtist mér á skjánum hjá RÚV í smámyndramma af allsberum herramanni að runka sér. Ég gat ekki slökkt á þessu án þess að slökkva á þættinum sem ég vildi horfa á.

Hvað er hægt að kalla svona áþvingað "listform" sem góðafólkið myndi líklega kalla þetta. Hvað höfum við,ég og þú, til saka unnið að vera neyddir til að borga fyrir þetta áhorf? Fréttamyndum af flóttamönnunum í Evrópu er hinsvegar haldið frá okkur svo við verðum ekki hræddir.

Skyldi vera hægt að kalla þetta listafasisma?


Ráðningar hjá ríkinu?

 

Í leiðara Morgunblaðsins stendur m.a.:

"....Eftirgjöfin á gjaldahliðinni er áhyggjuefni og hluta vandans lýsti Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar, í viðtali við Morgunblaðið um helgina, þar sem hann sagði ríkisstofnanir standa gegn sparnaði með öllum tiltækum ráðum: »Það gengur erfiðlega að spara hjá stofnunum. Kerfið ver sig með öllum ráðum. Það skortir skilning á mikilvægi þess að gæta aðhalds í ríkisfjármálum og hafa í þessu tilfelli einfalt og skilvirkt eftirlitskerfi. Þetta er útlagður kostnaður skattgreiðenda og það er líka í þessu fólginn mikill óbeinn kostnaður fyrir atvinnulífið og fólkið í landinu.«

 

Augljóst er af lestri nefndarálits meirihluta fjárlaganefndar að erfiðlega hefur gengið að koma böndum á ríkisútgjöldin og í sumum tilfellum má tala um uppgjöf í því sambandi. Ýmsar skýringar eru á þessu og fæstar nýjar af nálinni. Þrýstingur innan úr kerfinu, líkt og sá sem nefndur er hér að ofan, er ein meginskýringin og veigamikil ástæða þess að hið opinbera ætti að halda fjölda og umsvifum stofnana sinna í lágmarki."

Þegar maður hlustar á viðtöl við ríkisforstjórana er alltaf sama viðkvæðið. Það vantar meiri fjármuni og fleira starfsfólk.Það vantar bæði meira fé og fleiri ríkisstarfsmenn ef á að halda uppi þjónustustiginu eins og það er orðað.

Skyldi vera einhversstaðar til áærlun um starfsmannafjölda ríkisins og hversu margar nýjar stöður verði til næstu ár? Hvað mun starfsmönnum Fiskistofu, Isavia, Samgöngustofu,Landspítala, Vegargerðar,Fjármálaráðuneytis,RÚV, Forsætisráðuneytis,Hagstofu og svo áfram fjölga mikið á næstu 5 árum? Er hægt að ætlast til þess að meirihluti fjárlaganefndar viti þetta?

Ég hef heyrt að sumstaðar hafi menn sett á ráðningarbann. Ekki ráðið inn fólk í stað þeirra sem hætta störfum nema að vandlega íhuguðu máli. Keep the lid on hiring er vel þekkt setning í Bandaríkjunum,-(hafið þak á ráðningunum).

Skyldi vera þak á ráðningum hjá ríkinu?

 


Það er þöggun í gangi

um sannleikann í flóttamannamálunum sem dynja yfir Evrópu.

Vinur minn með langan pólitískan feril að baki og því ekkert barn, hringdi í mig í kvöld og spurði mig að því hvernig í veröldinni myndbandið sem ég hef verið með á blogginu, sæist hvergi í fjölmiðlum.

Ég sagðist enga aðra skýringu kunna en að það væri skipulögð þöggun í gangi um alla Evrópu hvað varðar hegðun flóttamannalýðsins. Í Þýskalandi eru allar fréttir kæfðar um hvernig þessi skríll kemur fram með hverskyns ofbeldi. Þýskir fjölmiðlar birta ekkert neikvætt sem getur skaðað doktor  Merkel pólitískt. Allar fréttir eru neðanjarðar á netinu. Allir eru skíthræddir við þetta.

Líka hér á Íslandi. Enginn fjölmiðill minnist á þetta myndband frekar en að það sé ekki til né hafi nokkur séð það. 

(http://www.breitbart.com/london/2015/11/11/watch-anti-migrant-video-going-viral-across-europe

Ef hann verður ekki virkur á blogginu þá verðið þið að kopéra og paste í vafrann.)

En þetta myndband er til ef einhver vill auka sér meðvitund um hvað vofir yfir okkur hvað sem reynt er af góðafólkinu að beita okkur hin þöggun.


Einkarekin fangelsi

er möguleg lausn á fangelsismálum Íslendinga. 

Það var heldur dapurt að hlusta á Pál Winkel lýsa því hvað við blasti í fangelsismálum okkar. Allt fé uppurið og annaðhvort verður að fá meira fé eða fækka föngum verulega með lokun fangelsa.

Það mátti heyra á honum að mér fannst að Litla Hraun er skilvirkasta fangelsið. En til greina kæmi að loka Kvíabryggju og Akureyri. Verða þá ekki fínu hvítflibbakallarnir að fara að vera innanum pöpulinn? 

Ekki var að heyra að forstjórinn bindi miklar vonir við nýja "kynslífsmusterið á Hólmsheiðinni" sem kostar marga milljarða. Það kom hingað Kani úr fangelsisbransanum vestra þegar að mannvirkið okkar var í undirbúningi og bauðst til að byggja fangelsi fyrir helmingi fleiri fanga fyrir helmingi minni pening. Og reka það svo fyrir okkur líka í akkorði.

Góða fólkið vestra hefur það á móti einkareknum fangelsum sem mikið er um þar í landi, að fangar komist ekki úr þeim þar fangelsisrekendurnir séu sífellt að kæra þá fyrir agabrot sem hafi framlengingu á vistinni í för með sér. Þeir vilja hafa sitt fólk hjá sér sem lengst skiljanlega. En Könum er mörgum sama um slíkt þar sem þeir vilja endilega hafa fleiri glæpamenn inni í fangelsum heldur en úti.

Því má ekki bjóða þetta út hérlendis? Halda menn að Margrét Frímannsdóttir til dæmis gæti ekki stjórnað einkareknu fangelsi eins vel og opinberu?

Hvað kosta einkarekin fangelsi versus Hólmsheiði? 


Alræðisvald

yfir Íslandi tímabundið hef ég ákveðið að taka mér (í mínum hugarheimi til að byrja með).

Þetta hef ég ákveðið:

1. Engar launa-eða taxatahækkanir hverju nafni sem nefnast eru    leyfðar frá og með deginum í dag.

2. Forseti Íslands, hagstofustjóri og seðlabankastjóri skulu      koma saman 1.nóvember næstkomandi  og ákveða hvort ástand      þjóðarbúsins leyfi kauphækkanir eða krefjist kauplækkana. 

 3.Ákvörðun skv. 2. gr. gilda fyrir alla flokka sem 1. gr.        snertir.

3. Elli og örorku lífeyrir skal vera skattfrjáls. Allir skattar    skuli teknir af inngreiðslum í lífeyrissjóði hér eftir.

4. Allt influtningsverð skal vera óbreytt nema sannanleg hækkun    eða lækkun sé á heimsmarkaðsverði.

5. Útflutningsverð er frjálst og skal ráðast af breytingum    

   á heimsmarkaðsverði .

6. Vegabréfaskylda er á landamærum Íslands fyrir alla.

7. Engir nýir skattar verða lagðir á né sköttum breytt.

8  Engin ný lög verða sett nema fjárlög.

9. Aðeins ég get sett önnur ný lög ef nauðsyn krefur.

10. Allir þegnar Íslands skuli vera hamingjusamir að viðlögðum     fjörbaugsgarði eða útlegð til Noregs.

Athugasemdir eru leyfðar fyrir 1. janúar ella falli þær niður.

Einfalt en skilvirkt er mitt alræðisvald. Vi alene vider eins og var hér áður fyrr.

 

Þessi færsla verður tekin niður ef eindregin mótmæli berast frá Alþingi götunnar!

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418299

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband