Bloggfærslur mánaðarins, maí 2020
31.5.2020 | 13:11
Clint Eastwood
er níræður í dag.
Þessi maður hefur fylgt mér í gegn um lífið allt frá því að ég fékk fyrsta svart hvíta sjónvarpið líklega 1963 eða 4 sem náði Rawhide þáttunum í Kanasjónvarpinu.
Þar var ein persónan Rowdy Yeates, ungur sláni lék ráðsnjallan káboj.
Svo komu Spaghetti Vestrarnir hjá Sergio Leone þar sem Clint var töffari með vindilstúf í kjaftinum sem sallaði vondu gæjana niður með hjálp Lee VanCleef og Eli Wallach sem voru líka hrikalega töff. Svo kom röð af myndum sem ég sá ekki einu sinni. Dirty Harry , stríðsmyndir og allt það.
Hæst fannst mér hann Clint samt rísa í myndinni Unforgiven sem hann framleiddi og lék aðalhlutverkið í. Hrikalega töff mynd þar sem hann í hlutverki margfalds morðingja sem er orðinn bánkur bóndi og ekkill sem heyrir um að einhverjar hórur í einhverjum fjarlægum bæ hafi heitið verðlaunum til manna sem vilja drepa stráka sem höfðu unnið þeim mein.
Hann fer því að rifja upp gamla hestamennsku og byssufimi sem hann er búinn að týna niður fyrir löngu síðan og er svo klaufskur að maður veltist um að hlæja.
Hann leggur svo upp í langferð með öðrum manni til að ná í gullið og drepa strákana. Ævintýrin eru endalaus og brútalítetið er svakalegt.
Í einu atriðinu þar sem þeir eru að stúta einum af strákunum segir við hann við upprennandi en í grunninn huglítinn byssumann: "It is a helluwa thing to kill a man, take away everything he has got and will ever have."
Þegar hann i myndinni er búinn að sloka í sig hálfa viskíflösku rennur á hann hæfilegt drápsæði sem hann notaði fyrr á tíð til að myrða konur og börn að hans eigin sögn.
Myndina hef ég séð nokkrum sinnum og finnst hún alltaf góð.Myndin endar á því að dráparinn Willam Munney leysist upp og hverfur úr sögunni sem smákaupmaður í Californiu.
Clint hefur víst líka verið alvöru lögreglustjóri og í pólitík meðfram kvikmyndastörfunum.Hann er líklega gamaldags patríót eins og John Wayne var.
Hann er samt að mínu viti einn fjölhæfasti listamaður í kvikmyndum sem nú er uppi og hefur held ég filmað á Íslandi.
Ég vildi bara að að ég gæti óskað Clint Eastwood til hamingju með afmælið og megi hann lengi lifa með þökkum fyrir allt sem hann hefur fyrir mig gert allt lífið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.5.2020 | 16:11
Samúðarframleiðsla
fer fram hjá Helga Magnússyni fjölmiðlamógúl og glóbalistum á Hringbraut.
Þar er langur þáttur um flóttamenn frá Afganistan í Grikklandi. Einn segist ekki vera kominn til að borða eða vinna heldur að mennta börn sín. Annar segist hafa verið í læknanámi heima og móðir hans sé læknir og bróðirinn verkfræðingur.
Spyrillinn leggur sig fram að lýsa eymdinni sem fólkið býr við.Það vill komast til Evrópu segir það. Einn viðmælandinn spyr af hverju af hverju Íslendingar taki ekki við þessu fóki? Þetta sé venjulegt fólk. Eru erlendir múslímar venjulegt fólk á Íslandi? Smellpassar fjöldi þess inn í íslenskt samfélag?
Enginn spyr hversvegna það kom yfir fjöllin hingað? Hvað er það að flýja sem var svo slæmt að 39 milljónir Afgana eru kyrrir heima.Virðast geta menntað sig þar og lifað mannsæmandi lífi. Auðvitað vill þetta fólk komast til Íslands. En höfum við einhver ráð á að taka við því?
Flóttafólkið hlýtur að vita það áður en það leggur af stað hvaða lífskjör bíða þess í flóttamannabúðum í boði Erdogans og Mitsotakis. Hvað það er að yfirgefa með saklaus börn sín og bjóða þeim upp á sýndar hörmungar?
Ber Evrópu einhver skylda til að leysa vanda þessa fólks? Af hverju fer það ekki bara heim aftur? Varla getur það verið verra en það helvíti sem Samúðarframleiðsluþáttur glóbalista hjá Helga er að sýna okkur?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.5.2020 | 12:39
Félag Flugumferðarstjóra
er furðufyrirbæri.
Flugumferðarstjórar eru menntaðir alfarið af Ríkinu og vinna alfarið hjá Ríkinu.
Hvernig gengur það upp að þeim sé heimilt að renna saman í hjörð og fara í kjarahernað gegn Ríkinu?
Félag Flugumferðarstjóra ætti ekki að hafa verkfallsheimild að mínu viti.
28.5.2020 | 02:09
Kári minn klári
ekki vera fúll útí okkur vegna Svandísar sem er bara venjulegur kommabjálfi. Við þurfum á þér að halda hvað sem henni líður.
Árum minn og Kári klári.
27.5.2020 | 11:43
Skriðdýrsháttur
íslenskra Yfirvalda gagnvart kaþólsku EES samningsins og máttleysi gagnvart tilskipunum ESB hefur fyrir löngu gengið fram af flestum Íslendingum sem um slíkt hugsa. Við blasir að stærstu þjóðir ESB haf öll ákvæði EES að eigin geðþótta meðan við liggjum hundflatir.
Guðni Ágústsson skrifar merka grein um þetta í Fréttablaðið. Hann endar hana svofellt:
"Stephen M. Walt, ritstjóri Foreign Policy skrifar: Raunsæismenn vita það núna að heimsfaraldurinn er enn ein ástæða til að vara sig á hnattvæðingunni.
Hnattvæðing eykur hættur á ýmiss konar kreppum í samskiptum þjóða, en skapar líka alvarleg innanríkisvandamál, svo sem þegar störf eru f lutt milli landa.
Hér hefur verið gengist við kröfu ESB um að f lytja megi inn hrátt kjöt til Íslands og farið gegn hollráðum færustu manna bæði prófessoranna Margrétar Guðnadóttur og Karls G Kristinssonar.
Aldrei mun ég gleyma varnaðarorðum dr. Lance Price, prófessors við George Wasingtonháskóla og Milken-lýðheilsustofnunarinnar í Washington, en Sigurður Ingi Jóhannsson og Framsóknarflokkurinn fengu hann til að koma hingað. Hann var á fjölmennum fundi á Hótel Sögu. Magnaðri varnaðarorð hef ég ekki heyrt gegn því að flytja hingað ófrosið kjöt.
Erindið fjallaði um lýðheilsu og algjöra sérstöðu Íslands. Hann lýsti stöðu Íslands til fyrirmyndar í vörnum gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería sem væri stærsta ógn við lýðheilsu mannkynsins. Hann sagði þegar hann var spurður um hvað hann ráðlegði ríkisstjórn og Alþingi að gera, þá svaraði hann á þessa leið:
Nei, nei, aldrei að rjúfa þennan öryggismúr. Ríkisstjórnin bar ekki gæfu til að standa gegn þessari ógn.
Varðstaða gegn óvarlegum innflutningi á hráu kjöti snýst um líf og heilsu íslensku þjóðarinnar.
Þarna liggur stærsta heilsufarsógnin á himni framtíðarinnar. Verksmiðjubúskapurinn í vestrænum heimi snýst víða um dýraníð, og glæpsamlega lyfjanotkun, gegn þessu fári verða vísindamenn, læknar og stjórnmálamenn að rísa.
Var það ekki Gandhi sem minnti mannkynið á að jörðin fullnægir þörfum allra, en ekki græðgi allra?
Græðgin hefur tröllriðið heiminum. Mál er að linni."
Skriðdýrsháttur íslenskra yfirvalda gagnvart heimskulegum tilskipunum ESB sem meðal annars hafa stefnt Íslandi í ófrið gegn Rússlandi hafa fyrir löngu gengið fram af flestum sem um þau mál hugsa.
27.5.2020 | 03:24
Hvað er að?
í þjóðarsálinni?
"Píratar mælast næststærsti flokkur landsins í nýrri könnun MMR, en fylgi flokksins mælist 14,6%. Bæta þeir við sig þremur prósentustigum frá síðustu könnun sem birt var 8. maí. Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærsti flokkur landsins og bætir við sig 1,3 prósentustigum, meðan hinir stjórnarflokkarnir tveir, Vinstri græn og Framsóknarflokkurinn, missa fylgi.
Samkvæmt könnun MMR mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 23,5% fylgi, Píratar með 14,6% og Samfylkingin þriðji stærsti flokkurinn með 13,3% og hækkar um eitt prósentustig milli kannana.
Viðreisn mælist fjórði stærsti flokkurinn með 11,3% en fylgi flokksins lækkar um 0,9 prósentustig milli kannana. Miðflokkurinn bætir við sig 1,1 prósentustigi og mælist nú með 10,8%.
Vinstri græn missa eitt prósentustig og mælast með 10,6% og Framsókn missir 3 prósentustig og mælist nú með 6,4% fylgi. Mælist ríkisstjórnin með 47,5% fylgi í dag, en það er sjö prósentustigum minna en í síðustu könnun þegar stuðningurinn mældist 54,2%."
Jésús
Hvað er að?
27.5.2020 | 00:05
Orkuskipti eru orðskrúðstal
frekar en staðreyndir
Jarðefnaeldsneytið er orkugjafi mannkynsins en ekki vindur, sól eða vatnsafl.
Menn deila um framtíðina en þróunin í heimsmálum virðist vera algerlega háð þessum orkugjafa sem er olían. Koltvísýringsútblásturinn er risavaxið blöff sem er blásið út af einhverjum hagsmunaöflum sem beita sakleysingjum fyrir vagn sinn.
Ég rakst á þetta skrif:
" onMay 25 2020 said:
25.5.2020 | 11:20
Gleymdi maðurinn C
er heiti á þarfri greiningu dr.Hannesar Hólmsteins í Morgunblaðinu. Í henni dregur hann saman kjarnann bak við góðverkagerðir stjórnmálamanna.
Hannes skrifar:
Þegar menn keppast við að leggja á ráðin um aukin ríkisútgjöld, að því er virðist umhugsunarlaust, er ekki úr vegi að rifja upp frægan fyrirlestur sem bandaríski félagsfræðingurinn William Graham Sumner hélt í febrúar 1883 um gleymda manninn.
Sumner bendir þar á hversu hlutdræg athyglisgáfa okkar er. Hið nýja og óvænta er fréttnæmt, annað ekki. Hann nefnir sjálfur gulu og berkla, en nýlegra dæmi er uppnámið yfir veirufaraldri sem kostað hefur 323 þúsund mannslíf á fjórum mánuðum og er víðast í rénun.Á hverju ári látast 1,6 milljónir úr sykursýki, 1,3 milljónir úr berklum og ein milljón úr alnæmi.
Sumner segir: Í hvert sinn sem eitthvað kemur fyrir X, talar A um það við B, og B stingur upp á löggjöf X til aðstoðar. Þessi löggjöf felur ætíð í sér fyrirmæli um hvað C eigi að gera fyrir X eða einstöku sinnum hvað A, B og C eigi að gera fyrir X. Sumner bendir á að vandinn sé enginn ef A og B ákveði sjálfir að aðstoða X, þótt sennilega væri hægara að gera það beint en með löggjöf.
En Sumner beinir athygli að C: Hann er gleymdi maðurinn, hið óþekkta fórnarlamb, sem á að bera kostnaðinn af því þegar bæta skal böl annarra.
Flestir umbótamenn vilja taka fé af sumum og afhenda öðrum. Nú telur Sumner að stundum kunni það að eiga rétt á sér. (Ég tel til dæmis einhverja samtryggingu gegn drepsóttum og náttúruhamförum réttlætanlega.) En Sumner brýnir fyrir okkur að gleyma aldrei C, hinum venjulega manni, sem gengur til vinnu sinnar á hverjum degi, sér um sig og sína eftir megni, sækist ekki eftir embættum og kemst ekki í blöðin nema þegar hann gengur í hjónaband eða gefur upp öndina.
Hann er föðurlandsvinur en skiptir sér ekki af stjórnmálum og greiðir atkvæði á fjögurra ára fresti. Þá láta stjórnmálamenn dátt að honum. En þess í milli gleyma þeir honum.
Þeir koma sér saman um alls konar opinberar aðgerðir en ætlast alltaf til þess að hann beri kostnaðinn.
Og ekki er síður ástæða til þess árið 2020 að minna á gleymda manninn en árið 1883. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð "
Þegar Samfylkingarflokkarnir og aðrir vinglar jarma um félagslega aðstoð eru þeir aldrei að hugsa um C sem á að borga fyrir kærleikann. Þeir eru að tala um hvað þeir ætli að láta B gera fyrir A gegn því að A geri eitthvað fyrir B ef þeir kjósi félagssinna.
En það er alltaf C sem lætur blekkjast og kýs þetta lið yfir sig. Sjáið Reykjavík til dæmis. Þar er tími mislægra gatnamóta liðinn að sögn Dags. B. Eggertssonar. En tími fegrunaraðgerða við heimili Dags sjálfs á Óðinstorgi er ekki liðinn og því er mokað hundruð milljóna í ónauðsynlegar framkvæmdir við heimili Dags sjálfs meðan umferðarmálin þyngjast og tímanum er sóað í bull um Borgarlínu sem aldrei kemst í framkvæmd enda óþörf með öllu.Og sífellt fjölgar fólki á skrifstofu Dags sem helst enginn kjósandi nær tali af sjálfum.
Gleymdi maðurinn C er sá brjóstumkennanlegi sem lætur blekkjast af innantómum fagurgala A og B um hversu kærleiksfullir þeir séu í garð fátæktar hans.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.5.2020 | 12:52
Jarmið á jötugjafir
úr ríkislúkunni til blekbullara heldur áfram sem aldrei fyrr.
Þórður Snær skrifar á Kjarnann sinn:
"..Hér á landi hefur hins vegar fámennur hópur fyrirferðamikilla þingmanna getað komið í veg fyrir að sett verði upp sambærilegt styrkjakerfi og í nágrannalöndum okkar.
Ástæðan virðist vera að einn eða tveir minni fjölmiðlar, þar á meðal Kjarninn, trufla þá og vegna þess að þeir vilja að nokkrir stórir miðlar sem neita að aðlaga rekstur sinn að nútímanum þrátt fyrir milljarða tap á örfáum árum, fái alla þá ríkisstyrki sem útdeila á.
Þessir hópur nýtur svo stuðnings valinna fjölmiðlamanna og nafnlausra pistahöfunda sem hafa hamast á þeim sem styðja almennt styrkjakerfi með það að leiðarljósi að bæta lýðræðislega virkni og gagn íslenskra fjölmiðla.
Fremst í þeim flokki er Viðskiptablaðið, með alla sína nafnlausu eymd. Ríkisstyrkir reyndust svo mikið eitur í beinum þeirrar útgáfu að hún ákvað að setja sex eða fleiri starfsmenn sína á hlutabótaleiðina, sem var ætluð fyrir fyrirtæki í verulegum rekstrarvanda.
Fyrir þessa heift og óbilgirni gagnvart miðlum sem geta átt von á því að fá í besta falli um þrjú prósent af heildarstyrkjum líða allir hinir fjölbreyttu miðlar íslenskrar fjölmiðlaflóru sem há enn frekar en áður erfiða baráttu fyrir tilveru sinni.
Vegna þessa hóps situr frumvarp um styrkjakerfið fast í nefnd formanns sem hafði ekki einu sinni fyrir því að vera viðstaddur þegar hluti fjölmiðla var kallaður fyrir nefndina vegna málsins. Af opinberum yfirlýsingum hans, sem byggja aldrei á rökum eða vísun í gögn heldur fyrst og síðast niðrandi gífuryrðum, þá nennir hann ekki mikið að hlusta á einhverja bloggara.
Í staðinn á að styrkja einkarekna fjölmiðla með einskiptisaðgerð sem hluta af COVID-viðbrögðum. Hvernig sá styrkur verður liggur ekki enn fyrir. Það verður til dæmis áhugavert að sjá hvort að gerð verði skýr krafa um gegnsætt eignarhald og hvort nýting á öðrum COVID-ríkisstyrkjum muni dragast frá væntu framlagi til þeirra þriggja fjölmiðlafyrirtækja sem nýttu sér hlutabótaleiðina.
En augljóst er að einhver sér hag í því að fyrirsjáanleiki í fjölmiðlarekstri sé enginn og að ástæða sé til að halda þessu leikriti um mögulegan vilja til að takast á við ástandið, sem staðið hefur frá árinu 2016, áfram.
Erfitt er að draga aðra ályktun en þá að það sé vegna þess að viðkomandi vilji hafa stærstu fjölmiðla landsins áfram í taprekstri sem kallar á áframhaldandi fjárframlög sérhagsmunaaðila, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á lýðræðislega umræðu og samkeppnisaðstæður á fjölmiðlamarkaði.
Það er mjög miður."
Hver er þjóðfélagsleg nauðsyn á útgáfu Kjarnans?
Eða Miðjunnar?
Eða Útvarps Sögu?
Eða www.samurfosti.is?
Eða Morgunblaðsins?
Eða Fréttablaðsins?
Eða RÚV?
Ég hefði haldið að svona starfsemi sé því aðeins nauðsynleg ef fólk vill borga fyrir að halda þessu úti?
Af hverju á Sjálfstæðisfólk að borga Helga Magnússyni með sköttum sínum fyrir að halda úti hatursmiðli á Sjálfstæðisflokknum eins og langgjaldþrota Fréttablaðinu?
Af hverju á Bjarni Benediktsson að borga sjálfur þeim Egilssonum fyrir að skrifa skít og níð um sig sem stjórnmálamann?
Hundurinn bítur yfirleitt ekki höndina sem fóðrar hann.
Munu þeir Egilssynir ekki leggjast flatir fyrir ríkislúkunni frekar en að hafna peningum frá Lilju? Var ekki Gunnar Smári auðmjúkur þjónn í þjónustu Jóns Ásgeirs á sínum tíma?Bjó í Arnarnesinu með feitu köttunum?
Nýorðinn Kommúnisti hjá Eflingu?
Hvert fer trúverðugleiki Útvarps Sögu sem stjórnarandstöðumiðils þegar stöðin er orðin tilberi á stjórnvöldum? Styrktarreikningur Útvarps sögu osfrv.?
Hversu einbeittur verður Þórður Snær í ofan af flettingum þegar tilvera Kjarnans hangir á vinabrauði valdabraskara í stjórnmálum?
Sámur fóstri kemur ekki út nema ef tekst að safna auglýsingum til að borga kostnaðinn. Og kemur þessvegna bara ekki út í nærri 50.000 eintökum eins og hann gerði þegar betur áraði.
Af hverju ekki sama með Kjarnann, Miðjuna og það allt sem jarmar á jötugjafir úr ríkislúkunni?
23.5.2020 | 14:54
Rafskutlurnar
eru stórkostlegar og gaman að sjá krakkana þjóta frjáls eins og fuglarnir á þeim um göturnar.Maður hefði sko þegið þetta í den tid.
En þær koma bara hljóðlaust að mann á fleygiferð og maður þakkar fyrir að verða ekki fyrir þeim.Þegar eru mörg óhöpp orðin af þessu að maður heyrir.
Þarf ekki að hengja bjöllu á köttinn ef maður vill halda honum frá fugladrápinu? Þurfa þessar rafskutlur ekki að væla eitthvað á ferð?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Another bullish factor is that US shale oil production has declined by 2.2 million barrels a day (mbd) according to comments from the US Secretary of Energy while other highly reliable research showed the decline in May to be 4 mbd.
The reason Chinas National Peoples Congress (NPC) hasnt set an economic growth target for 2020 is that Chinese decision makers cant set a target without assessing first the damage that the coronavirus outbreak has inflicted on the economy. Once this has been accomplished, they will set a relevant growth rate.
There were reports that Chinas economy might have declined by more than 6% in the first three months of 2020. However, judging by the fact that Chinas crude oil imports have rebounded to nearly pre-coronavirus levels according to Bloomberg News on the 18th of May, I tend to discount such loss and estimate it by 2.5%-3.0% only. In fact, some projections see Chinas economy growing at 6.8% in 2021 compared with 6.1% in 2019.
Long term, rising tensions between the U.S. and China are weighing on global markets. It will act as a real damper on the global economy, global oil demand and prices exactly as it did during almost two years of war between March 2018 and December 2019.
The intensifying anti-China rhetoric in the United States and direct attacks on China by President Trump mean that he is preparing to break the truce reached in December 2019 and resume the trade war immediately after the US exits the lockdown. He will not fare better than the previous time. He will lose the trade war again.
Dr Mamdouh G Salameh
International Oil Economist
Visiting Professor of Energy Economics at ESCP Europe Business School, London"