22.11.2020 | 11:45
Verður maður ekki að fara að hlusta?
á hvað Sigmundur er að segja?
Gústaf Adolf vekur athygli mína á Sigmundi í dag:
"Ræða hans á aukalandsþingi Miðflokksins 21. nóvember var bæði einstök og því miður sjaldgæf í þeim ímyndunarheimi stjórnmálanna sem tröllríður öllu í dag.
Þarf að huga að fleiru en faraldrinum
Sagði Sigmundur að kórónuveiran hefði heltekið ríkisstjórnina svo vart er hægt að tala um eðlilegt og lýðræðislegt stjórnarfar.
" Varaði Sigmundur við því að óleyst vandamál m.a. hjá þúsundum lítilla og stórra fyrirtækja, landbúnaði, heilbrigðiskerfinu og eldri borgara gætu orðið að varanlegum vanda ef ekki væri gripið í taumana áður en það væri orðið um seinan. Minnti hann á að Miðflokkurinn hafði lagt fram tillögur fyrir faraldurinn og einnig boðið aðstoð í baráttunni gegn sjálfum faraldrinum en ríkisstjórnin hafi haft meiri áhuga á glærukynningum og oft verið lögð meiri vinna í umbúðirnar en tillögurnar sjálfar og jafnvel hinar stærstu þeirra hafa að engu orðið."
Miðflokkurinn hafi hins vegar alltaf stutt þær góðu tillögur sem að gagni hafi orðið.
Landbúnaðurinn verið settur í nauðvörn
Lýsti formaður Miðflokksins hvernig sótt er að ýmsum grunnstoðum Íslands eins og landbúnaðinum sem hefði orðið fyrir verulegu aðkasti á undanförnum árum: Það er sótt að greininni úr mörgum áttum samtímis. Búvörusamningar virðast frekar snúast um samdrátt en sókn.
Óhagstæðir tollasamningar við Evrópusambandið gerir bændum erfitt fyrir og veikir samkeppnisstöðu greinarinnar."
Ofan á það leggst sístækkandi reglugerðarfarganið sem er að miklu leyti innflutt og skapar erfiðari skilyrði fyrir íslenska bændur en víðast hvar annars staðar. Ríkisstjórnin sýndi snemma hug sinn til landbúnaðarstarfa með því að lækka fjárframlög til greinarinnar sem skapað hefur neyðarástand hjá bændum.
Eldri borgarar ekki enn fengið leiðréttu skerðinga eftir bankahrun
Gleymum því ekki að aldurshópurinn sem hafði byggt upp samfélagið var ekki of sæll að sínu fyrir skerðingarnar. Á sínum tíma gaf ríkisstjórn mín fyrirheit að þegar sá árangur sem við stefndum að í efnahagsmálum hefði náðst fengu þeir sem byggðu upp samfélagið að njóta þess. Árangurinn náðist og gott betur en það. En biðin stendur enn."
Lýsti Sigmundur hvernig ríkisstjórnin hefði komið með galið verkefni um að stofna hlutafélag og leggja á auknar skattaálögur til að fjármagna Borgarlínuverkefnið. En þótt Miðflokknum hefði tekist að leggja inn nokkra varnagla þá héldi kerfið áfram á sinni braut. 50 milljlarðar og óútfylltur tékki til gæluverkefnis er ekki það sem þjóðina vantar núna á þessum erfiðu tímum.
Benti Sigmundur einnig á hvernig hægt er að moka peningum í heilbrigðisgeirann sem verður botnlaus hít ef kerfið verður ekki lagað. Sagði hann að flestir gerðu sér grein fyrir því að Hringbrautarsjúkrahúsið getur ekki leyst öll verkefni og þarf að byggja nýtt sjúkrahús á öðrum stað.
Ísland allt
Sigmundur sagði báknið vera orðið það fyrirferðamikið að það ógnaði heilum atvinnugreinum. Miðflokkurinn hefur áður lagt til að þegar nýjar reglur eru settar verði tvær eldri teknar út til að spyrna við ofurbólgu báknsins. Var tekin fram sérstök handbók fyrir starfsfólk ríkisstofnana í forsætisráðherratíð Sigmundar til að spyrna gegn óþarfa útþenslu báknsins en lítið gerst eftir 2016.
Fyrir vikið verður sífellt flóknara að lifa daglegu lífi á Íslandi svo ekki sé minnst á að stofna eða reka lítil fyrirtæki og skapa ný störf og verðmæti." Rakti Sigmundur Davíð baráttu Miðflokksins við báknið og réttlætingu kerfisins á stækkun báknsins með því að framleiðslan ykist meira og báknið því ekki hlutfallslega stærra en áður. Núna erum við hins vegar komin í þá stöðu að við sitjum uppi með gríðarlegt bákn en framleiðslan hefur dregist saman svo brýnt er að hefjast handa með að fá báknið burt.
Losunarkerfið ein stærsta svikamylla síðari tíma Ef eitt álver flyst frá Íslandi til Kína mun losun gróðurhúsalofttegunda tífaldast
Formaður Miðflokksins benti á að það umhverfisvænsta á Íslandi væri álframleiðslan, því ef eitt álver flyttist til Kína mun losun gróðurhúsalofttegunda tífaldast.
Samt er nú rætt um að Ísland verði sektað fyrir að hafa ekki dregið nógu mikið úr losun á meðan við byggðum upp umhverfisvænan iðnað á undanförnum 30 árum. Hvert eiga þeir milljarðar að renna? Það virðist enginn vita. Líklega í nýja losunarhagkerfið sem lýst hefur verið sem einni stærstu svikamyllu síðari tíma. Þetta er það sem gerist þegar kerfið ræður á kostnað heilbrigðrar skynsemi."
Stjórnlaus málaflokkur hælisleitenda
Sigmundur vék orðum að vanda Íslands varðandi flóttamenn og hælisleitenda:
Veltið þessu fyrir ykkur: Hvernig stendur á því að fjöldi hælisleitenda á Íslandi, eyju í Norður Atlantshafi er allt í einu orðinn sá mesti á öllum Norðurlöndunum miðað við fólksfjölda. Það er vegna þeirra skilaboða sem íslensk stjórnvöld hafa sent út. Þau skilaboð nýta m.a. stórhættuleg glæpagengi til að selja fólki vonir um Ísland sem áfangastað." Bendir Miðflokkurinn á að hin Norðurlöndin sendi núna frá sér skilaboð til að draga úr innflutningum. Ef Ísland ætlar eitt Norðurlandanna að skera sig úr hvað þetta varðar verður ekki við neitt ráðið og það mun draga úr getu okkar til að hjálpa þeim sem mest þurfa á hjálpinni að halda." Minntist Sigmundur á afstöðu danskra jafnaðarmanna um að öflugt velferðakerfi og opin landamæri fara ekki saman."
Það munar um Miðflokkinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ræddu um kerfi rétttrúnaðar og þegar kerfið tæki völdin af fólki væri hætta á ferðum gagnvart lýðræðinu.
Stjórnmálamenn sem láta það viðgangast fjarlægjast kjósendur og taka stjórnmálin á þann stað sem kjósendur fái litlu ráðið um hvað er rætt eða hvernig.
Sem svar við þessari þróun hefur Miðflokkurinn eigin starfsstefnu heilbrigðrar skynsemi laus við glórur rétttrúnaðarins. Miðflokkurinn er því valkostur þeirra er vilja vinna á lýðræðislegum grundvelli og starfa saman að lausnum vanda með rökhyggjuna að verkfæri. "
Er ekki bara komin samkeppni í stjórnmálum dagsins?
Verður maður ekki að fara að hlusta á fleira?
21.11.2020 | 13:59
Hvað með okkur?
þegar Macron ofbýður svona?
Í Morgunblaðinu stendur þetta:
"Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur boðið múslimaleiðtogum í landinu að samþykkja skrá yfir lýðveldisgildi en það er liður í aðgerðum hans gegn róttækni meðal múslima.
Macron veitti leiðtogum stærstu samtaka múslima, CFCM, hálfan mánuð til að samþykkja réttindaskrána.
Franska múhameðstrúarráðið hefur fallist á að stofna þjóðarráð bænapresta til að gefa út starfsskírteini þeim til handa, sem hægt verður að kippa til baka.
Í réttindaskránni nýju segir að íslam sé trúarbrögð en ekki pólitísk stefna.
Bann er lagt við erlendri íhlutun í hópa félög og samtök múslima.
Í framhaldi af ódæðum í haust hefur Macron sterklega varið aðskilnað ríkis og kirkju í Frakklandi.
Þeir Gerald Darmanin innanríkisráðherra funduðu með átta helstu leiðtogum franska múhameðstrúarráðsins í Elysee-höll.
Macron boðaði nýjar aðgerðir til að takast á við íslamskan aðskilnað í Frakklandi. Verið er að skrifa víðtækt lagafrumvarp sem ætlað er að sporna við trúarlegri róttækni.
Kveðið er á um þungar refsingar þeirra sem ögra og hóta opinberum embættismönnum á trúarlegum forsendum.
Heimafræðsla barna múslima verður bönnuð og gefnar út kennitölur fyrir skólabörn svo fylgjast megi með því hvort þau sæki skóla. Foreldrar sem brjóta lögin geta átt von á allt að hálfs árs fangelsi og þungum fjársektum. agas@mbl.is"
Á Sema Erla að sjá um málefni múslíma á Íslandi ein og óstudd? Kemur okkur ekkert við hvað er borið á borð í moskunni í Öskjuhlíð þangað sem Lögreglan má ekki koma?
Þarf ekki að fylgjast með þeim illu múllum sem hingað koma til okkar að útbreiða hatursboðskap ofstækis Islams sem Macron er að tala um?
20.11.2020 | 12:40
Hvað er eiginlega að?
á Íslandi sem gefur tilefni til þeirrar fordæmingar og illinda sem uppi eru hafðar í Íslenskri fjölmiðlun?
Samkvæmt Seðlabanka Íslands er gengisskráning í dag:
Bandaríkjadalur 136,32
Sterlingspund GBP 180,47
Evra EUR 161,3
Sama dag fyrir 5 árum:
Bandaríkjadalur 131.69
Sterlingspund 201. 06
Evra 140.87
Hversu mikil verðbólga var í þessum ríkjum þennan tíma?
Er ástæða til að telja allt í uppnámi á Íslandi vegna þessa?
19.nóvember 2008:
Bandaríkjadalur 139.36
Sterlingspund 209.7
Evra 176
Hvað er eiginlega svona mikið að?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.11.2020 | 11:10
Græddur er geymdur eyrir
stóð á sparibyssunni minni gylltu og rauðleðurklæddu sem Landsbankinn gaf mér.
Ekki datt mér í hug þá að Landsbankinn væri lygari eins og hann var langur til.
Á endanum laug hann svo að mér að hlutaféð sem ég keypti í honum væri einhvers virði.
Hann fór bara á hausinn og því var öllu stolið af mér. Ég átti þá ekkert í málverkunum eða marmaranum í Austurstræti heldur bara ríkið, bankasýslan og skilanefndirnar.
Svo var manni sagt að það væri ljótt að ljúga í börn!
Í Morgunblaðinu eru nokkrar staðreyndir um fjármál rifjaðar upp í leiðara í gær.
"Græddur er geymdur eyrir sagði á blokkinni frá bankanum sem barnaskólarnir héldu utan um forðum. Börnin keyptu merki fyrir aura sem foreldrarnir tíndu flestir úr lúnu veski. Með fulla síðu var farið í bankann og beðið vaxta.
Sá einn hafði eitthvað upp úr krafsinu sem fékk hagstætt lán hjá bankanum og borgaði með verðbrunnum krónum. Þótt átakið hafi verið gallað var það þó tákn um að einhverjir töldu sparnað vera dyggð. Og það er rétt og bestur reynist hann þegar allir hafa nokkuð fyrir sinn snúð.
Síðar náðu hlutlausir embættismenn með lífsskoðun við ystu brún vinstrakantsins að stýra skattastefnu ríkisins allt of lengi og næsta óháð því hverjir sátu sem fjármálaráðherrar. En auðvitað varð samspilið mest og best þegar ráðherrann og embættismaðurinn voru jafnhlutlausir eins og í tíð þeirra Steingríms og Indriða. Tókst hlutleysingjunum þá að hækka skatta 104 sinnum og hafa þeir verið að mestu blýfastir síðan.
Þetta gleðiríka og hlutlausa samband endaði unaðslega með því að kumpánar enduðu báðir í framboði fyrir VG, sem undirstrikaði hversu óhlutdrægir báðir voru.
Á Íslandi hefur tekist að tryggja að þegar vextir eru komnir niður í næstum ekkert þá heldur reglan að skattleggja skuli verðbólgugróða sparenda, sem þýðir að á verðtryggðum reikningum þar sem ávöxtun er næstum engin græðir ríkið með því að skattleggja verðbólguna.
En eins og kunnugt er kemur sú aldrei til frádráttar hjá almenningi. Það mega íslensku stjórnmálaflokkarnir eiga að nánast enginn munur hefur reynst á þeim í slíkum efnum og þess vegna hefðu þeir Steingrímur getað dreift sér á aðra flokka sem hefði sjálfsagt verið sanngjarnt og enginn tekið eftir neinu."
Kaldhæðnin sem skín út úr þessum orðum er samt alvöruþrungin. Sparnaður var talin dygg í eina tíð.En Bréfaguttum og Háskólaséníum í fjármálum sem öðrum málum hefur tekist að leiða okkur á æðri þekkingarsvið.
Margir launþegar eiga oft ekki fleiri aura en þá sem eru í skuld á VISA-reikningnum í mánaðarlok. Sumir eiga kannski aðeins meira í mánaðarlaunum talið. En það er erfitt að ávaxta lágar upphæðir þannig að almennur skilningur á eðli sparnaðar er ekki útbreiddur. Það eru bara þeir sem hafa fengið stórlán til að kaupa bréf fyrir sem geta ávaxtað.
Ég hef velt því fyrir mér af hverju bankar vilja ekki bjóða verðtryggða reikninga til skemmri tíma en þriggja ára? Af hverju ekki til þriggja mánaða? Núll vexti en bara verðtryggingu. Myndi þetta ekki breyta hugsunarhætti einhverra um hvað útgjaldasparnaður er í raun og veru? Og hætta að leggja fjármagsntekjuskatt á verðtryggingu sem er furðuleg ráðstöfun.
En það er haldið áfram að níðast á gömlum gildum með lygum og útúrsnúningum og skorti á nýrri stjórnarskrá jafnvel kennt um allt sem aflaga fer.
Já, græddur er geymdur eyrir sögðu þeir í gamla daga.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.11.2020 kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2020 | 10:50
Samfylkingarflokkarnir ÞRÍR!
ekki báðir eins og ég hef kallað þá Viðreisn og hinn. Nú er klárt að Píratar tilheyra landssöluhjörðinni með fullum sóma.
Svo segir í Morgunblaðinu:
"Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, hefur sent Alþingi umsögn um frumvarp Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns Pírata, og nokkurra annarra þingmanna, um nýja stjórnarskrá.
Um frumvarpið segir Heimssýn meðal annars: Frumvarp það sem hér er lagt fram inniheldur ákvæði um framsal ríkisvalds til erlendra aðila. Er þá einkum vísað til 113. greinar frumvarpsins, en hún er afar vond og skorum við á Alþingi að samþykkja þá grein ekki óbreytta.
Ljóst er að 113. grein miðar fyrst og fremst að því að auðvelda inngöngu Íslands í Evrópusambandið, annaðhvort með beinum hætti eða með valdaframsali í smáum skömmtum í gegnum EES-samninginn. Hvort tveggja er ekki aðeins varasamt, heldur óásættanlegt. Rök fyrir nauðsyn þess að setja í stjórnarskrá rúmar heimildir til að framselja vald úr landi eru að mestu óljós. Að því leyti sem þau eru ljós, og vísa í samninga við erlenda aðila, verður ekki á þau fallist. Stangist samningur á borð við EES samninginn á við núgildandi stjórnarskrá er rétt að leysa það með því að taka viðkomandi samning til endurskoðunar eða segja honum upp, ekki að opna stjórnarskrá fyrir valdaframsali sem óljóst er hvert leiðir og getur valdið miklu tjóni.
EES-samningurinn hefði ekki verið samþykktur á sínum tíma ef hann hefði kallað á breytingar á stjórnarskrá. Ríkisstjórn og Alþingi verða hins vegar að taka sig á og beita ákvæðum samningsins til að verja hagsmuni Íslands og tryggja áframhaldandi stuðning við hann."
Það þarf ekki lengur vitnanna við hvar Píratar skipa sér í sveit. Kjósendur gera vel í því að minnst þessa grunnstefs í stefnu þessu flokks þegar Leista-Björn, Malbikarinn, þórhildur Sunna siðprúða og hvað þau heita nú öll vilja láta unga fólkið kjósa sig á opinbert framfæri.
Samfylkingarflokkarnir eru þrír en ekki tveir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.11.2020 | 11:02
Góð tillaga frá Gunnari Inga
um mislæg gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar birtist í Kópavogspóstinum í dag.
Mér sýnist að hún sé í stíl við ofanáliggjandi hringkeyrslubrú eins og er á Arnarnesvegi-Reykjanesbraut við Garðabæ-Kópavog sem Skrauta byggði fyrir nokkrum árum. Þau gatnamót svínvirka.
Því miður tekst mér ekki að finna greinina í Kópavogspóstinum á netinu til að endurbirta hana. En þeir sem áhuga hafa ættu að kynna sér grein Gunnar I. Birgissonar í Kópavogspóstinum frá í dag.
Þarna myndu vandamálin leysast í stað þess að vaxa eins og Dagur B. og hans nótar eru að reyna að þvinga í gegn ofan í okkur Kópavogsbúa þvert um geð. Það er mála sannast að orkuskipti í bílaflotanum batna ekkert við ljósastýrð gatnamót á Arnarnesvegi -Breiðholtsbraut heldur bara aukast.
Ég hef áður hvatt til þess að setja upp sjálfvirka gjaldtöku á Arnarnesvegi-Breiðholtsbraut. Sáralítið gjald myndi greiða fyrir framkvæmdina.
Annað sem mér dettur í hug að minnast á úr því að ég nefni Gunnar Inga. Það er það að hann fyrir aldamótin síðustu lét steinsteypa nokkra kílómetra af götum í Kópavogi.
Þær voru gerðar 15 sentímetra þykkar úr innfluttu norsku gæðabergi að hluta.
Reynslan úr Vesturlandsvegi í Kollafirði sýnir hinsvegar að íslenskt berg 38 mm stærstu steinar í steinsteypu hefur dugað þar í meira en hálfa öld án viðhalds. Þar geta menn séð endinguna svart á hvítu og borið saman við það malbik sem þeir þekkja. Íslensk steypa er því vel geranleg í samkeppni við malbik.
Eina sem klikkaði í Kópavogi var að undirlagið var úr bögglabergi sem blöðrótt og lint og þolir ekki umferðartitringinn og molnar niður. Þá getur steypan sprungið þar sem hún þolir ekki togspennur.
Auk þess var ekki vélarútlagningu við komið sumstaðar og handsteypa þurfti fleyga sem er ekki nægilega hæðarnákvæmt. En skriðmótavélin sem notuð var lagði hárnákvæmt og rennislétt þar sem henni var við komið.
En það er annað merkilegt sem blasir við. Þegar ekið er austur Fífuhvammsveg í átt að Smáralind sést að gatan er eiginlega óslitin eftir rúma tvo áratugi. Ég sé varla hjólför í hellunni og stöku sprungur sem sjást af fyrrgreindum ástæðum sýnast ekki skipta meginmáli.
15 sentímetra steypa eins og þarna er líklegra ódýrari í stofnkostnaði en malbik. Fyrir utan að endast greinilega miklu betur.
Útlagningarvélin er víst enn til uppi í Borgarnesi og allur útbúnaðurinn. Eitthvað af reynslunni er hugsanlega ofar moldu ennþá. Og steyputæknin hefur bara batnað.
Ég nefni þessa vegasteypusögu svona í framhjáhlaupi. Hún á nú víst hvergi upp á pallborðið og verður líklega ekki endurvakin.
En tilaga Gunnars Inga um Arnarnesvegamótin er í fullu gildi ef tekst að koma meirihlutanum í Reykjavík frá áður en hann veldur meiri skaða á höfuðborgarsvæðinu öllu en orðið er.
17.11.2020 | 10:39
Tvær þjóðir-tveir heimar?
virðast búa í þessu landi?
Stuðningur er við það nokkuð almennur að þjóðin skuli byggja þetta land allt. Nema hugsanlega í samfylkingarflokkunum sem vilja afsala sér því til ESB og finnst slík þjóðremba fyrirlitleg.
Einkanlega er þetta áberandi á höfuðborgarsvæðinu. Þar býr ein þjóðin í öðrum heimi en hin.Sú vill hjóla og keyra i Borgarlínu, búa í Kvosinni og stunda menningarlíf.Kvosarkynslóðina mætti kalla hana.
Hin vill vera í nútímanum, keyra í bílum á mislægum gatnamótum, stunda félagslíf og íþróttir fyrir alla, spila golf og ferðast um landið og allan heiminn.
Fyrri þjóðin hefur alræðisvöld og keyrir hlutina áfram með ofbeldi. Hún er að vísu gjaldþrota en ætlar að sækja sér fé til hinnar með illu eða góðu.Samanber framkvæmdir Borgarstjórans við heimili sitt við Óðinstorg fyrir almannafé. Ekkert er til sparað til að það hverfi hækki í verði.
Staksteinar velta fyrir sér hugsun Jón Gunnarssonar:
Svo virðist sem samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins eigi að hafa þann tilgang fyrst og fremst að þvinga sérvisku meirihlutans í Reykjavík upp á höfuðborgarsvæðið í heild sinni.
Í ofanálag á að láta landsmenn alla greiða fyrir sérviskuna með aðkomu ríkisins að sáttmálanum.
Borgarlínan rándýra og óhagkvæma er þungamiðja sáttmálans að mati meirihluta þeirra sem stjórna nú Reykjavík og virðist raunar það eina sem sá meirihluti hefur áhuga á í samgöngumálum svæðisins.
Sundabrautin virðist í besta falli eiga að vera neðanmálsgrein við sáttmálann sem ekki verði lesin nema meirihluta borgarstjórnar þóknist. Ekkert bendir til að honum þóknist það.
Enn eitt dæmið er komið upp. Um helgina sagði Morgunblaðið frá gagnrýni Jóns Gunnarssonar, alþingismanns og fyrrverandi samgönguráðherra, á áform um ljósastýrð gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Benti hann á að mislæg gatnamót væru mun betri leið og öruggari, og að auki í samræmi við samgöngusáttmálann. Þau mislægu gatnamót virðast stranda á því, eins og önnur mislæg gatnamót sem brýn þörf er á að gera, að sérviska meirihlutans í borginni leyfir ekki mislæg gatnamót.
Hvers vegna tekur ríkið þátt í þessu fyrir almannafé?"
Svo flettir maður Morgunblaðinu. Það er undirlagt af umfjöllun um bíla og aftur bíla.2117 rafbílar hafa selst.
Ekki er verið að skemmta Kvosarkynslóðinni með þessu?
En hverjir vilja lesa þetta? Er það ekki nokkuð ljóst að verið er að skrifa fyrir þau 95 % fólks sem vill ferðast með einkabílnum? Ekki það fólk sem meirihlutinn er búinn að ákveða að flytja yfir á Borgarlínu og að skuli byggja sínar íbúðir við hana?
Eru vinsældir Morgunblaðsins í öll þessi ár ekki byggðar á því að fjalla um þau mál sem fólkið vill lesa og ræða? Þjóðleg ræktarsemi birtist í vinsældum minningargreina sem hljóta þó að kosta fátækt félag manndrápsfé. Allt þættir sem vinstri elítan fyrirlítur og vill feiga í alþjóðahyggju hömlulausri og óstöðvandi móttöku hælisleitenda.
Sama birtist í afstöðunni til stjórnarskrárumræðna. Elítan vill fá þar inn greinar sem auðvelda henni að afsala sér fullveldinu. Hinni þjóðinni finnst engin þörf á slíku og kærir sig eiginlega ekki um að deila stjórnarskrá með þeirri þjóð sem hún á enga stjórnmálalega samleið með. Þess vegna er sú umræða orðin tóm.
Tvært þjóðir búa í tveimur heimum á Íslandi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.11.2020 | 11:43
Grein Arnars Þórs
í Þjóðmálum hefur sannarlega hreyft við mörgum.
Hún er að vísu svo löng og ítarleg að hætt er við að margir gefist upp að lesa áður en þeir komast á endann.
En hvað um það.
Ég er einn af þeim sem hef allt of engi látið kaffæra mig af málsmetandi fólki sem fullyrðir af ákafa að kostir EES séu svo margir að ekki megi efast um að heildarhagsmunirnir séu fleiri en ókostirnir. QED og ekkert röfl.
En ég verð að segja eins og er sem Sjálfstæðismaður að langfeðgatali, að yfirgangur Birgis Ármannssonar formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins í sambandi við 3. orkupakkann skildi mig eftir ringlaðan.Og hafði ég þó áður verið farinn að efast um að tveggja stoða kerfið væri að virka eins og til stóð. Íslenskir Alþingismenn hefðu ekki verið að standa sig í að rýna gerðirnar en hreinlega sleppt þeim í gegn að illa athuguðu máli.
Birgir kom aldrei fram með kosti þess að samþykkja 3. orkupakkann heldur aðeins það að það væri ekki hægt að sjá að hann skaðaði okkur beint. Hann sagðist vilja ræða við sjálfstæðismenn um innihaldið en gerði ekki heldur keyrði málið í gegn.Ég hef ekki gleymt því.
Ég hef áður lýst efasemdum um kosti þess að hafa skipt upp framleiðslu og dreifingu orku á íslenskum markaði.Hef ekki komið auga á annað en aukinn kostnað við framkvæmdina með tvöföldun stýrikerfisins.Og hvar er þá nokkuð sem vannst nema aukning á skriffinnsku?
Að öllu þessu töldu er mín niðurstaða að okkar ráðamenn hafa ekki staðið í ístaðinu á móti ESB og samþykkt á okkur álögur sem ekki hafa í mörgum tilvikum gert neitt fyrir okkar þjóð en gert okkar mál erfiðari.
Vel kann að vera að benda megi á margt sem komið hafi okkur betur en ekki. En það sem mér finnst að varast verði að við tökum upplýstar ákvarðanir um einstök atriði en ekki bara að samþykkja allt sem að okkur er rétt. Aðrar þjóðir fara sér hægar og hugsa um sína hagsmuni fyrst. Það eigum við líka að gera.
Ég er sannfærður um það til dæmis við eigum að hafa eigin stefnu í málum hælisleitenda en ekki þann slappleika sem ráðið hefur ferðinni undanfarin ár og leitt til ómældra hörmunga.
Evrópuþjóðirnar eru núna að vakna til vitundar um það að þær hafa heldur ekki ráð á opnum landamærum og þeim kostnaði sem fylgir hömluleysinu í innflutningi fólks. Frjáls för fólks og fjármagns innan EES átti aldrei að ná til Afríku eða Arabíu í gegn um hriplek landamæri Schengen.
Þær ætla að krefjast vinnuframlags og tungumálanáms hvort sem þeim tekst það eða ekki.
Grein Benedikts Jóhannessonar í Maðkaboxi Morgunblaðsins í dag er til dæmis ósvífinn málflutningur slíks baráttumanns til að rakka niður gildandi stjórnarskrá landsins og grafa undan þjóðarvitund okkar. Þessi maður og flokkur hans verður svarinn andstæðingur minn sem ég vona að aldrei þrífist í íslenskum stjórnmálum.
En grein Arnars Þórs dómara í hausthefti Þjóðmála er virkileg áskorun um vakningu fólks til vitundar um hvað fullveldi þýðir og þeir sem vilja spyrna við fótum verða að berjast gegn moldvörpunum í Samfylkingarflokkunum báðum sem vilja afsala Íslandi fullveldinu.
15.11.2020 | 13:02
Nú eru góð ráð dýr.
Á tímum COVID-19 hefur Reykjavíkurborg ítrekað óskað eftir skattfé úr ríkissjóði. Ekki er langt síðan sú ósk kom frá Reykjavíkurborg að ríkið myndi láta borgina hafa tugi milljarða í neyðaraðstoð þar sem borgin væri ógjaldfær og geti átt erfitt með að halda uppi lögbundinni grunnþjónustu. Forgangsröðun fjármuna er hér undarleg, bókuðu borgarfulltrúarnir á síðasta fundi borgarráðs.
Þórdís Lóa kemur auga á góða leið til að létta byrðum af Borginni.
Gefa út sameiginlegt aðgangskort allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Hvað gerist svo ef Reykjavík verður að loka hjá sér vegna fjárhagsvandræða?
Jú korthafar geta farið yfir lækinn að sækja sér þjónustu.
Þórdís Lóa segir:
".....Það er verið að skoða stofnun áfangastofu fyrir höfuðborgarsvæðið samkvæmt sóknaráætlun SSH og nýrri ferðamálastefnu Reykjavíkur. Góð reynsla er af því að bjóða upp á eitt borgarkort fyrir ferðamenn, þar sem innifalinn er aðgangur að öllum menningarhúsum Reykjavíkur, sem hægt væri að útvíkka fyrir allt höfuðborgarsvæðið.
Slíkt samstarf væri hægt að útvíkka enn frekar til að ná líka til íbúa höfuðborgarsvæðisins. ... og bókasöfn Bókasöfnin okkar eru að þróast í takt við nýja tíma og bjóða upp á mun meira en bara bækur. Bókasöfnin eru að verða staðir til að koma saman, skapa, grúska, halda fundi og læra eitthvað nýtt.
Það er ekkert sem segir að þau sem nýta sér þessar þjónustu bókasafnanna, eins og saumaklúbbar eða vinahópar, þurfi að búa í sama sveitarfélagi. Með því að opna þessi aðgangskort, þvert á sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, er hægt að einfalda líf íbúa, auka valfrelsi þeirra og bæta upplifun. "
Í ógjaldfærri Borg eru góð ráð dýr og þá er gott að eiga ókeypis innhlaup hjá öðrum.
14.11.2020 | 13:45
Er það furða?
þó að Trump sé fúll?
Það eru nærri 2 milljónir skráðir kjósendur heldur en hæfir íbúar vítt og breitt um Bandaríkin. Sem þýðir að demókratar póstlögðu hugsanlega fleiri frímerkta til baka atkvæðaseðla heldur en réttbærir kjósendur eru.
STATES AND COUNTIES WITH REGISTRATION RATES EXCEEDING 100%
(* means no separate reporting of inactive registrations)
Alabama: Lowndes County (130%); Macon County (114%); Wilcox (113%); Perry County (111%); Madison County (109%); Hale County (108%); Marengo County (108%); Baldwin (108%); Greene County (107%); Washington County (106%); Dallas County (106%); Choctaw County (105%); Conecuh County (105%); Randolph County (104%); Shelby County (104%); Lamar County (103%); Autauga County (103%); Clarke County (103%); Henry County (103%); Monroe County (102%); Colbert County (101%); Jefferson County (101%); Lee County (100%); Houston County (100%); Crenshaw County (100%)
*Alaska: Statewide (111%)
Arizona: Santa Cruz County (107%); Apache County (106%)
*Arkansas: Newton County (103%)
Colorado: Statewide (102%); San Juan County (158%); Dolores County (127%); Jackson County (125%); Mineral County (119%); Ouray County (119%); Phillips County (116%); Douglas County (116%); Broomfield County (115%); Elbert County (113%); Custer County (112%); Gilpin County (111%); Park County (111%); Archuleta County (111%); Cheyenne County (111%); Clear Creek County (110%); Teller County (108%); Grand County (107%); La Plata County (106%); Summit County (106%); Baca County (106%); Pitkin County (106%); San Miguel County (106%); Routt County (106%); Hinsdale County (105%); Garfield County (105%); Gunnison County (105%); Sedgwick County (104%); Eagle County (104%); Larimer County (104%); Weld County (104%); Boulder County (103%); Costilla County (103%); Chaffee County (103%); Kiowa County (103%); Denver County (103%); Huerfano County (102%); Montezuma County (102%); Moffat County (102%); Arapahoe County (102%); Jefferson County (101%); Las Animas County (101%); Mesa County (100%)
*Florida: St. Johns County (112%); Nassau County (109%); Walton County (108%); Santa Rosa County (108%); Flagler County (104%); Clay County (103%); Indian River County (101%); Osceola County (100%)
*Georgia: Bryan County (118%); Forsyth County (114%); Dawson County (113%); Oconee County (111%); Fayette County (111%); Fulton County (109%); Cherokee County (109%); Jackson County (107%); Henry County (106%); Lee County (106%); Morgan County (105%); Clayton County (105%); DeKalb County (105%); Gwinnett County (104%); Greene County (104%); Cobb County (104%); Effingham County (103%); Walton County (102%); Rockdale County (102%); Barrow County (101%); Douglas County (101%); Newton County (100%); Hall County (100%)
*Indiana: Hamilton County (113%); Boone County (112%); Clark County (105%); Floyd County (103%); Hancock County (103%); Ohio County (102%); Hendricks County (102%); Lake County (101%); Warrick County (100%); Dearborn County (100%)
Iowa: Dallas County (115%); Johnson County (104%); Lyon County (103%); Dickinson County (103%); Scott County (102%); Madison County (101%); Warren County (100%)
*Kansas: Johnson County (105%)
Maine: Statewide (101%); Cumberland County (110%); Sagadahoc County (107%); Hancock County (105%); Lincoln County (104%); Waldo County (102%); York County (100%)
Maryland: Statewide (102%); Montgomery County (113%); Howard County (111%); Frederick County (110%); Charles County (108%); Prince Georges County (106%); Queen Annes County (104%); Calvert County (104%); Harford County (104%); Worcester County (103%); Carroll County (103%); Anne Arundel County (102%); Talbot County (100%)
*Massachusetts: Dukes County (120%); Nantucket County (115%); Barnstable County (103%)
*Michigan: Statewide (105%); Leelanau County (119%); Otsego County (118%); Antrim County (116%); Kalkaska County (115%); Emmet County (114%); Berrien County (114%); Keweenaw County (114%); Benzie County (113%); Washtenaw County (113%); Mackinac County (112%); Dickinson County (112%); Roscommon County (112%); Charlevoix County (112%); Grand Traverse County (111%); Oakland County (110%); Iron County (110%); Monroe County (109%); Genesee County (109%); Ontonagon County (109%); Gogebic County (109%); Livingston County (109%); Alcona County (108%); Cass County (108%); Allegan County (108%); Oceana County (107%); Midland County (107%); Kent County (107%); Montmorency County (107%); Van Buren County (107%); Wayne County (107%); Schoolcraft County (107%); Mason County (107%); Oscoda County (107%); Iosco County (107%); Wexford County (106%); Presque Isle County (106%); Delta County (106%); Alpena County (106%); St Clair County (106%); Cheboygan County (105%); Newaygo County (105%); Barry County (105%); Gladwin County (105%); Menominee County (105%); Crawford County (105%); Muskegon County (105%); Kalamazoo County (104%); St. Joseph County (104%); Ottawa County (103%); Clinton County (103%); Saginaw County (103%); Manistee County (103%); Lapeer County (103%); Calhoun County (103%); Ogemaw County (103%); Macomb County (103%); Missaukee County (102%); Eaton County (102%); Shiawassee County (102%); Huron County (102%); Lenawee County (101%); Branch County (101%); Osceola County (101%); Clare County (100%); Arenac County (100%); Bay County (100%); Lake County (100%)
*Missouri: St. Louis County (102%)
*Montana: Petroleum County (113%); Gallatin County (103%); Park County (103%); Madison County (102%); Broadwater County (102%)
*Nebraska: Arthur County (108%); Loup County (103%); Keya Paha County (102%); Banner County (100%); McPherson County (100%)
Nevada: Storey County (108%); Douglas County (105%); Nye County (101%)
*New Jersey: Statewide (102%); Somerset County (110%); Hunterdon County (108%); Morris County (107%); Essex County (106%); Monmouth County (104%); Bergen County (103%); Middlesex County (103%); Union County (103%); Camden County (102%); Warren County (102%); Atlantic County (102%); Sussex County (101%); Salem County (101%); Hudson County (100%); Gloucester County (100%)
*New Mexico: Harding County (177%); Los Alamos County (110%)
New York: Hamilton County (118%); Nassau County (109%); New York (103%); Rockland County (101%); Suffolk County (100%)
*Oregon: Sherman County (107%); Crook County (107%); Deschutes County (105%); Wallowa County (103%); Hood River County (103%); Columbia County (102%); Linn County (101%); Polk County (100%); Tillamook County (100%)
Rhode Island: Statewide (101%); Bristol County (104%); Washington County (103%); Providence County (101%)
*South Carolina: Jasper County (103%)
South Dakota: Hanson County (171%); Union County (120%); Jones County (116%); Sully County (115%); Lincoln County (113%); Custer County (110%); Fall River County (108%); Pennington County (106%); Harding County (105%); Minnehaha County (104%); Potter County (104%); Campbell County (103%); McPherson County (101%); Hamlin County (101%); Stanley County (101%); Lake County (100%); Perkins County (100%)
Tennessee: Williamson County (110%); Moore County (101%); Polk County (101%)
Texas: Loving County (187%); Presidio County (149%); McMullen County (147%); Brooks County (117%); Roberts County (116%); Sterling County (115%); Zapata County (115%); Maverick County (112%); Starr County (110%); King County (110%); Chambers County (109%); Irion County (108%); Jim Hogg County (107%); Polk County (107%); Comal County (106%); Oldham County (104%); Culberson County (104%); Kendall County (103%); Dimmit County (103%); Rockwall County (102%); Motley County (102%); Parker County (102%); Hudspeth County (101%); Travis County (101%); Fort Bend County (101%); Kent County (101%); Webb County (101%); Mason County (101%); Crockett County (101%); Waller County (100%); Gillespie County (100%); Duval County (100%); Brewster County (100%)
Vermont: Statewide (100%)
Virginia: Loudoun County (116%); Falls Church City (114%); Fairfax City (109%); Goochland County (108%); Arlington County (106%); Fairfax County (106%); Prince William County (105%); James City County (105%); Alexandria City (105%); Fauquier County (105%); Isle of Wight County (104%); Chesterfield County (104%); Surry County (103%); Hanover County (103%); New Kent County (103%); Clarke County (103%); King William County (102%); Spotsylvania County (102%); Rappahannock County (102%); Albemarle County (101%); Stafford County (101%); Northampton County (101%); Poquoson City (100%); Frederick County (100%)
Washington: Garfield County (119%); Pend Oreille County (112%); Jefferson County (111%); San Juan County (108%); Wahkiakum County (108%); Stevens County (103%); Pacific County (103%); Clark County (102%); Island County (102%); Klickitat County (102%); Thurston County (102%); Lincoln County (101%); Whatcom County (100%); Asotin County (100%)
*West Virginia: Mingo County (104%); Wyoming County (103%); McDowell County (102%); Brooke County (102%); Hancock County (100%)"
Er hægt að bjóða upp á svona í einu fremsta lýðræðisríki heims?
Hvað kusu margir sem ekki höfðu rétt til þess?
Er ekki einn einum of mikið?
Hvað myndu menn segja hér ef látnir menn skiluðu atkvæðum? Myndu menn ekki hrópa úlfur úlfur?
Er það furða þó Trump sé fúll þegar svo mjótt er á mununm?
13.11.2020 | 13:38
Eru kjósendur blindir?
í Reykjavík?
Skilja þeir ekki tölur:
"Útgjöld borgarinnar halda áfram að vaxa og skuldasöfnun eykst um 33 milljarða á aðeins sex mánuðum og eru heildarskuldir og skuldbindingar samstæðu borgarinnar komnar í 378 milljarða í júnílok.
Launakostnaður hækkar um 9% milli ára. Ríkið nýtti uppsveiflu síðustu ára til að greiða skuldir verulega niður, en á sama tíma hefur borgin aukið skuldir sínar um meira en milljarð á mánuð þrátt fyrir einstakt góðæri.
Enginn viðleitni hefur verið til að hagræða og kostnaður vex þrátt fyrir að við blasi mikill samdráttur í tekjum borgarinnar.
Nauðsynlegt er að endurskoða fjárhagsáætlun borgarinnar miðað við þessa stöðu. Þá vekur athygli hvernig staða dótturfyrirtækjanna hefur versnað.
Afkoma OR versnar um -127% milli ára og fer úr hagnaði í tap.
Afkoma SORPU versnar um -90% frá áætlun og rekstrarniðurstaða Félagsbústaða hf. versnar um -98% frá áætlun.
Endurmat fasteigna Félagsbústaða hf. mun duga skammt til að bæta stöðuna.
Á sama tíma notar Dagur B. Eggertsson hundraðmilljóna í endurbætur á Óðinstorgi sem leiðir beint til hækkunar í einkahúsnæði hans.Þá er í lagi að fjölga bílastæðum.
Eru kjósendur blindir og skilja ekki tölur?
13.11.2020 | 10:24
RÚV
okkar allra?
Mitt svar er já. RÚV á þvílíka sögu og söfn af efni og aðstöðu að ekki verður þurrkað út.
Aðrir fjölmiðlar og hugsjónamenn berja lóminn og benda á kerfisvillu sem er til staðar. Það er hinsvegar reykur þegar þeir telja auglýsingatekjur sem helming vandans. Þeim stjórnar RÚV ekki heldur koma þær af viðskiptaástæðum markaðarins.
Fólkið horfir á RÚV vegna þess að það er skemmtilegast í ljósi aflsins sem í því býr.Og fréttaflutningurinn hefur yfirburði yfir aðra.
Bréf Sýnar ber að skoða í því ljósi:
Með vísan til þessa er með öllu óverjandi að RÚV verði bættur allur skaðinn eins og farið er á leit í umsögn RÚV enda myndi slík aðgerð einungis auka á þá samkeppnisröskun sem þegar leiðir af tæplega 5 milljarða árlegri meðgjöf frá ríkinu og um 2ja milljarða auglýsingatekjum sem stofnunin aflar sér ár hvert.
Þá verður ekki séð að stofnunin hafi hegðað sér með samfélagslega ábyrgum hætti, sbr. nýlegt mat fjölmiðlanefndar á því hvort RÚV hafi uppfyllt almannaþjónustuhlutverk sitt. Þar er gerður ríkur fyrirvari og í raun felldur áfellisdómur um hvernig RÚV hefur sniðgengið skyldur sínar gagnvart sjálfstætt starfandi framleiðendum. Kemur sú skýrsla í framhaldi af svartri úttekt Ríkisendurskoðunar á rekstri RÚV, segir ennfremur í erindi Sýnar.
Það virðist vera höfuðmein RÚV að þvi tekst ekki að feta hlutleysisstíg í fréttaflutningi heldur standa vinstri úlfshárin sífellt upp úr hálsmáli sauðargærunnar þannig að Sjálfstæðismönnum er sífellt misboðið. Og seint verður talað um þjóðareiningu með það fólk allt út i horni í fýlu.
Þetta væri hægt að laga en sífellt er þráast við.Af hverju er ekki hægt að setja Óla Björn Kárason eða einhvern slíkan útvarpsstjóra til tveggja ára og sjá hvort afstaða þjóðarinnar til RÚV gæti breyst?
Það er margt gott um RÚV en margt hægt að laga en auglýsingamarkaðurinn stjórnar sér sjálfur en ekki Heiðar Már þó klár sé.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.7.): 1
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 64
- Frá upphafi: 3421081
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 61
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko